Financial Times skorar á þýsku ríkisstjórnina í nýlegum ritstjórnarpistli að leyfa sveigjanlegri ríkisfjármálum að afstýra yfirvofandi kreppu. Þjóðverjar hafa í áraraðir staðið í vegi fyrir breyttum ríkisfjármálareglum sem mundu heimila aukið svigrúm fyrir ríkisskuldir á evrusvæðinu. Afstöðu Þýskalands þarf að setja í samhengi við öflugan iðnað og útflutning. Síaukinn viðskiptaafgangur hefur dregið úr þörf fyrir ríkisskuldir og kjósendur hafa séð strangar ríkisskuldareglur meðal evruþjóða sem tryggingu fyrir því að hver þjóð afli sinna evra sjálf og láti ekki ríkissjóði annara rýra verðmæti evrunnar. Kjósendur vilja ekki „borga brúsa óreiðufólks“ í öðrum ríkjum.
Nú eru ný óveðurský yfir fjórða stærsta hagkerfi heims: Erfiðleikar Deutsche Bank og dvínandi eftirspurn á heimsmörkuðum. Ritstjórn FT sér lausn í innlendri eftirspurn og innviðauppbyggingu sem hefur lengi setið á hakanum. Þjóðverjar eru eftir á í ljósleiðaravæðingu og samgöngukerfi þarfnast viðhalds. Einnig hafa þeir glundrað töluverðu tækniforskoti í iðnaði til Suð-austur Asíu.
Sannleikurinn er sá að evrusvæðið er í miklum vandræðum. Veikleikamerkin sem einkenndu suðurhagkerfin eru að dreifa úr sér. Lágvaxtastefna ECB hefur dregið úr hagnaði bankanna sem voru veikburða fyrir. Skilyrðin fyrir nýjum lánveitingum eru ekki til staðar í flestum evrulöndum; þ.e. vaxandi eigið fé og efnahagsleg heilbrigðismerki hagkerfisins á borð við aukna eftirspurn. Stýrivextir eru neikvæðir, á áður óþekktum slóðum. Danir fá greitt fyrir að taka húsnæðislán.
Án nýrra útlána, með takmarkað svigrúm fyrir frekari stýrivaxtalækkanir og ríkissjóði án útgáfurétts á eigin mynt er erfitt að sjá hvaðan hagvöxtur á að koma á evrusvæðinu. Mario Draghi, fráfarandi seðlabankastjóri ECB, skilur eftir tómt vopnabúr þó hann eigi heiður skilið fyrir að halda evrunni saman. Hann hefur sjálfur haft orð á sjálfskaparvíti ríkisskuldareglanna við undirtektir AGS, þaðan sem arftaki hans Christine Lagarde kemur. Hún mun þurfa stuðning ríkissjóða.
Þjóðverjar finna nú á eigin skinni hvernig það er að geta ekki haldið efnahaginum uppi á útflutningi einum og sér. Vonandi verður það til þess að þeir sem bera mesta ábyrgð á hönnun myntbandalagsins finni fyrir samkennd með þeim sem hafa lengi slygast undan skuldareglunum. Aukin eftirspurn Þjóðverja er góð byrjun og búbót fyrir alla Evrópu.
Athugasemdir