Aðstoðarmenn Trumps voru í sambandi við rússnesku leyniþjónustuna fyrir forsetakosningarnar

New York Times greinir frá ítrek­uðum sam­skiptum milli með­lima í kosn­ingateymi Donalds Trump og hátt­settra manna í rúss­nesku leyni­þjón­ust­unni árið fyrir banda­rísku for­seta­kosn­ing­arnar.

Aðstoðarmenn Trumps voru í sambandi við rússnesku leyniþjónustuna fyrir forsetakosningarnar
Donald Trump Hefur lýst jákvæðu við­horfi gagn­vart Vladimir Putin Rúss­lands­for­seta. Mynd: Shutterstock

Meðlimir í kosn­ingateymi Donalds Trump áttu í ítrek­uðum sam­skiptum við hátt­setta rúss­neska leyni­þjón­ustu­menn í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum í fyrra. Þetta kemur fram í afhjúpun New York Times.

Banda­rísk lög­gæslu­yf­ir­völd hafa stað­fest­ingar á sam­skipt­unum, bæði sím­tala­skrár og hleruð sím­töl. Sann­an­irnar komu í ljós í rann­sókn á afskiptum Rússa af banda­rísku for­seta­kosn­ing­unum með inn­brotum í tölvu­kerfi lands­nefndar Demókra­ta­flokks­ins.

Gögn úr tölvu­pósti Demókra­ta­flokks­ins voru birt af Wikileaks 22. júlí 2016. Þar á meðal voru 19.252 tölvu­póstar frá æðstu stjórn Demókra­ta­flokks­ins. Meðal ann­ars var um að ræða óform­leg sam­skipti við blaða­menn.

Heima­varna­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna komst að þeirri nið­ur­stöðu 7. októ­ber í fyrra, mán­uði fyrir for­seta­kosn­ing­arnar, að rúss­nesk yfir­völd hefðu staðið að baki tölvu­inn­brot­inu og dreif­ingu gagn­anna í til­raun til að „hafa áhrif á þróun banda­rísku kosn­ing­anna“.

Í umfjöllun New York Times í dag er vitnað til fjög­urra ónafn­greindra núver­andi og fyrr­ver­andi banda­rískra emb­ætt­is­manna. Þeir segja sam­skiptin ekki hafa verið bundin við kosn­ingateymi Trumps, heldur einnig náð til ann­arra sem tengj­ast honum, og sam­skiptin náðu einnig til rúss­neskra emb­ætt­is­manna utan leyni­þjón­ust­unnar. Opin­ber­lega hafa banda­rísk lög­gæslu­yf­ir­völd ekki stað­fest  upp­lýs­ing­arnar.

Banda­ríska alrík­is­lög­reglan rann­sakar nú tengsl milli Donalds Trump og rúss­neskra yfir­valda með til­liti til þess að með­vitað hafi verið höfð áhrif á úrslit banda­rísku for­seta­kosn­ing­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2016

Bergmálið frá Hitler: Er Trump fasisti?
ErlentForsetakosningar í BNA 2016

Berg­málið frá Hitler: Er Trump fas­isti?

Á dög­unum sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata, úr ræðu­stól á Alþingi að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti væri fas­isti. Óli Björn Kárason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins and­mælti því, og nokkrir aðrir sömu­leiðis. En fleiri hafa velt þessu fyrir sér og ekki aðeins hér á landi. Nýlega birti vef­síðan Slate við­tal sem blaða­mað­ur­inn Isaac Chotiner tók við breska sagn­fræð­ing­inn Richard Evans, þar sem einmitt var fjallað um hvort Trump væri á svip­uðum slóðum og fas­istar eða nas­istar líkt og Adolf Hitler.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár