Óttarr: Mál Bjartrar framtíðar voru ekki kosningaloforð heldur kosningaáherslur

Óljóst upp að hvaða marki Björt fram­tíð mun styðja eigin kosn­inga­mál þegar stjórn­ar­and­staðan setur þau á dag­skrá. „Fátt gleður mig meira en að velta fyrir mér sið­ferði­legum og heim­speki­legum spurn­ingum,“ sagði Óttarr Proppé í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma í dag.

Óttarr: Mál Bjartrar framtíðar voru ekki kosningaloforð heldur kosningaáherslur

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar og heil­brigð­is­ráð­herra, gerði sér­stak­lega að umtals­efni á Alþingi í dag að Björt fram­tíð hefði reynt að gefa ekki kosn­inga­lof­orð heldur kynna frekar kosn­inga­á­herslur í aðdrag­anda kosn­inga. Þetta kom fram í svari hans við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um upp­fyll­ingu kosn­inga­lof­orða Bjartrar fram­tíðar. Óljóst er upp að hvaða marki Björt fram­tíð mun styðja eigin kosn­inga­mál þegar stjórn­ar­and­staðan setur þau á dag­skrá á kjör­tíma­bil­inu.

Í fyr­ir­spurn sinni spurði Logi hvernig þing­menn Bjartrar fram­tíðar hygð­ust nálg­ast til­lögur og frum­vörp sem munu koma fram frá stjórn­ar­and­stöð­unni og eru í sam­ræmi við áherslu­mál Bjartrar fram­tíðar í aðdrag­anda kosn­inga. „Ég get nefnt frum­varp um greiðslu­þátt­töku sjúk­linga sem mun koma fram, um áfram­hald­andi vinnu við gerð stjórn­ar­skrár í sam­ræmi við nið­ur­stöður stjórn­laga­ráðs, að þjóðin fái sjálf að ákveða áfram­hald­andi ESB-við­ræður og kerf­is­breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegi,“ sagði Logi og bætti við: „Hin spurn­ingin er svo: Eru þing­menn Bjartrar fram­tíðar bundnir á ein­hvern hátt í stjórn­ar­sam­starf­inu til að greiða atkvæði gegn gefnum lof­orðum eða með teknu til­liti til hvenær til­lögur koma fram?“

Óttarr Proppé svar­aði með því að þakka Loga fyrir „heim­speki­lega“ fyr­ir­spurn. „Ég þakka hátt­virtum þing­manni kær­lega fyrir fyr­ir­spurn­ina sem var tals­vert á heim­speki­legum nótum sem gleður mig sér­stak­lega, fátt gleður mig meira en að velta fyrir mér sið­ferði­legum og heim­speki­legum spurn­ingum,“ sagði hann. Þá lagði hann áherslu á að þing­menn Bjartrar fram­tíðar myndu, rétt eins og aðrir, kjósa eftir sam­visku sinni. 

„En við töl­uðum oft um það og höfum talað um það frá því að Björt fram­tíð var stofnuð að þegar við ræðum mál­efni fyrir kosn­ingar reynum við að tala um það sem áherslur, það sem við viljum berj­ast fyrir, en ekki lof­orð vegna þess að við gerum okkur grein fyrir því að í fæstum til­vikum munum við vera ein og sér með það vald að full­nægja þeim lof­orðum. Björt fram­tíð fékk ágæta kosn­ingu en er eigi að síður ein­ungis með fjóra þing­menn af 63, hefur þar af leið­andi aug­ljós­lega ekki meiri hluta til að knýja lof­orð sín í gegn án þess að vera í sam­vinnu við aðra.“

Logi sagði svarið þunnt, jaðra við útúr­snún­ing, og end­ur­tók spurn­ingu sína. Þá svar­aði Óttarr:

„Ég skal reyna að svara hátt­virtum þing­manni skýrar. Þingmenn Bjartrar fram­tíðar, eins og aðrir þing­menn á þingi, eru bundnir sann­fær­ingu sinni þegar kemur að stuðn­ingi mála eða synjun. Það er svo ein­falt. Þau áherslu­mál, eins og ég orð­aði það, eða kosn­inga­lof­orð eins og margir myndu kalla það, sem okkar flokkur lagði fram í kosn­ingum eru áherslu­at­riði flokks­ins og þau atriði sem við komum með inn í starfið á Alþingi. Svo ég ítreki það erum við auð­vitað í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi þar sem hefur verið samið um áherslu í stjórn­ar­sátt­mála. Hann liggur fyrir og er opin­ber og við stöndum við hann. Hann er ekki allur úr kosn­inga­lof­orða­lista mínum heldur er hann sam­eig­in­legar áherslur flokk­anna sem hafa ákveðið að vinna saman. Það fer mjög mikið eftir því hvaða mál eru undir hver afstaðan verður og hvenær á kjör­tíma­bil­inu það verður. En ég skal full­vissa hátt­virta þing­menn um það að við munum styðja við góð mál eins og við mögu­lega getum á þingi eins og aðrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár