Bjarni: Getur vel verið að Trump ætli að vinna gegn loftslagsbreytingum

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra kemur Donald Trump ítrekað til varnar, nú vegna ákvörð­unar for­set­ans um að segja Banda­ríkin úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu.

Bjarni: Getur vel verið að Trump ætli að vinna gegn loftslagsbreytingum

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir að það geti vel verið að rík­is­stjórn Donalds Trump sé með áform um að vinna gegn lofts­lags­breyt­ing­unum þótt Banda­ríkin ætli ekki að taka þátt í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. Þetta kom fram í stuttu við­tali við for­sæt­is­ráð­herra í kvöld­fréttum RÚV. 

„Það er eitt að menn ætli ekki að taka þátt í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu, ekki að und­ir­gang­ast þær skuld­bind­ingar sem þar eru. Annað er hvað menn ætla að gera í lofts­lags­málum almennt,“ sagði Bjarni og bætti við: „Það getur vel verið að rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna sé með áform, þó þeir séu ekki til­búnir til að und­ir­gang­ast Par­ís­ar­sátt­mál­ann, um að ná árangri.“ 

Í gær sendu for­sæt­is­ráð­herrar Norð­ur­land­anna, þar á meðal Bjarni, Donald Trump Banda­ríkja­for­seta sam­eig­in­legt bréf þar sem hann er hvattur til að standa við Par­ís­ar­sam­komu­lagið í loft­lags­málum sem leið­togar heims sam­ein­uð­ust um í París í des­em­ber árið 2015. Í bréf­inu er lögð áhersla á mik­il­vægi þess að draga úr áhrifum loft­lags­breyt­inga og er for­set­inn hvattur til að vera leið­andi í þeirri veg­ferð.

Ummæli Bjarna í kvöld­fréttum RÚV eru tals­vert frá­brugðin við­brögðum ann­arra þjóð­ar­leið­toga, svo sem for­seta Frakk­lands og kansl­ara Þýska­lands, sem harmað hafa ákvörðun Trumps og farið stórum orðum um málið.  

Svandís Svav­ars­dóttir

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, gagn­rýnir for­sæt­is­ráð­herra harð­lega í færslu á Facebook.

„Furðu­legt að heyra í for­sæt­is­ráð­herra Íslands um að Trump hafi ákveðið að draga Banda­ríkin út úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. "Jú, sjá­iði til að það getur vel verið að Banda­ríkin séu með áform um eigin aðgerðir í lofts­lags­málum." Ha? Getur það vel verið? Þetta eru for­kast­an­leg við­brögð. Á meðan for­ystu­fólk um víða ver­öld und­ir­strikar alvar­leika máls­ins og for­dæmir ákvörðun Trumps ein­kenn­ast við­brögð Bjarna af léttúð. Skammar­legt,“ skrifar hún. 

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem for­sæt­is­ráð­herra kemur Donald Trump til varnar eða talar á jákvæðum nótum um for­set­ann.

Í jan­úar sagði Bjarni Bene­dikts­son í við­tali við RÚV að hann teldi að emb­ætt­is­taka Trumps gæti haft „ágæt áhrif á sam­skipti Íslands og Banda­ríkj­anna“.

Í við­tali í Silfri Egils í byrjun febr­úar sagð­ist hann svo telja að umræðun um Donald Trump væri ekki að öllu leyti sann­gjörn og of snemmt væri að fella stóra dóma um stefnu hans. „Mér finnst ekk­ert að því í sjálfu sér að það komi fram á sjón­ar­sviðið af og til ein­stak­lingar sem eru ekki alveg steyptir úr sama mót­inu og allir fyr­ir­renn­arar,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Skömmu seinna tjáði Bjarni sig um Donald Trump á fundi sam­tak­anna Varð­bergs í Norræna hús­inu og árétt­aði þá skoðun sína að ekki væri tíma­bært að fella stóra dóma yfir for­seta­tíð eða for­seta­stefnu hins nýja for­seta. Um lýð­ræð­is­lega nið­ur­stöðu væri að ræða og Trump hefði tek­ist að höfða til hins vinn­andi manns. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár