LÍN semur við lögmannsstofur án útboðs og heldur ekki utan um kostnað af málarekstri

Lána­sjóður íslenskra náms­manna telur að útboð henti ekki vel til að ná hag­stæðum samn­ingum í lög­fræði­þjón­ustu og lög­inn­heimtu. Sjóð­ur­inn heldur ekki utan um aðkeypta lög­fræði­þjón­ustu vegna mála­rekst­urs í bók­haldi sínu.

Lána­sjóður íslenskra náms­manna hefur gert samn­inga við þrjár lög­manns­stofur um inn­heimtu­þjón­ustu und­an­farin ár án útboðs. Upp­lýs­ingar um kostnað LÍN af mála­rekstri sjóðs­ins fyrir dóm­stólum eru ófá­an­legar, enda hefur sjóð­ur­inn ekki haldið utan um slíka aðkeypta lög­fræði­þjón­ustu í bók­haldi sínu. 

Þetta kemur fram í svörum Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, við fyr­ir­spurnum Ástu Guðrúnar Helga­dóttur, þing­konu Pírata, um mál­efni lána­sjóðs­ins.

Lög­inn­heimta LÍN hefur und­an­farin ár verið í umsjá Gjald­skila, TCM og Lög­inn­heimt­unnar. Gjald­skil er sam­eig­in­legt inn­heimtu­fé­lag lög­manns­stof­anna Juris og Lex. Báðar stof­urnar hafa nýlega verið í kast­ljós­inu í tengslum við emb­ætt­is­færslur ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, meðal ann­ars eftir að Rík­is­end­ur­skoðun gerði athuga­semdir við 107 millj­óna þjón­ustu­kaup fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins af Juris í ráð­herra­tíð Bjarna Bene­dikts­sonar. Annar af tveimur stjórn­ar­mönnum Gjald­skila er fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins og faðir núver­andi for­manns alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis. 

Í svari Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar við fyr­ir­spurn Ástu Guðrúnar kemur fram að Lána­sjóð­ur­inn hafi end­ur­skoðað samn­inga sína við lög­inn­heimtu­að­ila árið 2016 og fækkað þeim lög­manns­stofum sem sjá um inn­heimtu fyrir hönd sjóðs­ins úr þremur í tvær. Bent er á að lög­inn­heimta er und­an­skilin útboð­skyldu, sbr. 11. gr. laga nr. 120/2016, og því sé lána­sjóðnum ekki skylt að bjóða út slíka þjón­ustu. Það sé jafn­framt „mat Lána­sjóðs íslenskra náms­manna að almennt útboð henti ekki vel til að ná hag­stæðum samn­ingum í lög­fræði­þjón­ustu og lög­inn­heimtu“. 

Ásta Guðrún spurði einnig um kostnað Lána­sjóðs íslenskra náms­manna við mála­rekstur fyrir íslenskum dóm­stólum frá árinu 2000. „Fyr­ir­spurnin var send til Lána­sjóðs íslenskra náms­manna en þaðan feng­ust þau svör að ekki væri haldið sér­stak­lega utan um lög­fræði­kostnað í bók­haldi sem væri til­kom­inn vegna mála­rekst­urs sjóðs­ins,“ segir í svari ráð­herra. „Aðkeypt lög­fræði­þjón­usta væri marg­vís­leg, t.d. vegna almennrar inn­heimtu­þjón­ustu, mála­rekst­urs fyrir dóm­stólum, gerðar minn­is­blaða o.s.frv.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár