Óljós markmið í loftslagsmálum: „Bara verið umhverfisráðherra í nokkra daga“

Björt Ólafs­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, seg­ist vilja „fá stöð­una algjör­lega upp á borðið“ áður en sett verða tölu­leg mark­mið um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Óljós markmið í loftslagsmálum: „Bara verið umhverfisráðherra í nokkra daga“

Ný rík­is­stjórn hefur ekki komið sér saman um tölu­leg mark­mið að því er varðar aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum á kjör­tíma­bil­inu. Þetta kom fram í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag. 

„Fyrst er að fá stöð­una algjör­lega upp á borðið, svo er að fara í þá aðgerða­á­ætlun sem boðuð er,“ sagði Björt Ólafs­dóttir umhverfis- og auð­linda­ráð­herra þegar Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­kona Vinstri grænna, spurði hana um málið.

Björt vís­aði til skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands um stöðu lofts­lags­mála á Íslandi og sagð­ist hafa fengið inn­sýn í skýrsl­una enda væru drög að henni til­búin. „Ég hef fengið inn­sýn í hana og staðan er ekk­ert voða­lega góð. Það er alveg á hreinu að við þurfum að hafa okkur öll við,“ sagði Björt.

Skömmu seinna kom í ljós að Björt hafði aðeins séð eina mynd úr skýrsl­unni. „Ég hef bara verið umhverf­is­ráð­herra í nokkra daga,“ sagði hún.

Parísarsamkomulagið notað sem viðmið

Í fyr­ir­spurn sinni sagð­ist Rósa Björk sakna þess að hafa hvergi séð hver tölu­leg mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar væru að því er varðar aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum, hvorki hversu mikið ætti að draga úr losun né heldur fyrir hvaða tíma ætti að ná mark­mið­unum. Þá spurði hún: „Ætlar rík­is­stjórnin að fylgja stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins um að draga úr losun um 40% fyrir árið 2030? Eða ætlar hún jafn­vel að setja fram metn­að­ar­fyllri mark­mið?“

Björt sagð­ist hafa verið að leita að þessu hjá sér, enda hefði hún einmitt verið með tölu­legar upp­lýs­ingar. „Fyrst og fremst viljum við taka punkt­stöð­una,“ sagði svo Björt og bætti við: „Núna er vænt­an­leg og er reyndar komin í drögum, frétti ég síð­ast í gær, lofts­lags­skýrsla unnin af Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands um stöð­una á Íslandi. Ég hef fengið inn­sýn í hana og staðan er ekk­ert voða­lega góð. Það er alveg á hreinu að við þurfum að hafa okkur öll við. Það þurfa öll ráðu­neyti að gera. Allar stjórn­sýslu­stofn­anir þurfa að vera á sömu blað­síðu hvað það varðar að fara saman í þennan leið­angur.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár