Málefni Seðlabankans færð úr ráðuneyti Benedikts – verða áfram hjá Bjarna

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, mun ekki fara með mál­efni Seðla­bank­ans í nýrri rík­is­stjórn þrátt fyrir að hann gegni emb­ætti fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Í kosn­inga­bar­áttu sinni lagði Viðreisn mikla áherslu á mynt- og pen­inga­mál og annað sem varðar Seðla­bank­ann.

Málefni Seðlabankans færð úr ráðuneyti Benedikts – verða áfram hjá Bjarna

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, mun ekki fara með mál­efni Seðla­bank­ans í nýrri rík­is­stjórn þrátt fyrir að gegna emb­ætti fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Samkvæmt for­seta­úr­skurði sem kveð­inn var upp í dag fær­ast mál­efni Seðla­banka Íslands frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og yfir til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra nýrrar rík­is­stjórnar mun því áfram hafa þau mál­efni á sinni könnu. 

Í kosn­inga­bar­áttu sinni lagði Viðreisn mikla áherslu á mynt- og pen­inga­mál og annað sem varðar Seðla­bank­ann með beinum hætti. Samkvæmt for­seta­úr­skurð­inum virð­ist ný rík­is­stjórn hafa komið sér saman um að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fari með þann mála­flokk en ekki Viðreisn. 

Í efna­hags­stefnu Við­reisnar er boðað að stofnað verði mynt­ráð og horfið frá núver­andi pen­inga­stefnu. „Tekið verði upp mynt­ráð í stað núver­andi pen­inga­stefnu, hlið­stætt því sem tíðkast í fjöl­mörgum smærri ríkjum. Upptaka mynt­ráðs mun skapa var­an­legan geng­is­stöð­ug­leika, draga veru­lega úr vaxta­mun við útlönd og skapa for­sendur langvar­andi verð­stöð­ug­leika, til hags­bóta fyrir almenn­ing jafnt sem atvinnu­líf,“ segir í stefn­unni. 

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu nýrrar rík­is­stjórnar er engu slegið föstu um stofnun mynt­ráðs en fyr­ir­heit gefin um að for­sendur pen­inga- og gjald­mið­ils­stefnu Íslands verði end­ur­metnar og málið sett í nefnd. „Ráðherra­nefnd mun hafa samráð við þing­flokka og starfa náið með Seðla­banka Íslands, aðilum vinnu­mark­að­ar­ins og utan­að­kom­andi sérfræð­ingum, eftir atvikum á vett­vangi Þjóðhagsráðs. Byggt verður á nið­ur­stöðum skýrslu Seðla­banka Íslands frá árinu 2012 um val­kosti Íslands í gjald­mið­ils- og geng­ismálum. Þar var meðal ann­ars lagt mat á fram­kvæmd verðbólgu­mark­miðs, myntráð, fast­geng­is­stefnu og ýmsa aðra kosti. Niðurstöður vinn­unnar liggi fyrir á fyrsta starfsári,“ segir í stjórn­ar­sátt­mál­anum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár