Brynjar óttast að neikvæð umræða skaði bankakerfið

Brynjar Níelsson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, hefur áhyggjur af því að nei­kvæð við­brögð stjórn­mála­manna og ann­arra við fregnum af sölu á hlut í Arion banka kunni að hafa skað­leg áhrif á íslenskan fjár­mála­markað. „Hér er um að ræða fjár­mála­fyr­ir­tæki sem þarf á trú­verð­ug­leika að halda,“ sagði hann á Alþingi í dag.

Brynjar óttast að neikvæð umræða skaði bankakerfið

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, hefur áhyggjur af því að nei­kvæð við­brögð stjórn­mála­manna og ann­arra við fregnum af sölu á hlut í Arion banka kunni að hafa skað­leg áhrif á íslenskan fjár­mála­markað. 

Þessari skoðun sinni lýsti hann í umræðum á þing­inu rétt í þessu undir liðnum störf þings­ins. „Ég sjálfur hef tals­verðar áhyggjur af við­brögðum margra, og ekki síst stjórn­mála­manna, við þessum fregnum um sölu á 30 pró­senta hlut í Arion banka,“ sagði Brynjar. „Ég skil það að við höfum áhyggjur af eign­ar­haldi og ég vil fá upp­lýs­ingar. En við verðum samt að passa okkur að fara ekki í óyf­ir­veg­aða umræðu því að hún getur verið skað­leg fyrir okkur öll. Hér er um að ræða fjár­mála­fyr­ir­tæki sem þarf á trú­verð­ug­leika að halda. Við erum með kerfi, eft­ir­lits­stofnun, FME, sem hefur eft­ir­lit með þessu, sér um fram­kvæmd lag­anna og það er mik­il­vægt að við förum ekki fram úr okkur í þess­ari umræðu.“

Fordæmdi Brynjar hvers kyns hvatn­ingu um áhlaup á fjár­mála­fyr­ir­tæki á stærð við Arion­banka. „Þá erum við að skaða okkur sjálf og skaða íslensk fjár­mála­fyr­ir­tæki og við þurfum þess vegna að fara far­lega. Ég legg því til að umræðan um þetta verði yfir­veguð og við förum mjög var­lega í allar yfir­lýs­ingar. Vegna þess að það sem við segjum getur haft mikil áhrif á hvernig aðrir hegða sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár