Brynjar: Fólk sem á bíl getur ekki verið fátækt

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, blandar sér í umræð­una um veg­tolla og segir að fólk sem keyrir um á bíl geti ekki talist fátækt.

Brynjar: Fólk sem á bíl getur ekki verið fátækt

Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, telur að eig­endur bif­reiða geti ekki talist fátækir. 

Þetta kemur fram í umræðum sem Brynjar tekur þátt í á Facebook, en til­efnið er gagn­rýni Sigurðar Hólm Gunn­ars­sonar, iðju­þjálfa og for­stöðu­manns á skamm­tíma­heim­ili fyrir ung­linga í Reykja­vík, á áform sam­göngu­ráð­herra um að leggja veg­tolla á öku­menn. „Þegar sam­göngu­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins leggur til skatta­hækkun á lands­menn (sem hann kallar vega­tolla) er það auð­vitað FLATUR skattur. Skattur sem leggst jafnt á ríka sem fátæka,“ skrifar Sigurður. 

Brynjar bregst við með þeim orðum að fátækir geti hvorki átt bíl né rekið. „Þú ert ekki fátækur ef þú átt bíl og getur rekið hann,“ skrifar Brynjar og segir málið snú­ast um skil­grein­ingu á fátækt. „Ríkur maður getur ákveðið að eiga ekki bíl. En sá sem ákveður að eyða fé sínu í bíl getur ekki talist fátækur.“ 

Athygli vakti í fyrra þegar Brynjar hædd­ist að hug­myndum um að tann­lækn­ingar og sál­fræði­þjón­usta yrði aðgengi­leg öllum lands­mönnum óháð efna­hag. Sagði Brynjar að Píratar vildu að iðju­leys­ingjar gætu „setið heima við tölv­una á borg­ara­launum, legið í sóf­anum hjá sál­fræð­ingum dag­inn út og inn og látið hvítta tenn­urnar, allt í boði skatt­greið­enda“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár