Framkvæmdastjóri hjá Rio Tinto til átta ára verður aðstoðarmaður iðnaðarráðherra

Ólafur Teitur Guðnason hættir hjá álris­anum og tekur við starfi aðstoð­ar­manns.

Framkvæmdastjóri hjá Rio Tinto til átta ára verður aðstoðarmaður iðnaðarráðherra

Ólafur Teitur Guðnason, sem starfað hefur sem fram­kvæmda­stjóri sam­skipta­sviðs Rio Tinto frá árinu 2008, hefur verið ráð­inn sem aðstoð­ar­maður Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu. 

Ólafur Teitur vann sem fjöl­miðla­maður um ára­bil en sneri sér svo að almanna­tengslum. „Hann var fjöl­miðla­full­trúi Straums-Burða­r­áss fjár­fest­inga­banka árið 2008 en var undir lok þess árs ráð­inn fram­kvæmda­stjóri sam­skipta­sviðs Rio Tinto á Íslandi hf., sem rekur álverið í Straums­vík, og hefur starfað þar síðan,“ segir í frétta­til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Á meðal þeirra mála sem Þórdís Kolbrún fer með sam­kvæmt for­seta­úr­skurði eru íviln­anir vegna nýfjár­fest­inga, gerð fjár­fest­ing­ar­samn­inga við fyr­ir­tæki, fjár­fest­ingar erlendra aðila í atvinnu­rekstri, orku­mál og auð­linda­nýt­ing. Þá fer hún með önnur mál er lúta að iðn­aði, svo sem verk­smiðju­iðn­aði og stór­iðju.

Rio Tinto Alcan á Íslandi hf. rekur álverið í Straums­vík og er hluti af Rio Tinto Alcan, einum stærsta álf­ram­leið­anda í heimi. Verk­smiðju­heiti álvers­ins er ISAL og notar það  tæp­lega 3.000 gígawattstundir af raf­orku á ári, eða um 18% af þeirri raf­orku sem notuð er á Íslandi.

Sem fram­kvæmda­stjóri sam­skipta­sviðs Rio Tinto á Íslandi hefur Ólafur Teitur meðal ann­ars þurft að svara fyrir millj­arða­greiðslur álvers­ins í Straums­vík til móð­ur­fé­lags­ins í Sviss. Stundin greindi frá því í des­em­ber 2015 hvernig álver Rio Tinto Alcan í Straums­vík á í margs konar við­skiptum við móð­ur­fé­lagið þar sem fjár­munir renna frá Íslandi og til þess. Greiðsl­urnar til móð­ur­fé­lags­ins eru bók­færðar sem kostn­aður við starf­semi Rio Tinto Alcan á Íslandi og því ekki skatt­lagðar.

Stundin fjall­aði einnig ítar­lega um verk­fallið í álver­inu sem leiddi af því að Rio Tinto Alcan vildi semja um fá að not­ast í auknum mæli við verk­taka í starf­semi sinni í stað fast­ráð­inna starfs­manna til að lækka kostnað. „Svo sann­ar­lega er nauð­syn­legt fyrir fyr­ir­tæki sem horfir fram á tap­rekstur að geta sótt slíkan ávinn­ing, og það er líka mikið sann­girn­is­mál í ljósi þess að ISAL er eina fyr­ir­tækið á Íslandi sem býr við hömlur,“ sagði Ólafur Teitur í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. 

Aðstoð­ar­menn eru ráðnir á grund­velli laga um stjórn­ar­ráð Íslands og heyra beint undir ráð­herra. Meg­in­hlut­verk aðstoð­ar­manns ráð­herra er að vinna að stefnu­mótun á mál­efna­sviði ráðu­neytis undir yfir­stjórn ráð­herra og í sam­vinnu við ráðu­neyt­is­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár