Donald Trump er orðinn forseti

Donald Trump sór emb­ætt­is­eið sem 45. for­seti Banda­ríkj­anna í skugga fjöl­mennra mót­mæla.

Donald Trump er orðinn forseti
Hefðin Trump og Ivanka hittu Obama og Michelle áður en þeir óku að þing­hús­inu

Fast­eigna­braskar­inn og sjón­varps­þátta­stjórn­and­inn Donald Trump setti banda­rísk stjórn­mál og heims­mynd margra á hlið­ina þegra hann var kjör­inn for­seti síð­asta haust. Nú um klukkan 5 að stað­ar­tíma á Íslandi sver hann svo emb­ætt­is­eið og er þar með orð­inn 45 for­seti Banda­ríkja Norður-Ameríku. Í spil­ar­anum hér að neðan má fylgj­ast með athöfn­inni í beinni útsend­ingu.

Þúsundir stuðn­ings­manna Trumps hafa gert sér ferð til Washington til þess að fylgj­ast með þessum sögu­lega við­burði. Það er hins­vegar vitn­is­burður um hina óvægu kosn­inga­bar­áttum sem Trump háði að 22 þing­menn demókrata hafa lýst því opin­ber­lega yfir að þeir ætli að snið­ganga athöfn­ina. 

Trump sótti kirkju í morgun með fjöl­skyldu sinni og hitti svo, ásamt eig­in­konu sinni Ivönku Trump, frá­far­andi for­seta, Barack Obama ásamt for­seta­frúnni Michelle Obama. Hefð hefur verið fyrir því, frá 1877, að frá­far­andi og vænt­an­legur for­seti hitt­ist í stutt spjall áður en emb­ætt­is­vígslan fer fram. Þeir voru svo sam­ferða í bíl að þing­hús­inu þar sem athöfnin fer nú fram.

Háð
Háð New Yorker gerði grín af sjálf­hverfum talsmáta Trumps í þess­ari skrítlu

Mótmælt og kveikt í jónum

Það eru ekki aðeins stuðn­ings­menn Trumps hóp­ast hafa til Washington í til­efni valda­tök­unnar, en frá því í morgun hafa mót­mæl­endur látið svo dug­lega í sér heyra að jafn­vel hefur komið til átaka milli þeirra og lög­reglu.

Mikil örygg­is­gæsla er í borg­inni og hafa mót­mæl­endur sést með skilti með ýmsum skila­boðum, svo sem „Ekki minn for­seti,“ „Enga Íslamó­fó­bíu“ og „Svört líf skipta máli.“

Fjöldi hópa hafa skipu­lagt að nota inn­vígsl­una til þess að vekja athygli á mál­stað sínum. Meðal þeirra eru sam­tökin DCMJ sem berj­ast fyrir lög­leið­ingu kanna­bis­efna. Notkun kanna­bis er lög­leg í Washington og ætla sam­tökin að dreyfa þús­undum kanna­bis-vind­linga ókeypis til þess að sýna stuðn­ing við algjöra lög­leið­ingu efn­anna.

[Hér má sjá útsendingu Democracy Now, sem meðal annars sýnir frá mótmælunum.]

Rúmlega 10 þús­und ein­stak­lingar stóðu í röð í morgun til þess að ná í vind­ling­ana sína. Nikola Schiller, einn af stofn­endum DCMJ sagði að engin lög­regla hefði verið á svæð­inu. Til stendur að hóp­ur­inn muni svo fylkja liði þangað sem athöfnin fer fram rétt áður en Trump fer með eið­inn. Fjórum mín­útum og tutt­ugu sek­úndum eftir að hann byrjar ræðu sína ætlar hóp­ur­inn svo í heild sinni að kveikja í vind­ling­unum, en talan 420 er oft notuð sem slangur yfir það að koma í kanna­bis­vímu.

Sögulegar óvinsældir

Þrátt fyrir að hafa sigrað for­seta­kosn­ing­arnar á fjölda kjör­manna hlaut Trump tæp­lega 3 millj­ónum færri atkvæði en Hillary og vann hún því kosn­ing­arnar með 2,1% mun. Kjör­manna­kerfið í Banda­ríkj­unum, sem gagn­rýnt hefur verið af mörgum, tryggði hins­vegar Trump sig­ur­inn.

Fyrir þremur dögum mæld­ist hann svo með 44% stuðn­ing almenn­ings, en engum for­seta hefur tek­ist að ná slíkum óvin­sældum áður en hann tekur við emb­ætti. Það tók Obama 18 mán­uði og George W. Bush 4 ½ ár að falla eins mikið í ónáð. Í könnun sem birt­ist í dag var þessi tala komin niður í 42%, en á sama tíma yfir­gefur Obama emb­ættið með 60% stuðn­ing almenn­ings.

Að vanda var Trump snöggur að svara, og not­aði þar sam­skipta­mið­il­inn Twitter. Sagði hann að sömu ein­stak­lingar hefðu staðið að skoð­ana­könn­unum fyrir kosn­ing­arnar og stæðu að könnun á stuðn­ingi almenn­ings. Ekkert væri að marka þessar tölur, þar sem þær væru fals­aðar.

Hefðin hefur verið sú að for­setar hafa notað tím­ann frá því þeir vinna kosn­ing­arnar fram að valda­töku til þess að grafa stríð­saxir og þjappa þjóð­inni saman eftir oft á tíðum erf­iðar kosn­inga­bar­áttur. Trump hefur hins­vegar haldið sama slag áfram og hann var í fyrir kjör­dag. Hann hefur lent í úti­stöðum við tals­menn mann­rétt­inda, Meryl Streep, og Angelu Merkel og Obama, auk þess sem lekið hafa gögn frá rúss­nesku leyni­þjón­ust­unni þess efnis að hann hafi borgað vænd­is­konum fyrir að kasta af sér vatni í rúm sem Obama hafði gist í nokkru áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2016

Bergmálið frá Hitler: Er Trump fasisti?
ErlentForsetakosningar í BNA 2016

Berg­málið frá Hitler: Er Trump fas­isti?

Á dög­unum sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata, úr ræðu­stól á Alþingi að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti væri fas­isti. Óli Björn Kárason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins and­mælti því, og nokkrir aðrir sömu­leiðis. En fleiri hafa velt þessu fyrir sér og ekki aðeins hér á landi. Nýlega birti vef­síðan Slate við­tal sem blaða­mað­ur­inn Isaac Chotiner tók við breska sagn­fræð­ing­inn Richard Evans, þar sem einmitt var fjallað um hvort Trump væri á svip­uðum slóðum og fas­istar eða nas­istar líkt og Adolf Hitler.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár