Lyfjastefna Óttars gagnrýnd: „Ekki eitt orð um hámarks kostnaðarþátttöku þeirra sem eru veikir“

Í lyfja­stefnu heil­brigð­is­ráð­herra er lögð áhersla á að efla „kostn­að­ar­vit­und“ almenn­ings.

Í lyfja­stefnu Óttars Proppé heil­brigð­is­ráð­herra eru engin fyr­ir­heit gefin um að sett verði þak á greiðslu­þátt­töku sjúk­linga vegna allra lyfja. Hins vegar er lögð áhersla á að efla „kostn­að­ar­vit­und“ almenn­ings og heil­brigð­is­starfs­fólks. 

Stefnan var lögð fram á Alþingi í formi þings­á­lykt­un­ar­til­lögu í loks mars og gekk til vel­ferð­ar­nefndar 4. apríl. Hvergi er fjallað með beinum hætti um kostn­að­ar­hlut­deild sjúk­linga vegna lyfja í stefn­unni sjálfri, en í grein­ar­gerð er hins vegar tekið fram að ekki sé nóg „að lyf séu ávallt fáan­leg á mark­aði heldur þurfa þau að vera á við­ráð­an­legu verði og tryggt að Sjúkra­trygg­ingar Íslands taki virkan þátt í kostn­aði not­enda þeirra svo stuðlað sé að sem mestum jöfn­uði“. 

Í umsögn MND-félags­ins á Íslandi um lyfja­stefn­una er bent á þetta. „Það er mikið rætt um kostn­að­ar­vit­und fag­fólks og not­anda í stefn­unni. Við yfir­lestur er ekki eitt orð um hámarks kostn­að­ar­þátt­töku þeirra sem eru veikir,“ skrifar Guðjón Sig­urðs­son, for­maður félags­ins. „Held að það hljóti að eiga heima í Lyfja­stefnu svo ekki verði ein­vörð­ungu mögu­legt fyrir fyrir fólk á þing­manna­launum að kaupa sér lífs­nauð­syn­leg lyf.“ 

Árið 2013 var sett þak á kostnað sjúk­linga vegna þeirra lyfja sem Sjúkra­trygg­ingar Íslands taka þátt í að greiða. Byggir greiðslu­þátt­töku­kerfið á á þrepa­skiptri greiðslu­þátt­töku þar sem hver ein­stak­lingur greiðir hlut­falls­lega minna eftir því sem lyfja­kostn­aður hans eykst innan tólf mán­aða tíma­bils, en þau lyf sem Sjúkra­trygg­ingar taka ekki þátt í að greiða falla utan greiðslu­þrepanna.

„Held að það hljóti að eiga heima í Lyfja­stefnu
svo ekki verði ein­vörð­ungu mögu­legt fyrir
fyrir fólk á þing­manna­launum að kaupa
sér lífs­nauð­syn­leg lyf“

Í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar kemur fram að ráð­herra hygg­ist beita sér fyrir lækkun á kostn­að­ar­hlut­deild sjúk­linga í lyfja­kostn­aði. Nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna læknis­kostn­aðar og þjálfunar tekur gildi í byrjun maí, en kerfið tekur ekki til lyfja. Þetta benti Halldóra Mogensen, þing­kona Pírata, á þegar rætt var um lyfja­stefn­una á Alþingi í byrjun mán­aðar.

„Það er að koma nýtt greiðslu­þátt­töku­kerfi 1. maí en þar er ekki tekið á lyfja­kostn­aði. Stór þáttur í kostn­að­inum eru lyfin,“ sagði hún og bætti við: „Hvernig ætlum við að koma til móts við fólk þannig að við látum ekki veikt fólk vera í kvíða­kasti vegna fjár­hags­á­hyggna þegar það þarf mest á því að halda að geta verið í ró og næði til að ná heilsu aftur?“

Halldóra og fleiri þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar gagn­rýndu Óttar fyrir að fjalla ekki með beinum hætti um kostn­að­ar­þátt­töku sjúk­linga í stefn­unni.

„Ástæðan fyrir því að ekki er sér­stak­lega farið inn í kostn­að­ar­þátt­tök­una á annan hátt en með þess­ari almennu stefnu er vegna þess að það er ákveðið á end­anum í fjár­lögum og fjár­heim­ildum rík­is­ins til mála­flokks­ins. Þar erum við sam­mála, ég og þing­mað­ur­inn, um að það eigi að gera betur,“ svar­aði hann og bætti við: „Það er stefna rík­is­stjórn­ar­innar að lækka greiðslu­þátt­töku almenn­ings í heil­brigð­is­kerf­inu. Lyf eru ekki und­an­skilin þar. Ástæðan fyrir því að það er ekki nákvæmar orðað í lyfja­stefn­unni er vegna þess að fjár­heim­ild­irnar eru ákveðnar af Alþingi í fjár­lögum.“

Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, gaf lítið fyrir þessa útskýr­ingu Óttars. „Gott og vel, það verður auð­vitað gert í fjár­lögum,“ sagði hún. „En ég sakna þess engu að síður að þessa sjá­ist ekki stað í fjár­mála­á­ætl­un­inni. Það hefði að mínu mati verið ákveðin und­ir­bygg­ing fyrir það sem kemur í fjár­laga­frum­varp­inu þegar það svo kemur fram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár