Segir „kerfisbreytingalausa“ ríkisstjórn ætla að fresta „nauðsynlegri eflingu velferðar og menntakerfis“

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, segir rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar boða íhalds­sama stefnu í skatta- og rík­is­fjár­málum.

Segir „kerfisbreytingalausa“ ríkisstjórn ætla að fresta „nauðsynlegri eflingu velferðar og menntakerfis“

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, segir nýja rík­is­stjórn boða íhalds­sama stefnu í skatta- og rík­is­fjár­málum. Þrátt fyrir allt tal um kerf­is­breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegs-, land­bún­aðar- og Evr­ópu­málum hafi verið mynduð rík­is­stjórn sem ætli fyrst og fremst að vinna eftir stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins en setja hvers kyns kerf­is­breyt­ingar á ís.

Þetta kom fram í ræðu Katrínar í eld­hús­dags­um­ræðum á Alþingi í gær­kvöldi. 

„Það segir sína sögu að hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra ákvað að vitna í Tómas Guð­munds­son og kvæði hans frá fjórða ára­tug síð­ustu aldar því að stjórn­ar­sátt­mál­inn er um margt í besta 1920-stíl, kannski tákn­rænt að hann er und­ir­rit­aður af þremur karl­mönnum þrátt fyrir batn­andi kynja­hlut­föll á þingi,“ sagði Katrín og bætti við: 

„Kynning fjár­mála­ráð­herra, sem við heyrðum af í fjöl­miðlum, á rík­is­fjár­mála­stefnu nýrrar stjórnar er sömu­leiðis íhalds­söm. Sú rík­is­stjórn sem nú hefur tekið við boðar nefni­lega íhalds­sama stefnu. Það má kalla hana jafn­vægi, það má líka kalla hana kyrr­stöðu því að ætl­unin er að fresta nauð­syn­legri efl­ingu vel­ferðar og mennta­kerfis, það á ekki að byggja meira upp en rúm­ast innan hag­sveifl­unnar. Það má ekki afla auka­tekna til að byggja upp aðþrengt vel­ferð­ar­kerfi, heil­brigð­is­kerfi og mennta­kerfi. Undir þetta er kvittað í ræðu hæst­virts for­sæt­is­ráð­herra þegar hann segir: Fjár­magnið er af of skornum skammti.““

„Staðreyndir fremur en hughrif“

Í ræðu sinni hafði Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra sagt að nið­ur­skurður í heil­brigð­is­kerf­inu hefði kallað fram þau „hug­hrif“ hjá stórum hluta þjóð­ar­innar að sam­fé­lags­sátt­mál­inn um tryggt aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu væri brost­inn. Katrín Jak­obs­dóttir hædd­ist að orða­lag­inu og sagði: 

„Hug­hrifin birt­ast lík­lega í 86.000 und­ir­skriftum frá Íslend­ingum sem kröfðu stjórn­mála­menn um aukin fram­lög til heil­brigð­is­mála. Hug­hrifin birt­ast í því að greiðslu­þátt­taka sjúk­linga hér á landi er umtals­vert meiri en ann­ars staðar á Norð­ur­löndum á sama tíma og skortir fjár­muni til að tryggja mönnun og við­un­andi aðstæður. Og ætli það skapi ekki líka ákveðin hug­hrif að í tíð núver­andi hæst­virts for­sæt­is­ráð­herra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu lækk­aði skatt­byrðin á tekju­hæstu hópana og þyngd­ist á aðra hópa. Sumir myndu reyndar kalla þetta stað­reyndir fremur en hug­hrif.“ 

Varar við auknum álögum á almenning  

Katrín hvatti til kerf­is­breyt­inga á sviði skatta- og vel­ferð­ar­mála og sagði brýnt að leið­rétta stöðu tekju­lægstu hópanna í ljósi kann­ana sem sýni að nokkur þús­und börn líða efn­is­legan skort á Íslandi.

„Til að tryggja jöfnuð og félags­legan stöð­ug­leika þarf að ráð­ast í kerf­is­breyt­ingar, skatt­leggja fjár­magnið og létta skatt­byrð­inni af tekju­lægstu hóp­unum. Þar væri hægt að byrja á sjúk­linga­skött­unum sem eru hærri hér en ann­ars staðar og um leið væri hægt að afla auk­inna tekna af þeim sem hafa mest milli handa því að ef aðhald er sett á útgjöld í vel­ferð­ar­málum í stað þess að hækka skatta á auð­menn er í raun verið að hækka álögur á venju­legt fólk fremur en þá rík­ustu.“

Þá vék hún almennt að umræð­unni um kerf­is­breyt­ingar:

„Kerf­is­breyt­ingar voru orð síð­ustu kosn­inga­bar­áttu. Heilir flokkar voru stofn­aðir um slíkar breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegs­málum og land­bún­að­ar­málum sem og Evr­ópu­sam­bands­að­ild. Þessir sömu flokkar eru mættir í rík­is­stjórn sem fyrst og fremst mót­ast af stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins — allt á réttri leið, sagði hann í síð­ustu kosn­inga­bar­áttu og nán­ast end­ur­prentar stefnu­skrána í stjórn­ar­sátt­mál­anum. Kerf­is­breyt­ingar bíða betri tíma. Ekki er hægt að gera allt í einu enda er fram­tíðin löng, segir nýr fjár­mála­ráð­herra. Manni kemur annar ráð­herra í hug úr sjón­varps­þátt­unum „Já, ráð­herra“ sem var einmitt rit­stjóri blaðs­ins „Reform“ sem mætti þýða sem „Kerf­is­breyt­ingar“ áður en hann varð ráð­herra stjórn­sýslu­mál­efna. Frasinn um að Róm hafi ekki verið byggð á einum degi varð honum einmitt mjög tamur eftir að hann tók við emb­ætti og kynnt­ist sínum ágætu emb­ætt­is­mönnum.“

Katrín benti á að eft­ir­kosn­ingar vildu for­ystu­menn Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar skyndi­lega að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um ESB yrði frestað.

„Skyndi­lega er Róm ekki byggð á einum degi og menn fara að vitna í Tómas Guð­munds­son í leit að inn­blæstri. Tómas Guð­munds­son orti raunar fleira en Hótel jörð, t.d. þetta:„Og satt er það að stundum hef ég þurft / á öllu mínu ístöðu­leysi að halda.“ Einhvern veg­inn komu mér þessi orð í hug þegar nýr stjórn­ar­sátt­máli birt­ist eftir margra mán­aða tal um kerf­is­breyt­ingar, nokkurn veg­inn kerf­is­breyt­inga­laus.“

Hér má lesa stefnu­ræðu Bjarna Bene­dikts­sonar í heild. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár