Ráðherra tekur þátt í kynningu á þjónustu Hreyfingar með eiginkonu utanríkisráðherra

Kristján Þór Júl­í­us­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, prófar lík­ams­mæl­ing­ar­tækni Hreyf­ingar í umfjöllun Smartlands þar sem Ágústa Johnson, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins og eig­in­kona Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, kynnir þjón­ust­una.

Ráðherra tekur þátt í kynningu á þjónustu Hreyfingar með eiginkonu utanríkisráðherra

Kristján Þór Júl­í­us­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, tekur þátt í kynn­ingu á tækn­inni Boditrax sem fjallað er um á vef Smartlands. Ágústa Johnson, fram­kvæmda­stjóri Hreyf­ingar og eig­in­kona Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra, kynnir tækn­ina og Kristján Þór prófar hana í umfjöll­un­inni sem er aug­lýs­ingu lík­ust. Um er að ræða tækni sem Hreyf­ingin tók nýlega í notkun.

Greinin hefst með stuttri kynn­ingu Ágústu á Boditrax-tækn­inni. „Boditrax er háþróuð tækni sem mæl­ir sam­setn­ingu lík­am­ans og er notað af mörg­um virt­um heilsu­stofn­un­um víða um heim. Með 30 sek­úndna prófi færðu niður­stöður um marga mis­mun­andi þætti sem gefa mik­il­væg­ar upp­lýs­ing­ar um vöðvamassa, fitu, vatns­magn, grunn­brennslu og innri fitu. Tækið not­ar svo töl­fræði til að meta ástand þitt miðað við hæð, þyngd, ald­ur og gef­ur þér upp líf­fræði­leg­an ald­ur,“ er haft eftir henni. 

Í annarri grein á vef Smartlands er tekið við­tal við Brynjar Níelsson, for­mann stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, sem einnig próf­aði Boditrax-tækn­ina og lýsir því hvernig hann ætlar að taka sig á, hreyfa sig og borða holl­ari á mat.

Á meðal þeirra sem vekja athygli á umfjöll­un­inni á Facebook er Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra og eig­in­maður Ágústu Johnson. 

Stundin sendi Mörtu Maríu Jón­as­dóttur, rit­stjóra Smartlands, tölvu­póst og spurði hvort grein­arnar væru kostað kynn­ing­ar­efni. „Þetta er hefð­bundið lífs­stíls­efni, ekki kostað,“ svar­aði hún.

Í Banda­ríkj­unum hafa Donald Trump og ráð­gjafi hans, Kellyanne Conway, sætt harðri gagn­rýni fyrir að not­færa sér fjöl­miðla­at­hygl­ina sem þau fá vegna stöðu sinnar til að kynna vörur Ivönku Trump, dóttur Banda­ríkja­for­seta. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár