Forseta Namibíu misboðið: Vill reka ráðherrana sem þáðu mútur Samherja

Hage Geinbog, for­seti Namibíu mun vera nóg boðið vegna ásak­ana um mútu­þægni tveggja ráð­herra sinna og hyggst víkja þeim úr rík­is­stjórn­inni.

Forseta Namibíu misboðið: Vill reka ráðherrana sem þáðu mútur Samherja
Verður vikið úr emb­ættum Forseti Namibíu, Hage Geingob, hyggst reka þá Sacky Shang­hala dóms­mála­ráð­herra og Bern­hardt Esau sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra úr rík­is­stjórn sinni vegna mútu­þægni þeirra.

Forseti Namibíu hyggst víkja sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­anum Bern­hardt Esau og dóms­mála­ráð­herr­anum Sacky Shang­hala úr rík­is­stjórn­inni vegna tengsla þeirra við mútu­greiðslur Samherja sem Stundin greindi frá í gær ásamt Kveik, sam­kvæmt Namibian Sun. 

Þar er greint frá því að for­seti lands­ins, Hage Geingob, telji að ráð­herr­arnir tveir verði að víkja, hvort sem þeir verða reknir úr rík­is­stjórn­inni eða með ein­hvers konar til­færslum. Samkvæmt heim­ildum blaðs­ins er for­set­anum nóg boðið vegna ásak­ana í garð ráð­herr­anna tveggja og hefur tekið ákvörðun. 

Ítrekað var fjallað um mútu­þægni þeirra í Stund­inni og Kveik í gær, auk þess sem fjallað var um málið á for­síðu The Namibian í morgun. Umfjöll­unin er unnin í sam­starfi við Al Jazeera og Wikileaks. 

Dóms­mála­ráð­herr­ann Shangala þáði mútur frá Samherja og félögum þess. Tengda­sonur sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans, Tamson „Fitty“ Hatuikulipi, þáði einnig mútur. Fyrr­ver­andi starfs­maður Samherja, Jóhannes Stef­áns­son, hefur einnig greint frá því að Tamson hafði milli­göngu um að Bernhard Esau fengi 18 millj­ónir í reiðufé. Allt var þetta gert til þess að tryggja Samherja hesta­makríl­kvóta við strendur Namibíu.

Tálbeituaðgerð Al Jazeera

Al Jazeera hefur und­an­farið unnið að tál­beitu­að­gerð í Namibíu, þar sem Bernhard Esau sam­þykkti að útvega ódýran sjó­frystikvóta gegn greiðslu og bauð ráð við að kom­ast hjá skatta­greiðslum. Upptakan var fyrst birt í Kveik í gær­kvöldi.

Í tvígang hafn­aði hann beiðni Kveiks um við­brögð, en ræddi við frétta­menn Kveiks á ráð­stefnu í Noregi. Þar hafn­aði hann því alfarið að haft vit­neskju um mútu­greiðslur. „Farið að rann­saka eitt­hvað annað,“ sagði hann. 

Í fyrstu sagð­ist hann ekki þekkja til for­svars­manna Samherja en við­ur­kenndi síðan að hafa átt fund með Þor­steini Má Bald­vins­syni á búgarði í Namibíu. 

Funduðu Bern­hardt Esau á fundi með Þor­steini Má á búgarði í Nambíu.

Aðalsteinn skellti á

Í við­tali við Stundina lýsti Jóhannes, sem ákvað að stíga fram og ljóstra upp um vafa­sama við­skipta­hætti Samherja í Namibíu, því þegar Samherji var að hefja veiðar í Namibíu árið 2012. Greindi hann frá því að þegar Tamson „Fitty“ Hatuikulipi fór fram á greiðslur til sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ann hefði hann  hringt í Aðal­stein Helgason, fram­kvæmda­stjóra Kötlu Seafood, sem var hans næsti yfir­maður.

„Ég hringdi í Aðal­stein og sagði honum að það hafi komið ósk um að borga sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­anum 500 þús­und Namib­íu­doll­ara,“ sagði Jóhannes, en það eru tæp­lega 10 millj­ónir íslenskra króna. „Þá sagði Aðal­steinn við mig að alltaf þegar gæf­ist tæki­færi til að borga sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra þá ætti ég að borga sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, hann orð­aði þetta ein­hvern veg­inn svona. Ég tók þetta út í pen­ingum og lét Tamson hafa þetta. Tamson var milli­liður í þessu. Ég gerði þetta tvisvar,“ segir Jóhannes, en alls námu greiðsl­urnar um 18 millj­ónir króna. 

Aðal­steinn sagði í sam­tali við Stundina að þetta væru „lygar“ án þess að útskýra það nánar. Aðal­steinn sem er sjö­tugur, hætti að vinna fyrir þremur árum síðan og kemur marg­ít­rekað fyrir í gögnum máls­ins, hafn­aði því að svara fyrir aðkomu sína á þeim for­sendum að hann væri „bara gam­all maður“ og vildi vera í friði. „Vanda­málið er að ég þarf ekki að ræða við þig. Hvað gerum við þá?“ sagði Aðal­steinn, og sam­tal­inu lauk þegar hann skellti á blaða­mann. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár