Segist ekki vantreysta stjórnendum Landspítalans en vill að „öflugt lið“ hjálpi þeim

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar vill að skipuð verði stjórn yfir starf­semi Land­spít­al­ans. Katrín Jak­obs­dóttir spyr hvort stjórn­ar­liðar van­treysti stjórn­endum spít­al­ans sem gagn­rýnt hafa fjár­mála­á­ætlun.

Segist ekki vantreysta stjórnendum Landspítalans en vill að „öflugt lið“ hjálpi þeim

„Við viljum að heil­brigð­is­ráð­herra skoði þann mögu­leika hvort við getum bætt og eflt stjórn­endur Land­spít­al­ans í þeirra mik­il­vægu verkum með því að setja öfl­ugra lið... öfl­ugt lið... með honum,“ sagði Haraldur Bene­dikts­son, for­maður fjár­laga­nefndar, í umræðum um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar á Alþingi rétt í þessu.

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar um fjár­mála­á­ætlun er viðruð sú hug­mynd að skipuð verði stjórn yfir starf­semi Land­spít­al­ans þótt slíkt sé ekki venjan hjá svoköll­uðum A-hluta stofn­unum rík­is­ins sem sinna grunn­þjón­ustu.

„Í ljósi þess lyk­il­hlut­verks sem Land­spít­al­inn hefur í heil­brigð­is­þjón­ustu þjóð­ar­innar og umfangs­mik­ils rekst­urs telur meiri hlut­inn að ástæða sé að kanna hvort það gæti verið af hinu góða að styrkja stjórnun spít­al­ans með þeim hætti,“ segir í nefnd­ar­á­lit­inu.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, furð­aði sig á þessu í umræðum um fjár­mála­á­ætlun í dag og spurði hvort meiri­hluti fjár­laga­nefndar van­treysti stjórn­endum spít­al­ans.

Ljóst er að fáir hafa gagn­rýnt fjár­mála­á­ætl­un­ina af meiri hörku en stjórn­endur spít­al­ans. 

Haraldur Bene­dikts­son sagð­ist ekki van­treysta stjórn­endum Land­spít­al­ans, en tók fram að hann vildi að „öfl­ugt lið“ kæmi þeim til aðstoðar.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár