Fjarlægði ummæli sín og umræðurnar um þau: „Ég skipti ekki um skoðun“

Theodóra S. Þor­steins­dóttir, þing­flokks­for­maður Bjartrar fram­tíðar, seg­ist þakk­lát fyrir að umræðan um gagn­rýni sína hafi færst yfir á Stundina.

Theodóra S. Þor­steins­dóttir, þing­flokks­for­maður Bjartrar fram­tíðar, seg­ist hafa fjar­lægt harð­orða yfir­lýs­ingu um þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar, gagn­rýni þeirra á Bjarna Bene­dikts­son og arf­leifð vinstri­st­jórn­ar­innar af Facebook vegna þess að hún lítur svo á að umræðan um málið hafi færst yfir á Stundina. Þetta kemur fram í svari hennar við fyr­ir­spurn blaðs­ins. Fjörugar umræður sköp­uð­ust undir færslu Theodóru þar sem hún var krafin svara við full­yrð­ingum sínum, m.a. þeirri stað­hæf­ingu að fyr­ir­tæki hefðu verið rekin í gjald­þrot með ólög­mætum hætti og spurð hvaða þing­menn hún væri að gagn­rýna. Allar umræð­urnar eru horfnar eftir að Theodóra fjar­lægði færslu sína.

Á meðal þess sem fram kom í færslu Theodóru var gagn­rýni á stjórn­ar­and­stöð­una fyrir að „leggja ofurá­herslu á hvort“ Bjarni Bene­dikts­son fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra hefði setið á skýrslu um skipt­ingu höf­uð­stólslækk­unar hús­næð­is­lána fram yfir kosn­ingar. Fyrir liggur að loka­drög að skýrsl­unni voru til­búin í júní 2016, vinnslu hennar lokið fyrir kosn­ing­arnar í októ­ber 2016 en skýrslan þó ekki birt fyrr en 18. jan­úar síð­ast­lið­inn að frum­kvæði Bene­dikts Jóhann­es­sonar, nýs fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Skýrslan varpar ljósi á það hvernig stór hluti af þeim fjár­munum sem varið var til höf­uð­stólslækk­unar verð­tryggðra hús­næð­is­lána á síð­asta kjör­tíma­bili rann til stór­eigna­fólks.

Theodóra telur að sömu aðilar og gagn­rýna Bjarna Bene­dikts­son fyrir að hafa setið á skýrsl­unni fram yfir kosn­ingar – en slík gagn­rýni hefur einkum heyrst frá þing­mönnum Vinstri grænna, Pírata og Sam­fylk­ing­ar­innar – séu þannig að „kom­ast hjá því“ að ræða um inni­hald skýrsl­unnar. Í færslu sinni kall­aði hún eftir upp­gjöri við þá stefnu sem var rekin í stjórn­ar­tíð Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna að því er varðar skulda­mál heim­ila og fyr­ir­tækja. „Sorglegt að horfa upp á þá sem kusu með leið­rétt­ing­unni eða sátu hjá kom­ast hjá því að ræða inni­hald skýrsl­unnar og leggja ofurá­herslu á hvort ráð­herra hafi setið á henni yfir kosn­ingar,“ skrif­aði Theodóra. Sem kunn­ugt er greiddu nær allir þing­menn Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar­innar og Pírata atkvæði gegn frum­varpi um höf­uð­stólslækkun verð­tryggðra hús­næð­is­lána árið 2014 en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem nú er í stjórn­ar­and­stöðu, stóð að mál­inu ásamt Sjálf­stæð­is­flokknum. 

Theodóra full­yrti að Sam­fylk­ingin hefði enn tæki­færi til að leið­rétta þau mis­tök að hafa tekið sér stöðu með fjár­mála­kerf­inu gegn skuld­settum heim­ilum. „Fólk er enn að drukkna í skuld­ar­feni [sic] og það er óupp­gert tjón hund­ruða heim­ila vegna nákvæm­lega þess­ara mis­taka sem Sam­fylk­ingin gerði. Væri fal­legt að sjá Vinstri græna fara í sam­bæri­lega innri skoðun og jafn­vel fleiri flokka. Þar fyrir utan þurfum við upp­gjör á þeim úrræðum sem flokk­arnir buðu upp á eftir banka­hrunið. Ein skýrsla um "Leið­rétt­ing­una" dugar ekki. Sorglegt að horfa upp á þá sem kusu með leið­rétt­ing­unni eða sátu hjá kom­ast hjá því að ræða inni­hald skýrsl­unar [sic] og leggja ofurá­herslu á hvort ráð­herra hafi setið á henni yfir kosn­ingar. Skýrsla um þau fyr­ir­tæki sem rekin voru í gjald­þrot með ólög­mætum hætti væri gagn­leg, heild­ar­skýrsla um öll þau úrræði sem í boði voru er nauð­syn­leg“ skrif­aði hún. 

Stundin sendi Theodóru tölvu­póst og spurði hvers vegna hún hefði fjar­lægt text­ann. „Nei ég skipti ekki um skoðun enda hafa afleið­ingar hruns­ins verið í mínu fangi í mörg ár. Hins vegar þá færð­ist umræðan yfir á Stundina og er ég þakk­lát fyrir það. Nauð­syn­legt að vekja athygli á hrun­inu því fjöl­margir eru enn að glíma við afleið­ingar,“ sagði hún í svari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár