Forsætisráðherra gaf aftur ranga mynd af efnisatriðum skýrslunnar

Bjarni Bene­dikts­son segir starfs­hóp­inn telja Íslend­inga hafa verið „í far­ar­broddi“ þegar kom að því að „breyta laga­lega umhverf­inu í tengslum við skatta­skjól“. Raunin er sú að í skýrsl­unni eru íslensk stjórn­völd gagn­rýnd fyrir að hafa verið eft­ir­bátur nágranna­ríkj­anna að einmitt þessu leyti.

Forsætisráðherra gaf aftur ranga mynd af efnisatriðum skýrslunnar

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra fór öðru sinni með rangt mál um efn­is­at­riði skýrslu starfs­hóps um aflandseignir Íslend­inga á Alþingi á þriðju­dag. Hann sagði starfs­hóp­inn hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Íslend­ingar hefðu verið „í far­ar­broddi“ þegar kom að því að „breyta laga­lega umhverf­inu í tengslum við skatta­skjól“. Hið rétta er að starfs­hóp­ur­inn gagn­rýnir einmitt íslensk stjórn­völd fyrir að hafa verið eft­ir­bátur nágranna­ríkj­anna að þessu leyti. Í skýrsl­unni er vakin athygli á því að umfang afland­svæð­ingar íslensks efna­hags­lífs hafi verið „ein­stakt í heim­inum“ á útrás­ar­ár­unum og það m.a. rakið til þess hve seint lagaum­hverf­inu á Íslandi var breytt. 

Í sér­stökum umræðum um tafir á birt­ingu skýrsl­unnar um aflandseignir Íslend­inga varp­aði Bjarni Bene­dikts­son fram þeirri spurn­ingu hvort eitt­hvað í skýrsl­unni benti til þess að Íslend­ingar ættu enn eftir að „gera margt til þess að breyta laga­lega umhverf­inu í tengslum við skatta­skjól þannig að við þrengjum enn frekar að notkun þeirra?“ Þá bætti hann við: „Er eitt­hvað í skýrsl­unni sem segir það? Það sem skýrslan segir er: Við höfum verið í far­ar­broddi. Við höfum gert margt. Það er hægt að velja aðrar leiðir en þá erum við farin að nálg­ast það að leggja blátt bann við félögum af þessum toga.“ 

Þetta er í sam­ræmi við orð sem Bjarni lét falla á Alþingi þann 6. febr­úar síð­ast­lið­inn, en þá sagði hann að það væri „ekk­ert sér­stakt sem skýrslan bendir á að stjórn­völd hafi látið undir höfuð leggj­ast að gera“. Þau orð stand­ast ekki skoðun, enda er sér­stak­lega fundið að því í skýrsl­unni að stjórn­völd hafi, á árunum fyrir hrun, hunsað ráð­legg­ingar sér­fræð­inga um að inn­leiða svo­kall­aða CFC-lög­gjöf á Íslandi. Leitt er líkum að því að með lög­fest­ingu slíkra reglna hefði mátt koma í veg fyrir að afland­svæð­ingin sem átti sér stað á útrás­ar­ár­unum yrði jafn umfangs­mikil og raun ber vitni.„Ólíklegt er að fjár­magns­flótt­inn hefði orðið eins mik­ill ef hér hefðu gilt sömu reglur og á hinum Norð­ur­lönd­unum,“ segir í skýrsl­unni þar sem sér­stakur kafli er helg­aður þessu umfjöll­un­ar­efni. Þá er vikið að mál­inu í öðrum köflum skýrsl­unnar og í reifun á nið­ur­stöðum starfs­hóps­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár