Skuldir heimilanna vaxa umfram tekjur

Fjórð­ungur af öllum skuldum heim­il­anna er nú óverð­tryggður, sam­kvæmt nýju riti Seðla­bank­ans. Búist er við vægum efna­hags­sam­drætti á árinu, en fjár­mála­kerfið sagt þola áföll.

Skuldir heimilanna vaxa umfram tekjur
Seðla­bank­inn Áhrifin af sam­drætti í ferða­þjón­ustu hafa verið væg­ari en búist var við. Mynd: Davíð Þór

Skuldir heim­il­anna hafa hækkað sem hlut­fall af ráð­stöf­un­ar­tekjum, í fyrsta sinn frá árinu 2010. Þetta kemur fram í nýju riti Seðla­bank­ans, Fjár­mála­stöð­ug­leika, sem birt var í dag.

Í rit­inu kemur fram að þó tölu­verð óvissa ríki um efna­hags­horfur næstu miss­erin sé von á bjart­ari tíð á næsta ári. Líklega verði vægur efna­hags­sam­dráttur á þessu ári, en áföll í ferða­þjón­ustu muni hafa minni áhrif á þjóð­ar­bú­skap­inn en búist var við. Þá sé ólík­legt að nýleg áföll muni ógna fjár­mála­stöð­ug­leika, að því gefnu að alþjóð­legar efna­hags­horfur versni ekki mikið og fjár­mála­fyr­ir­tækin varð­veiti við­náms­þrótt sinn.

Samkvæmt rit­inu námu skuldir heim­il­anna 76 pró­sent af lands­fram­leiðslu í lok júní. Hlut­fallið hækk­aði um rúma eina pró­sentu und­an­farið ár eftir að hafa nán­ast staðið í stað frá árinu 2016. Er það rekið til hæg­ari vaxtar lands­fram­leiðslu und­an­farið. Þá kemur fram að íbúða­skuldir heim­il­anna hafi auk­ist, en aðrar skuldir heim­il­anna hafi verið greiddar niður á móti.

„Staða heim­il­anna hefur styrkst veru­lega á liðnum árum og er mjög góð í sögu­legu sam­hengi,“ segir í rit­inu. „Að öðru óbreyttu munu lækk­andi skamm­tíma­vextir létta greiðslu­byrði miðlist þeir út í útlána­vexti og draga úr líkum á van­skilum í náinni fram­tíð. Heimilin ættu því að vera vel undir það búin að takast á við minni vöxt ráð­stöf­un­ar­tekna, sér­stak­lega ef atvinnu­leysi eykst ekki mikið.“

Hins vegar hafa skuldir heim­il­anna sem hlut­fall af ráð­stöf­un­ar­tekjum hækkað milli áranna 2017 og 2018, en þær höfðu lækkað í þeim skiln­ingi stöðugt frá árinu 2010 til 2017, að hluta til vegna auk­inna ráð­stöf­un­ar­tekna. „Á fyrstu átta mán­uðum árs­ins var hlut­fall óverð­tryggðra útlána um 76% af hreinum nýjum lánum heim­il­anna sam­an­borið við 67% á árinu 2018. Þessi þróun hefur leitt til þess að nú er um fjórð­ungur af öllum skuldum heim­il­anna óverð­tryggður. Um 40% af nýjum lánum heim­il­anna voru veitt af líf­eyr­is­sjóð­unum á fyrstu átta mán­uðum árs­ins sem er nán­ast sama hlut­fall og á sama tíma fyrir ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár