Ferðin frá höfði inn í fegurðina

Þegar krakkar gleyma sér í dans dregur frá sólu, þau baða sig í geisl­unum og sleppa sér. Þetta segir dans­skóla­stýran Brynja Péturs sem hefur trölla­trú á því að dans­inn geti læknað flest mein. Sjálf hefur hún dansað sig frá öllu hug­ar­angri allt frá því hún féll fyrir hip-hopi tíunda ára­tug­ar­ins strax í barn­æsku.

Ferðin frá höfði inn í fegurðina
Kolféll fyrir hip hop-i átta ára Þegar Brynja var átta ára komst hún yfir vídjóspól­una Yo! MTV Raps, sþar sem hip hop tíunda ára­tug­ar­ins er í brennid­epli. Hún féll strax fyrir því. Mynd: Heiða Helgadóttir

Meira en fimm hund­ruð börn og ung­menni stunda nám við Dans­skóla Brynju Péturs en um tutt­ugu kenn­arar halda utan um hópana sem dansa á víð og dreif um höf­uð­borg­ina. Flestir kennar­anna byrj­uðu sjálfir að læra að dansa hjá Brynju, þegar hún var að stíga sín fyrstu skref með skól­ann sinn.

„Þetta eru krúttin mín, sem eru orðin stór og farin að gera klikk­aða hluti. Ég er þeirra stærsti aðdá­andi og á ekki til orð yfir það hvað mér finnst þau frá­bær. Ég held það sé ekki til betri til­finn­ing en sú að gefa nem­endum sínum gleði, ham­ingju og líf­sneista í gegnum dans­inn og sjá þau svo gefa sínum nem­endum það sama. Þannig verða alltaf fleiri og fleiri sem fá að njóta gleð­innar,“ segir Brynja. Hún var 19 ára þegar hún ákvað að kýla á að stofna „ein­hvers konar apparat“ utan um dans­inn, sem síðar þró­að­ist út í skól­ann hennar, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár