Flokkur fólksins mælist stærri en Björt Framtíð

Samkvæmt nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup mælist Flokkur fólks­ins með 3,8 pró­senta fylgi en Björt Framtíð aðeins 3,3 pró­senta fylgi.

Flokkur fólksins mælist stærri en Björt Framtíð
Þing­flokkur Bjartrar fram­tíðar Stuðn­ingur við Bjarta fram­tíð hefur aldrei mælst minni. Mynd: Facebook

Fylgi Bjartrar fram­tíðar mælist minna en fylgi Flokks fólks­ins sam­kvæmt nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup. Björt fram­tíð mælist aðeins með 3,3 pró­senta fylgi en 5 pró­sent atkvæða þarf til þess að ná manni inn á þing. Flokkur fólks­ins mælist hins vegar með 3,8 pró­senta fylgi.

Í síð­ustu við­horfskönnun Gallup sem fram fór í lok maí mæld­ist Flokkur fólks­ins í fyrsta sinn stærri en Björt fram­tíð. Þá mæld­ist fylgi Flokks fólks­ins 4,2 pró­sent en fylgi Bjartrar fram­tíðar var aðeins 3,6 pró­sent.

Björt fram­tíð hefur frá kosn­ingum ekki mælst með minna fylgi. Flokk­ur­inn hlaut 7,2 pró­sent atkvæða í alþing­is­kosn­ing­unum í fyrra en stuðn­ingur við flokk­inn hefur minnkað jafnt og þétt síðan í nóv­em­ber í fyrra.

Páll Valur Björns­sonSagði sig úr Bjartri fram­tíð vegna rík­is­stjórn­ar­við­ræðna flokks­ins við Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

Rík­is­stjórn­ar­sam­starf Bjartrar fram­tíðar við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Viðreisn vakti ólgu innan Bjartrar fram­tíðar. Þannig greiddi fjórð­ungur stjórn­ar­manna flokks­ins atkvæði gegn stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar. Þá hafa þrír fyrr­ver­andi þing­menn sagt sig úr flokknum frá kosn­ingum. Páll Valur Björns­son, fyrr­ver­andi þing­maður flokks­ins, gagn­rýndi stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður Bjartrar fram­tíðar við Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn harð­lega frá upp­hafi við­ræðna í nóv­em­ber 2016. Sagði hann Bjarta fram­tíð og Sjálf­stæð­is­flokk­inn eiga enga sam­leið saman og sagði sig því úr flokknum. Auk Páls hafa Bryn­hildur Pét­urs­dóttir og Róbert Marshall sagt sig úr flokknum en þau vildu ekki tengja þá ákvörðun við sam­starf flokks­ins við Sjálf­stæð­is­flokk og Viðreisn.

Viðreisn mælist með 5,6 pró­senta fylgi sem er með því lægsta sem flokk­ur­inn hefur mælst hjá Gallup frá kosn­ingum. Viðreisn hlaut 10,2 pró­sent atkvæða í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum og sjö þing­menn en kæm­ist rétt inn á þing miðað við mæl­ingar í dag.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 27,5 pró­senta fylgi, Vinstri græn með 21,5 pró­senta fylgi, Píratar með 14,2 pró­sent, Framsókn með 11,3 pró­sent og Sam­fylk­ingin 9,2 pró­sent.

Gallup gerði mæl­ing­una dag­ana 15. júní til 2. júlí. Úrtakið var 2.870 manns og var þátt­töku­hlut­fallið 56,5 pró­sent. Rúmlega 10 pró­sent tóku ekki afstöðu og nær 9 pró­sent svar­enda sögð­ust myndu skila auðu ef kosið yrði til Alþingis í dag.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár