Brynjar: Reykjavík verður ekki ráðstefnuborg án nektarklúbba

„Hvaða for­dómar eru þetta gegn nekt­ar­klúbbum?“ spyr Brynjar Níelsson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­list­nefndar Alþingis.

Brynjar: Reykjavík verður ekki ráðstefnuborg án nektarklúbba

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, segir að Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra sé með for­dóma gagn­vart nekt­ar­dans­stöðum. Það þýði lítið að gera Reykja­vík að ráð­stefnu­borg ef ekki fái að þríf­ast spila­víti og nekt­ar­klúbbar í borg­inni.

Tilefni þess­ara orða er gagn­rýni Bjartar á mál­flutn­ing Gunnars Birg­is­sonar, bæj­ar­stjóra í Fjalla­byggð um leyf­is­veit­ingar og fisk­eldi í sjó. „Ég myndi til að mynda ekki leyfa nekt­ar­klúbba hvort sem væri í 101 Reykja­vík, Kópavogi eða í upp­sveitum Árnes­sýslu hvar ég ólst upp. Hitt ætti að vera kapps­mál fyrir alla, sama hvar þeir búa á land­inu. Að vernda líf­ríki og ein­staka nátt­úru lands­ins,“ skrif­aði Björt á Facebook.

„Hvaða for­dómar eru þetta gegn nekt­ar­klúbbum, Björt?“ svarar Brynjar. „Í öllum betri bæjum eru nekt­ar­klúbbar, Björt. Þýðir ekk­ert að reyna að gera Reykja­vík að ráð­stefnu­borg ef engir eru nekt­ar­klúbbar og spila­víti.“ 

Áður hefur Brynjar gagn­rýnt harð­lega bann við nekt­ar­dansi. Þá vakti athygli þegar Brynjar, skömmu eftir að hafa sest á þing, gagn­rýndi lög­reglu fyrir að hafa hand­tekið vændis­kaup­endur og aðstand­endur kampa­víns­klúbbs­ins Strawberries. „Meðan lög­reglan er bundin við að hlera þessa kyn­lífsiðk­endur og hand­taka í stórum stíl situr hún aðgerð­ar­laus þegar stolið höf­und­ar­varið efni er sett á netið og halað þar niður af fjölda manns,“ skrif­aði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár