Biskup um mál séra Ólafs: „Við trúum frásögnum kvennanna“

Siða­reglur kirkj­unnar verða end­ur­skoð­aðar eftir að fimm konur lýstu kyn­ferð­is­brotum Ólafs Jóhanns­sonar, sókn­ar­prests í Grens­ás­kirkju. Biskup fund­aði með kon­unum.

Biskup um mál séra Ólafs: „Við trúum frásögnum kvennanna“
Biskup Íslands Agnes Sig­urð­ar­dóttir biskup átti fund með kon­unum fimm. Mynd: Pressphotos

Agnes Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, átti fund með kon­unum fimm sem lýstu kyn­ferð­is­legu áreiti, sið­ferð­is­brotum og óásætt­an­legri hegðun séra Ólafs Jóhanns­sonar, fyrr­ver­andi sókn­ar­prests í Grens­ás­kirkju. Áfrýj­un­ar­nefnd úrskurð­ar­mála innan kirkj­unar lauk mál­inu í fyrra og komst að þeirri nið­ur­stöðu að Ólafur hefði brotið sið­ferð­is­lega á tveimur kon­unum. Var hann leystur frá emb­ætti með því að emb­ætti hans var lagt niður í vor.

Biskup og vígslu­bisk­up­arnir í Skál­holti og á Hólum hafa nú sent þolend­unum und­ir­rit­aða yfir­lýs­ingu vegna máls­ins. „Það er óásætt­an­legt að prest­ur­inn hafi brotið sið­ferði­lega á kon­unum meðan hann var þjón­andi prestur í Þjóð­kirkj­unni og í sam­skiptum við þær,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „Það er einnig sárt að þolendum hefur þótt skorta á að hlustað hafi verið á þær eða ekki fylgst með líðan þeirra af hálfu yfir­stjórnar kirkj­unnar á þeirri leið sem þær þurftu að ganga.“

Segir í bréf­inu að kirkj­unni beri að draga lær­dóm af þessum atvikum og leggja sig fram um að laga þá ágalla sem komið hafa fram í ferli máls­ins. Þá verði siða­reglur end­ur­skoð­aðar, for­varnir efldar og starfs­fólk verði með­vit­að­ara um ein­kenni eða vís­bend­ingar um kyn­ferð­is­brot. Kirkjan eigi að vera öruggur staður að sækja og starfa innan.

„Við trúum frá­sögnum kvenn­anna og teljum ólíð­andi að per­sónu­leg mörk hafi ekki verið virt, þar með virð­ing fyrir til­finn­ingum og einka­lífi þeirra,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „Okkur þykir afar sárt að kon­urnar, sem komu fram, hafi þurft að ganga í gegnum þá eldraun að verja sín eigin mörk og sið­ferð­is­kennd á opin­berum vett­vangi með kærum og öðrum opin­berum hætti. Per­sónu­leg mörk eiga með réttu að vera tryggð í siða­reglum Þjóð­kirkj­unnar og með skýrum reglum um við­brögð við sið­ferðis- og aga­brotum þeirra sem starfa í kirkj­unni. Teljum við rétt að farið verði yfir þær siða­reglur og þær bættar í ljósi þess­ara sið­ferð­is­brota.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár