Bergmálið frá Hitler: Er Trump fasisti?

Á dög­unum sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata, úr ræðu­stól á Alþingi að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti væri fas­isti. Óli Björn Kárason þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins and­mælti því, og nokkrir aðrir sömu­leiðis. En fleiri hafa velt þessu fyrir sér og ekki aðeins hér á landi. Nýlega birti vef­síðan Slate við­tal sem blaða­mað­ur­inn Isaac Chotiner tók við breska sagn­fræð­ing­inn Richard Evans, þar sem einmitt var fjallað um hvort Trump væri á svip­uðum slóðum og fas­istar eða nas­istar líkt og Adolf Hitler.

Bergmálið frá Hitler: Er Trump fasisti?
Donald Trump Byggir stuðn­ing sinn meðal ann­ars á því að ala á ótta við minni­hluta­hóp, úti­loka hann, úthrópa fjöl­miðla, nýta sér ósætti kjós­enda við fjár­hags­lega stöðu sína og lofa að tryggja mik­il­feng­leika þjóðar sinnar. Mynd: Shutterstock

Richard Evans er einn helsti sér­fræð­ingur ensku­mæl­andi sagn­fræð­inga um þýska sögu á 19. og 20. öld. Hann hefur til dæmis skrifað róm­aða tríló­gíu um upp­gang og enda­lok nas­ism­ans. Chotiner taldi því ómaks­ins vert að heyra hvort hann heyrði berg­mál frá nas­ism­anum í því bram­bolti sem nú berst frá Banda­ríkjum Trumps. Stundin birtir við­talið í þýð­ingu Illuga Jök­uls­sonar.

Isaac Chotiner:

Hvað seg­irðu um Trump sem leið­toga [eftir þessar fyrstu vikur]? Þá í sam­an­burði við hvernig ýmsir [ein­ræð­is­herrar] hafa byrjað sinn valda­feril?

Richard Evans:

Þegar maður skoðar yfir­lýs­ingar Trumps er ég hræddur um að maður heyri berg­mál [frá þeim] og það er veru­legt áhyggju­efni. Til dæmis hvernig gert er lítið úr minni­hluta­hópum. Hvíta hús Trumps minnt­ist til dæmis ekki á gyð­inga í yfir­lýs­ingu sinni á sér­stökum minn­ing­ar­degi um hel­för­ina. Og það er mjög slæmt því hel­för nas­ista gegn gyð­ingum var ekki aðeins þjóð­ar­morð, hún er alveg ein­stakur atburður því Hitler og nas­istar litu á gyð­inga sem ógn við sjálfa til­veru Þýska­lands. Þeir töl­uðu í efsta ýkju­stigi um gyð­inga. Ef gyð­ingar yrðu ekki drepnir, sögðu nas­istar, myndu þeir eyði­leggja Þýska­land algjör­lega. En aðrir hópar sem nas­istar jað­ar­settu, ofsóttu og drápu – eins og fatl­aðir – voru ein­fald­lega bara fyrir þeim. Ef þú skoðar tungu­málið sem Trump og menn hans hafa brúkað um öfga­fulla ísla­mista, þá er nákvæm­lega sama upp á ten­ingnum: Þeir eru ógn við til­veru Ameríku. Þeir munu sigra, und­ir­oka og eyði­leggja Ameríku. Þetta er mjög ýktur talsmáti og mjög óþægi­legt berg­mál.

Hitler fagnaðAdolf Hitler komst til valda með stuðn­ingi fólks­ins, en jók síðan völd sín með laga­breyt­ingum þar til ein­ræði hafði verið náð.

Trump hefur líka ráð­ist á dóms­kerfið. Hvaða þýð­ingu hefur það og hvaða berg­mál heyrir þú þar?

Ef þú skoðar hvernig Hitler söls­aði undir sig völdin frá [því hann var skip­aður kansl­ari í] jan­úar 1933 og fram á sum­arið, þá gerði hann það með tvennum hætti. Öll leiðin var lög­leg, eða svona hér um bil, og fólst í að hann þrýsti á miklum hraða gegnum þingið lögum sem færðu kansl­ar­anum æðsta laga­setn­ing­ar­valdið. Og meðal þeirra laga sem hann setti voru svo lög um eins­flokk­s­kerfi, bann við stjórn­ar­and­stöðu­blöðum og svo fram­vegis. Og áróð­urs­for­ingi Hitlers, Joseph Goebbels, var nátt­úr­lega ófor­betr­an­legur og þrot­laus lyg­ari. Hann spann upp fréttir. Frjáls­lynda og vinstri pressan réð­ist mjög harka­lega á hann. Þá hót­aði hann að láta loka þeirri pressu, og að lokum gerði hann það [sam­kvæmt hinum nýju lögum], eða öllu heldur tók hana yfir.

Hin leiðin var ofbeldi á götum úti. Það ein­kenndi mjög fas­is­mann og nas­is­mann. Eftir fyrri heims­styrj­öld var fólk orðið vant ofbeldi og vopn­uðum flokkum sem fóru um götur og lumbruðu á and­stæð­ingum sínum. Þetta er aug­ljós­lega ekki í gangi í Banda­ríkj­unum núna. Ég held því að hverjir þeir sem ætla sér að eyði­leggja Banda­ríkin, banda­rískt lýð­ræði og banda­rískar stofn­anir muni nota rík­is­valdið til þess. Þeir munu ekki halda úti sínum einka­herjum. Þarna er munur á.

En ef þú lítur aftur á dóm­stól­ana, þá má þar sjá það athygl­is­verð­asta sem Trump hefur verið að gera. Hann hefur greini­lega fyr­ir­litn­ingu á dóm­stól­unum og lög­unum, og þar má heyra mjög, mjög greini­legt berg­mál frá nas­ism­anum. Dóm­stólar og lög­gæslu­stofn­anir streitt­ust gegn Hitler. Mjög frægt eru rétt­ar­höldin gegn því fólki sem Hitler sak­aði um að hafa brennt þing­húsið í Berlín. Dóm­stól­arnir sýkn­uðu það fólk allt, nema einn mann, og grófu þannig gjör­sam­lega undan full­yrð­ingum Hitlers um að komm­ún­istar hefðu staðið á bak við brun­ann. Hitler fór þá fram­hjá dóm­stól­unum. Hann setti upp annað dóms­kerfi, hina svoköll­uðu sér-dóm­stóla og alþýðu­dóm­stóla. Að lokum létu dóm­stól­arnir í minni pok­ann en alls ekki bar­áttu­laust … Dóm­ar­arnir voru yfir­leitt íhalds­menn [og því and­vígir komm­ún­isma] en þeir báru virð­ingu fyrir lög­unum og stofn­unum lag­anna og fyrir stjórn­ar­skránni.

Donald TrumpHylltur af mann­fjöld­anum í kosn­inga­bar­átt­unni í Warren, Missouri, 4. mars 2016.
Trump mót­mæltMann­fjöldi í Portland, Oregon, mót­mælti 10. nóv­em­ber 2016 eftir að Donald Trump var kjör­inn for­seti.

 

Það er heil­mikið rætt í fjöl­miðlum og meðal fram­fara­sinn­aðs fólks hvort … mað­ur­inn [Trump] sé trúður og klikk­aður og hafi enga stefnu, eða hvort hann sé útspek­úler­aður og kænn og fylgi nákvæmri stjórn­lynd­is­stefnu. Var eitt­hvað svipað rætt um Hitler eftir að hann náði völdum?

„Margir héldu að Hitler væri fífl. Brandari.“

Algjör­lega. Margir héldu að Hitler væri fífl. Brandari. Hann var ekki tek­inn alvar­lega. Eða þá að fólk hélt að hann myndi róast þegar hann væri kom­inn til valda og þyrfti að takast á við þá ábyrgð. Það var mjög algeng trú um Hitler. Það er [þó] mik­ill munur á því hvernig Trump lætur allt vaða án þess að virð­ast hafa á sér nokk­urt taum­hald. Ég held að tví­tin hans séu þannig. Hitler und­ir­bjó [hins vegar] mjög vand­lega allar sínar ræður. Þær virð­ast kannski spuni á staðnum en þær voru vand­lega und­ir­búnar.

Í marga mán­uði hefur allt tal um að Trump myndi vaxa inn í hið nýja hlut­verk sitt reynst rangt. En jafn­vel þeir sem aldrei hafa trúað því hafa í raun mjög mis­mun­andi skoð­anir. Sumir segja: „Hann á ekki eftir að vaxa í emb­ætti af því innst inni er hann fas­isti.“ Aðrir segja hins vegar: „Hann á ekki eftir að vaxa í emb­ætti vegna þess að hann er í raun­inni klikk­aður, og geggjað fólk – sér­stak­lega þegar það eld­ist – breyt­ist ekki.“

Já. Ég held reyndar að það sé hættu­legt að líta á Hitler sem geggj­aðan. Hann var öfga­maður. Mér finnst það vera hálf­gerð flótta­leið að líta á það sem þeir [Trump og Hitler] hafa sagt og gert og afskrifa það bara þannig að þeir séu geggj­aðir.

Adolf HitlerVar ein­stak­lega sjálf­mið­aður leið­togi.

Mér finnst erfitt að líta á Trump sem ógal­inn mann, þótt ég telji Hitler ekki hafa verið geggj­aðan. Þessi tíst hans klukkan þrjú að nóttu um eitt­hvað sem er í sjón­varp­inu, og það hvernig honum er ókleift að skilja hvað honum sjálfum er fyrir bestu.

Já, ég held samt að það sé gagn­legra að nota hug­tök eins og órök­vísi [„irrationality“]. Í því felst [meðal ann­ars] að fara ekki eftir hefðum venju­legs stjórn­mála­lífs. Þannig hegð­aði Hitler sér. Hann stjórn­aði til dæmis ekki með hjálp rík­is­stjórnar. Hann not­aði ekki venju­lega far­vegi rík­is­stjórnar. Hann var með klíku í kringum sig, Goebbels, Hermann Göring og fleiri, heilan hóp hinna helstu nas­ista sem voru í raun­inni hirð­menn hans. Þeir sáu um alla vinn­una. Nokkrum árum eftir að Hitler tók völdin var rík­is­stjórnin alveg hætt að hitt­ast. Svona óform­leg stjórn endar auð­vitað að lokum úti í móa, því hæfnin hætti að skipta máli og öll orkan fór í inn­byrðis sam­keppni nas­ista­for­ingj­anna [um hylli Hitlers]. Það er athygl­is­vert að emb­ætt­is­manna­kerfið streitt­ist ekk­ert að ráði gegn þeim skip­unum sem komu að ofan.

Heldurðu að Hitler hafi verið með réttu ráði alveg fram í lokin?

Já, ég held það reyndar. Þetta er flókin spurn­ing því hann var svoddan leik­ari. Hann varp­aði ímynd sjálfs síns til og yfir almenn­ing. Hann gat líka blekkt sjálfan sig, sér­stak­lega síð­ustu árin, þegar Þjóð­verjar voru greini­lega búnir að tapa stríð­inu. Einhvern veg­inn náði hann að sann­færa sig um að þeir myndu sigra að lokum. Hann hélt því áfram að berj­ast þótt það hefði orðið öllum til góðs, nema kannski honum sjálfum, að leggja niður vopn.

Gat Hitler talað um eitt­hvað annað en sjálfan sig í þokka­lega langan tíma?

Já, hann gat enda­laust masað um gyð­inga!

Þetta er vænt­an­lega kald­hæðni, en [í þessu sam­bandi] þyk­ist ég hafa komið á merki­legan mun [á Hitler og Trump]. Þú varst að bera saman íslam nú og gyð­inga þá. En Trump gæti ekki setið kyrr og talað um íslam í meira en 30 sek­úndur. Hann minn­ist kannski á íslam í ræðu en svo fer hann að tala um sjálfan sig.

Jújú. En Hitler lét reyndar allt fara að snú­ast um sjálfan sig á end­anum. Venjuleg ræða hjá honum byrj­aði á kafla úr ævi­sögu hans sjálfs, sem var að parti til upp­diktuð, þar sem hann var yfir­leitt fátækur og öðru­vísi. Sjálfs­vit­und sína öðl­að­ist hann með því að berj­ast í stríði fyrir Þýska­land, en þá hrundi Þýska­land. En hann end­ur­reisti Þýska­land – og svo fram­vegis. Ef maður skoðar spjall hans yfir borðum eða við hirð sína, sem var skráð niður, þá er allt hans tal sam­heng­is­lítið og hlaupið úr einu í annað en algjör­lega sjálf­hverft. Hann er sífellt að tala um sjálfan sig, eða kveða upp sleggju­dóma um hitt og þetta. Per­sónu­leiki hans var mjög hallur undir þrá­hyggju. Hann tal­aði mikið opin­ber­lega um gyð­inga og hvernig þeir hefðu eyði­lagt Þýska­land og myndu rústa heim­inum nema honum tæk­ist að efla Þýska­land gegn þeim. En [ólíkt Trump] hafði Hitler hins vegar heil­mikla ein­beit­ingu. Hann gat ein­beitt sér að einum hlut í einu.

Ertu von­góður um fram­tíð­ina hér og í Evrópu? Því fólk er að minnsta kosti ekki að drepa hvað annað á göt­unum.

Já, fólk er bara að drepa hvað annað á Twitter í stað­inn. Dóna­skap­ur­inn sem nú við­gengst í opin­berri umræðu er alveg ótrú­legur. Auðvitað end­ur­tekur sagan sig aldrei. Lýðræðið deyr á mis­mun­andi hátt á mis­mun­andi tímum. Fyrri heims­styrj­öldin hafði afskap­lega rudda­leg áhrif á fólk um alla Evrópu. Her­mennsku­hugsun jókst. Það var ekki hægt að fara út á götu án þess að sjá hópa af ein­kenn­is­klæddum rusta­mennum að berja hver á öðrum. Slíkt er bara ekki ein­kenni á okkar tímum. Ég held að seinni heims­styrj­öldin hafi læknað vest­ræn ríki af þeirri teg­und ofbeldi. En það varð hrun. Banda­ríkin eru klofin í herðar niður. Bretland er klofið. Það eru djúpar gjár í póli­tísku og félags­legu lífi í mörgum Evr­ópu­ríkjum og þannig séð er margt sam­eig­in­legt [með okkar tímum og upp­gangi fas­ism­ans].

Og eitt áhyggju­efni er allt eitrið í póli­tískri og opin­berri umræðu, enda­lausar lygar og móðg­anir. Það er mjög keim­líkt ástand­inu í Þýska­landi á fjórða ára­tugnum. Þegar ég var vitni í rétt­ar­höldum [sem sner­ust um breska sagn­fræð­ing­inn David Irving sem gert hefur lítið úr glæpum Hitlers og þýskra nas­ista] þá fékk ég heilan poka af rudda­legum hót­un­ar­bréfum. Ég stakk þeim bara niður í kassa. En nú er allt slíkt birt um leið á Twitter og heima­síðum og Facebook. Opinber umræða er orðin ban­eitruð og það sama má segja um allar þær öfgar, lygar, móðg­anir og útúr­snún­inga sem óðu uppi í Þýska­landi fyrir valda­töku nas­ista.

Ef þú lítur til Evrópu nú, hve böl­sýnn ertu?

Ég tel að nú sé ögur­stund og eigi að veru­legu leyti rót að rekja til efna­hags­vand­ræð­anna sem hófust 2008. Síðan hefur fjöldi fólks þá til­finn­ingu að það hafi verið skilið útundan í alþjóða­væð­ing­unni og síst hafi dregið úr félags­legum eða efna­hags­legum ójöfn­uði. Ég held að ein helsta lexía Evr­ópu­sög­unnar á 19. öld sé sú að besta trygg­ingin fyrir friði og vel­sæld sé alþjóða­sam­vinna. [Í kjöl­far Napól­e­ons­styrj­ald­anna] komst á sú sam­vinna helstu ríkja [sem kennd hefur verið við þingið í Vín­ar­borg] og í lok 20. aldar var það Evr­ópu­sam­bandið. Ég held að það sé stór­slys að Bretland hafi kosið að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið og það á tíma þegar alveg óút­reikn­an­leg rík­is­stjórn er í Washington og engin trygg­ing fyrir því að hún muni á nokkurn hátt vernda eða styðja hags­muni okkar [Breta] og tíma þegar Banda­ríkin eru í reynd að stíga niður úr stöðu sinni sem leið­togi hins frjálsa heims.

Og raunar ekki aðeins stíga niður, heldur virð­ist um leið umhugað um að grafa undan hug­mynd­inni um Evrópu.

Já, Banda­ríkin gefa nú skít í alþjóða­samn­inga og stofn­anir rétt eins og Hitler sagði Þjóð­verja úr Þjóða­banda­lag­inu 1933. Ég held að nú séu hættu­legir tímar fyrir Bretland og algjört glapræði að ganga úr ESB. Það þarf að styrkja Evr­ópu­sam­bandið, ekki veikja það.

Takk fyrir spjallið. Þetta eru ekki ákjós­an­legir tímar til að ræða um.

 

Ekki bein­línis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakosningar í BNA 2016

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár