Fjármálaráðherra og forsætisráðherra tókust á í þingsal: „Allt einhver eftiráspeki“

Benedikt Jóhann­es­son gagn­rýndi fyrri rík­is­stjórn fyrir þrjósku gagn­vart aflandskrónu­eig­endum.

Fjármálaráðherra og forsætisráðherra tókust á í þingsal: „Allt einhver eftiráspeki“

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, gagn­rýndi harð­lega hvernig staðið var að aflandskrónu­upp­boði í fyrra þegar rætt var um losun fjár­magns­hafta á Alþingi í dag. Beindi hann þar spjótum sínum að fyrri rík­is­stjórn. Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, svar­aði gagn­rýn­inni og sagði um eft­irá­speki að ræða.

Í munn­legri skýrslu sinni um afnám fjár­magns­hafta sagð­ist Benedikt telja að mögu­legt og skyn­sam­legt hefði verið að þurrka upp aflandskrónu­vand­ann í útboð­inu sem Seðla­bank­inn hélt um mitt ár 2016. 

„Í ráðu­neyt­inu heyri ég að lík­legt sé að á þeim tíma hefði verið hægt að þurrka snjó­hengj­una svo­nefndu upp að mestu leyti ef gengið hefði verið á milli 165-170 krónur á evru. Nú sjáum við glöggt að skyn­sam­legt hefði verið að ljúka við­skipt­unum á því gengi. Þá­ver­andi stjórn­völd ákváðu að gera það ekki, kannski vegna þess sjón­ar­miðs að með því hefði verið gert allt of vel við aflandskrónu­eig­end­ur. Eftir á sjá allir að Íslend­ingar hefðu grætt mjög mikið á því að ljúka dæm­inu þá, en menn misstu af því tæki­færi,“ sagði Benedikt.

Skömmu síðar gekk Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra út úr þing­sal og horfði Benedikt á eftir honum. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, tók til máls á eftir Benedikt og tók undir gagn­rýni hans. Sagði hún að í raun hefðði aflandskrón­u­út­boðið í fjár­mála­ráð­herra­tíð Bjarna ekki tek­ist.

„Hæst­virtur núver­andi fjár­mála­ráð­herra kemur hér og segir að í raun og veru hefði verið betra að semja við aflandskrónu­eig­endur á öðru gengi. Þannig að hann virð­ist telja líka að þarna hafi verið gerð mis­tök í fram­kvæmd­inni við losun hafta,“ sagði Katrín. 

Bjarni tók til máls skömmu síðar og svar­aði gagn­rýni Bene­dikts og Katrínar. „Mér finnst það skjóta skökku við þegar menn koma hér upp og segja að útboðið sem haldið var um mitt ár í fyrra hafi ekki verið vel heppnað. Stað­reyndin er sú að við fengum þátt­töku í því útboði sem var langt umfram það sem tek­ist hafði að fá fram í fyrri útboðum. Langt langt langt umfram það. Veruleg fjár­hæð sem þá losn­aði, rétt um sjö­tíu millj­arðar ef ég man rétt, sem við náðum að losa í útboð­inu. Vissu­lega stóð eftir há fjár­hæð en engu að síður vel heppnað útboð sem var und­an­fari þess að við gátum hafið afnáms­ferli á inn­lenda aðila,“ sagði Bjarni. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár