Oddný: Óskiljanlegt að ríkisstjórnin hunsi varnaðarorð sérfræðinga

Ekki stendur til að bregð­ast við ábend­ingum fjár­mála­ráðs sem varar við því að stjórn­völd kunni að lenda í spenni­treyju ósveigj­an­legrar fjár­mála­reglu ef hag­spár ganga ekki eftir.

Oddný G. Harð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar í fjár­laga­nefnd, segir óskilj­an­legt að stjórn­ar­meiri­hlut­inn á Alþingi ætli ekki að bregð­ast við ábend­ingum og ráð­legg­ingum sem fram koma í umsögn fjár­mála­ráðs um fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar til næstu fimm ára. 

Eins og Stundin greindi frá í febr­úar telur fjár­mála­ráð æski­legt að hag­sveiflu­leið­rétta afkomu­mark­mið hins opin­bera líkt og tíðkast í fjár­mála­á­ætl­un­ar­gerð á nágranna­lönd­unum. Þá bendir ráðið á að þröng og ósveigj­an­leg fjár­mála­regla kunni að valda óþarfa búsifjum og ef hag­spár gangi ekki eftir geti stjórn­völd bein­línis lent í „spenni­treyju fjár­mála­stefnu sinnar“.

Ekki stendur til að fara að ábend­ingum ráðs­ins, því í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar er lagt til að fjár­mála­stefna rík­is­stjórn­ar­innar verði sam­þykkt óbreytt. Þetta gagn­rýnir Oddný Harð­ar­dóttir harð­lega í minni­hluta­á­liti sínu sem lagt var fram á Alþingi í dag. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, full­trúi Vinstri grænna í nefnd­inni, gerir slíkt hið sama.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár