Lætur ekki undan „öllu garginu“ um Guðmundar- og Geirfinnsmál

Brynjar Níelsson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, telur að grein sín frá 2011, þar sem hann kemur rann­sókn­ar­að­ilum og dóm­stólum til varnar, eld­ist vel.

Lætur ekki undan „öllu garginu“ um Guðmundar- og Geirfinnsmál

Brynjar Níelsson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, telur að grein sín um Guð­mundar- og Geir­finns­mál frá 2011, þar sem hann kemur rann­sókn­ar­að­ilum og dóm­stólum til varnar, eld­ist vel. Frá þessu greinir hann í umræðum á Facebook þar sem hæðst er að grein­inni. „Þetta eld­ist nefni­lega mjög vel,“ skrifar Brynjar og bætir við: „Sumir láta ekki undan öllu garg­inu.“

Á föstu­dag­inn féllst end­ur­upp­töku­nefnd á end­ur­upp­töku á dómum sem þeir Kristján Viðar Júl­í­us­son, Sævar Marinó Ciesielski, Tryggvi Rúnar Leifsson, Guðjón Skarp­héð­ins­son og Albert Klahn Skafta­son hlutu í Guð­mundar og Geir­finns­mál­unum á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar. Í úrskurði nefnd­ar­innar er því lýst með ítar­legum hætti hvernig lög­regla beitti sak­born­ing­ana harð­ræði og aðferðum sem ekki voru til þess fallnar að leiða sann­leik­ann í ljós. Fram kemur að lög­regla hafi ítrekað brotið gegn rétt­indum sak­born­inga, meðal ann­ars gegn laga­á­kvæðum um lengd yfir­heyrslna og laga­fyr­ir­mælum um að svör manna við spurnum væru skil­merki­lega og orð­rétt færð í letur. Þá er því lýst hvernig staðið var að ein­angr­un­ar­vist sak­born­inga, en nefndin telur að harð­ræðið hafi haft áhrif á and­lega og lík­am­lega heilsu þeirra. „End­ur­upp­töku­nefnd telur að óná­kvæm skrán­ing og skortur á skrán­ingu fjöl­margra yfir­heyrsla, við­tala og ann­arra sam­skipta rann­sókn­ar­manna og ann­arra við dóm­felldu á löngum tíma­bilum varpi mik­illi rýrð á trú­verð­ug­leika rann­sókn­ar­innar í heild,“ segir í úrskurð­inum. 

Nið­ur­stöður end­ur­upp­töku­nefndar eru að miklu leyti í takt við nið­ur­stöður starfs­hóps inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins sem kynntar voru árið 2013. Í skýrslu starfs­hóps­ins var því t.d. lýst hvernig Sævar Ciesielski sætti gæslu­v­arð­haldi í 1533 daga, þar af 615 daga í ein­angr­un í Síðu­múla­fang­elsi og var yfir­heyrður í sam­tals 320 klukku­stundir. Var höfði Sævars dýpt í kalt vatn, hann sleg­inn af fanga­verði og honum haldið vak­andi svo sól­ar­hringum skipti auk þess sem hann fékk ótæpi­lega lyfja­gjöf.

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, skrif­aði pistil um Guð­mundar- og Geir­finns­mál á Pressuna árið 2011. Þar tekur hann upp hansk­ann fyrir rann­sak­endur og gerir lítið úr ásök­unum um að sak­born­ingar hafi verið beittir veru­lega harð­ræði. Þá full­yrðir hann að „allt tal um dóms­morð, ill­virki dóm­ara, þving­anir og harð­ræði lög­reglu í því skyni að fá fram játn­ingar í Guð­mundar-og Geir­finns­mál­inu“ sé „ekk­ert annað en aðdrótt­anir sem ekki verður séð að fái stuðn­ing í gögnum máls­ins.“ Telur Brynjar „óskilj­an­legt hvernig vegið hefur verið að þeim mönnum sem stýrðu rann­sókn mál­anna og dæmdu þau í hér­aði og Hæsta­rétti“.

Sem fyrr segir telur Brynjar að skrif sín eld­ist vel þrátt fyrir að bæði starfs­hópur inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og end­ur­upp­töku­nefnd hafi gert grein fyrir harð­ræði og óvönd­uðum vinnu­brögðum rann­sókn­ar­að­ila með ítar­legum hætti síðan greinin var skrifuð. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár