Björt fjarverandi og Óttarr veit ekki hvað stendur til

Bæj­ar­stjórnin í Reykja­nesbæ vill að starf­semi kís­il­verk­smiðju United Silicon verði stöðvuð strax vegna arsenik­meng­unar. **Björt Ólafs­dóttir´´ umhverf­is­ráð­herra afboð­aði sig í óund­ir­bú­inn fyr­ir­spurn­ar­tíma þar sem til stóð að spyrja hana um málið.

Björt fjarverandi og Óttarr veit ekki hvað stendur til

Björt Ólafs­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, var gagn­rýnd harð­lega í umræðum á Alþingi rétt í þessu fyrir að hafa afboðað sig með skömmum fyr­ir­vara í óund­ir­bú­inn fyr­ir­spurn­ar­tíma. 

„Nú er það svo að hæst­virtur umhverfis- og auð­linda­ráð­herra var á dag­skránni en svo ber­ast okkur þær upp­lýs­ingar hér fyrir hádegi að hún verði ekki til svara,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna. Benti hún á að ráð­herr­ann stæði í eld­lín­unni þessa dag­ana í ljósi þess að bæj­ar­stjórnin í Reykja­nesbæ hefði kallað eftir því starf­semi kís­il­verk­smiðju United Silicon yrði stöðvuð vegna arsenik­meng­unar. 

Aðrir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unar undir með Svandísi. Birgitta Jóns­dóttir, þing­kona Pírata, spurði Óttar Proppé, for­mann Bjartrar fram­tíðar, um málið. Hann sagð­ist ekki vita hver afstaða umhverf­is­ráð­herra væri eða hvað stæði til að gera. Birgitta furð­aði sig á þessu og velti fyrir sér hvort málið hefði ekki verið tekið fyrir á þing­flokks­fundi hjá Bjartri fram­tíð skömmu áður en þing­fundur hófst. Óttarr sagð­ist ekki vilja tjá sig um hvað fram færi á lok­uðum þing­flokks­fundi Bjartrar fram­tíðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár