„Brjálæðingur“ verði forseti: Trump gengur lengra eftir skotárás

Donald Trump virð­ist vilja refsa fólki fyrir að til­kynna ekki grun­sam­legt atferli, lokar á Washington Post og ýjar að því að Obama sé hlynntur hryðju­verka­mönnum.

„Brjálæðingur“ verði forseti: Trump gengur lengra eftir skotárás
Donald Trump Verður for­seti Banda­ríkj­anna ef hann sigrar í for­seta­kosn­ing­unum 8. nóv­em­ber næst­kom­andi. Hillary Clinton verður vænt­an­lega and­stæð­ingur hans. Mynd: Shutterstock

Donald Trump, for­seta­fram­bjóð­andi Repúblik­ana flokks­ins, gengur nú enn lengra í hug­myndum sínum um að mis­muna fólki eftir trú­ar­brögðum vegna hryðju­verkaógn­ar­innar í til­efni af skotárás í Orlando þar sem um 50 manns voru myrtir á næt­ur­klúbbi fyrir sam­kyn­hneigða.

Eftir árás­ina þakk­aði Trump þeim sem sögðu hann hafa haft rétt fyrir sér með áformum um að banna ferðir múslima til Banda­ríkj­anna, þar sem árás­armað­ur­inn í Orlando var múslimi. Árás­armað­ur­inn var hins vegar fæddur í Banda­ríkj­unum.

„Ógnvekjandi“ ræða „brjálæðings“

Í dag hélt Trump ræðu þar sem hann skor­aði á þingið að reyna að standa í vegi fyrir lokun landamær­anna gagn­vart múslimum, ýjaði að því að Barack Obama væri hlynntur íslamískum hryðju­verka­mönnum, kall­aði eftir afsögn for­set­ans og sagð­ist vilja refsa fólki sem til­kynnti ekki um grun­sam­legt atferli.

Trump var­aði aftur við múslimum og boð­aði lokun landamær­anna gagn­vart þeim. „Við þurfum líka að segja sann­leik­ann um hvernig öfga­fullt íslam er að koma að ströndum okkar. Og það kemur, með þessu fólki kemur það. Við erum að flytja rót­tæka íslamska hryðju­verka­menn í vestrið með mis­heppn­uðu inn­flytj­enda­kerfi og með leyni­þjón­ustu sem for­set­inn heldur aftur af,“ sagði Trump í dag.

Hann sagði van­hæfni vera ríkj­andi við stjórn Banda­ríkj­anna, en að ef hann yrði kos­inn, yrði and­stæða van­hæfni að veru­leika. „Við verðum að stjórna landa­mær­unum okkar. Við verðum að stjórna þeim núna, ekki seinna, núna.“

Vef­mið­ill­inn The Huffington Post kallar Trump „brjál­æð­ing“ í for­síðu­fyr­i­s­ögn, segir ræðu hans ógn­vekj­andi og segir hann ala á ótta vegna flótta­manna­krís­unnar.

Ræða Trumps í heild sinni. Hana má lesa á síðu Trumps hér.

Útilokar hluta heimsins

„Ég vil þá ekki í land­inu okkar,“ sagði Trump í ræðu sinni í Anselm-skól­anum í New Hamps­hire í dag. „Ég mun stöðva inn­flutn­ing fólks frá svæðum heims­ins þar sem er stað­fest saga hryðju­verka gegn Banda­ríkj­unum, Evrópu og banda­mönnum okkar, þar til við skiljum fylli­lega hvernig megi binda enda á þessar ógnir.“

„En múslim­arnir þurfa að vinna með okkur.“

Trump vill refsa almennum borg­urum fyrir að til­kynna ekki grun­sam­legt atferli. „Ég vil að allir Banda­ríkja­menn njóti vel­gengni, líka múslimar. En múslim­arnir þurfa að vinna með okkur. Þeir verða að vinna með okkur. Þeir vita hvað er að ger­ast. Þeir vita að hann var vondur. Þeir vissu að fólkið í San Bern­ar­dino [þar sem önnur árás fór fram] væri vont. En vitið þið hvað? Þau vís­uðu ekki á það.“

Nágrannar hjón­anna í San Bern­ar­dino í Suður-Kali­forníu, sem  myrtu 14 og særðu 22 í des­em­ber í fyrra, lýstu þeim hins vegar sem „rólegu, trú­uðu fólki sem vöktu ekki athygli eða grun­semdir“.

Nú segir Trump að þeir sem hafi vitað eitt­hvað en ekk­ert sagt „þurfi að þola afleið­ingar, alvar­legar afleið­ingar“.

Trump hefur áður skorað á fólk að fylgj­ast með nágrönnum sínum og til­kynna þá ef þeir virð­ast grun­sam­legir. „Lík­leg­ast hef­urðu rangt fyrir þér, en það er allt í lagi. Það er besta leiðin. Allir eru lög­regla, á sinn hátt.“

„Allir eru lög­regla, á sinn hátt“

Árás­armað­ur­inn í Orlando fædd­ist árið 1986 í Banda­ríkj­unum, sonur afganskra for­eldra. Á þeim tíma voru Banda­ríkin og Afganistan sam­herjar í bar­átt­unni við Sov­ét­ríkin. 

Forsíða Huffington Post
Forsíða Huffington Post Vef­mið­ill­inn Huffington Post varar við múgsefjun Donalds Trump.

Útilokar Washington Post

Trump til­kynnti í dag að hann myndi svipta Washington Post blaða­mannapassa, þar sem mið­ill­inn væri „falskur og óheið­ar­legur“.

Til­kynn­ingin kom í kjöl­far þess að mið­ill­inn benti á orð Trumps, þar sem hann ýjar að því að Obama hafi ann­ar­legan ásetn­ing gagn­vart íslamískum hryðju­verka­mönnum. „Það er eitt­hvað í gangi,“ sagði Trump meðal ann­ars, en Washington Post fjall­aði um málið undir fyr­ir­sögn­inni „Trump virð­ist tengja Obama for­seta við skotárás­ina í Orlando“.

Aðal­rit­stjóri Washington Post, Marty Baron, segir að ákvörð­unin sé „ekk­ert annað en höfnun á hlut­verki frjálsra og sjálf­stæðra fjöl­miðla“.

Huffington Post, ein vin­sælasta frétta­vef­síða Banda­ríkj­anna, lýkur öllum greinum um Donald Trump á árétt­ingu: „Athuga­semd rit­stjórnar: Donald Trump hvetur reglu­lega til stjórn­mála­legs ofbeldis og er rað­lyg­ari, svæs­inn útlend­inga­hat­ari, kyn­þátta­hat­ari, kven­hat­ari og „birther“ [sá sem efast um að Obama hafi fæðst í Banda­ríkj­unum], sem hefur ítrekað heitið því að úti­loka alla múslima - 1,6 millj­arða manns heilla trú­ar­bragða - frá því að koma til Banda­ríkj­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2016

Bergmálið frá Hitler: Er Trump fasisti?
ErlentForsetakosningar í BNA 2016

Berg­málið frá Hitler: Er Trump fas­isti?

Á dög­unum sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata, úr ræðu­stól á Alþingi að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti væri fas­isti. Óli Björn Kárason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins and­mælti því, og nokkrir aðrir sömu­leiðis. En fleiri hafa velt þessu fyrir sér og ekki aðeins hér á landi. Nýlega birti vef­síðan Slate við­tal sem blaða­mað­ur­inn Isaac Chotiner tók við breska sagn­fræð­ing­inn Richard Evans, þar sem einmitt var fjallað um hvort Trump væri á svip­uðum slóðum og fas­istar eða nas­istar líkt og Adolf Hitler.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár