Bjarni skipar stjórnarformann Borgunar í sérfræðingahóp

„Grunn­hugs­unin hér er sú að við komum á fót stöð­ug­leika­sjóði sem haldi utan um arð af orku­auð­lindum í eigu rík­is­sjóðs og tryggi kom­andi kyn­slóðum hlut­deild í ávinn­ingi af sam­eig­in­legum auð­lindum,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra á Við­skipta­þingi í gær.

Bjarni skipar stjórnarformann Borgunar í sérfræðingahóp

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hefur skipað Erlend Magn­ús­son, stjórn­ar­for­mann Borgunar, í sér­fræð­inga­hóp sem mun und­ir­búa lög­gjöf um stofnun stöð­ug­leika­sjóðs. Í hóp­inn voru einnig skipuð þau Kristín Har­alds­dótt­ir, lög­fræð­ing­ur, sér­fræð­ingur í auð­linda­rétti og fyrr­ver­andi aðstoð­arkona Ólafar Nor­dal í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu og Ingi­mundur Frið­riks­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri.

Bjarni til­kynnti um þetta í ávarpi sínu á Við­skipta­þingi Við­skipta­ráðs Íslands í gær. „Grunn­hugs­unin hér er sú að við komum á fót stöð­ug­leika­sjóði sem haldi utan um arð af orku­auð­lindum í eigu rík­is­sjóðs og tryggi kom­andi kyn­slóðum hlut­deild í ávinn­ingi af sam­eig­in­legum auð­lindum um leið og hann getur verið sveiflu­jafn­andi fyrir efna­hags­líf­ið,“ sagði hann og greindi svo frá því að hann hefði skipað í sér­fræð­inga­nefnd um stofnun sjóðs­ins. 

Kjörinn stjórnarformaður í kjölfar Borgunarmáls

Erlendur Magn­ús­son er mennt­aður í alþjóða­sam­skiptum og starfar sem fjár­festir og stjórn­ar­for­maður Total Capital Partners í London. Hann var fram­kvæmda­stjóri hjá Glitni á árunum fyrir hrun og yfir deild sem sá um skuld­setta fjár­mögnun. Félag í eigu Erlends og eig­in­konu hans, Fjár­sjóður ehf., var tals­vert til umfjöll­unar í fjöl­miðlum árið 2013 eftir að grunur vakn­aði um inn­herja­svik vegna sölu á hluta­bréfum félags­ins í mars 2008. Sér­stakur sak­sókn­aði ákærði Erlend og eignir Fjár­sjóðs voru kyrr­settar en síðar felldi Hæsti­réttur kyrr­setn­ing­una úr gildi auk þess sem sér­stakur sak­sókn­ari dró ákæruna til baka. 

Erlendur var kjör­inn stjórn­ar­for­maður Borgunar hf. á aðal­fundi þann 19. febr­úar 2015 skömmu eftir að Lands­bank­inn hafði selt eign­ar­hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu í lok­uðu sölu­ferli, án aug­lýs­ingar og langt undir mark­aðsvirði. Einn af kaup­end­unum var Einar Sveins­son, föð­ur­bróðir Bjarna Bene­dikts­sonar sem þá var fjár­mála­ráð­herra og fór óbeint með hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum. Við­skiptin vöktu mikla tor­tryggni, en nokkrum vikum eftir söl­una voru 800 millj­ónir króna greiddar út í arð til hlut­hafa Borgunar.

Alls hefur félag Einars, sem Benedikt Ein­ars­son sonur hans er stjórn­ar­maður í, fengið um 86 millj­ónir króna í arð vegna hlut­ar­ins í Borgun frá því að salan fór fram. Bæði banka­stjóri og banka­ráð Lands­bank­ans hafa við­ur­kennt að eðli­legra hefði verið að selja eign­ar­hlut bank­ans í Borgun í opnu sölu­ferli.

Taldi umræðu um ójöfnuð á villigötum

Erlendur er vara­maður í skóla­nefnd Sel­tjarn­ar­nes­bæjar fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Athygli vakti á dög­unum þegar hann gagn­rýndi skýrslu hjálp­ar­sam­tak­anna Oxfam um ójöfnuð í heim­inum og taldi umræð­una um að átta rík­ustu menn heims ættu jafn miklar eignir og fátæk­ari helm­ingur mann­kyns á villi­götum. „Þegar þessir átta rík­ustu menn heims eru skoð­aðir, má sjá að þeir hafa ekki orðið ríkir af ofur­launum, heldur er auður þeirra að mestu til kom­inn vegna þess að þeir stofn­uðu fyr­ir­tæki sem hafa vaxið og orðið verð­mæt­ari vegna mik­ils áhuga stórs hluta jarð­ar­búa á þeim vörum eða þeirri þjón­ustu sem þau veita,“ skrif­aði hann. 

Í októ­ber árið 2014 eftir að skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafði sent fjár­mála­ráðu­neyt­inu erindi vegna boðs um að kaupa gögn um skatta­skjóls­starf­semi Íslend­inga skrif­aði Erlendur grein í Morg­un­blaðið undir yfir­skrift­inni „Að kaupa þýfi“ þar sem hann lagð­ist ein­dregið gegn því að íslenska ríkið keypti gögnin. Síðar átti Bjarni Bene­dikts­son eftir að sæta gagn­rýni fyrir aðkomu sína að umræddu máli, en ráðu­neyti hans setti emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra skil­yrði fyrir kaup­unum sem ollu töfum auk þess sem Bjarni sak­aði skatt­rann­sókn­ar­stjóra rang­lega um að þvæl­ast fyrir mál­inu.

Fjallað er um skipan sér­fræð­inga­hóps um stöð­ug­leika­sjóð á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins. „Gert er ráð fyrir að fjár­mögnun stöð­ug­leika­sjóðs verði með þeim hætti að til hans verði ráð­stafað fjár­hags­legum arði rík­is­ins af orku­auð­lindum, eftir atvikum í formi afnota­gjalda, arð­greiðslna orku­fyr­ir­tækja, verð­bréfa tengd orku­fyr­ir­tækj­unum eða í öðru formi,“ segir á vefnum. „Þá þarf að meta hvort til sjóðs­ins yrði lagðar aðrar fjár­hags­legar eignir, svo sem fjár­munir sem varð­veittir eru í gjald­eyr­is­vara­forða Seðla­banka Íslands sam­kvæmt sér­stöku sam­komu­lagi við bank­ann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár