Friður er „hættulegt“ orð í rússneskri borg fyrir kosningar

Íbú­ar Tam­bov ganga að kjör­borð­inu um helg­ina eft­ir mann­skæð­ar dróna­árás­ir Úkraínu. Fram­bjóð­andi Jabloko kall­ar eft­ir friði en á litla mögu­leika gegn Sam­ein­uðu Rússlandi.

Friður er „hættulegt“ orð í rússneskri borg fyrir kosningar
Þægilegt Það stefnir í að flokkur Vladimírs Pútíns forseta, Sameinað Rússland, fái þægilegan meirihluta í þingkosningunum um helgina. Mynd: AFP

Íbúar rússnesku borgarinnar Tambov ganga að kjörborðinu í þingkosningum um helgina, skelfingu lostnir vegna sívaxandi drónaárása Úkraínu og án þess að gera sér nokkrar grillur um að frambjóðandinn sem boðar frið eigi möguleika á sigri.

Við fyrstu sýn virðist allt með kyrrum kjörum í borginni, þar sem um 250 þúsund manns búa, um 500 kílómetra suðaustur af Moskvu. Falleg 19. aldar hús og byggingar frá Sovéttímanum virðast langt frá hernaðarsókn Rússa í Úkraínu, þar sem hundruð þúsunda hafa verið drepin.

„Orðið friður er talið móðgandi, hættulegt.“
Yana Zenkina
32 ára frambjóðandi Jabloko

Kyrrðin var rofin eina júlínótt þegar úkraínskur dróni skall á vöruhúsi netverslunarrisans Wildberries fyrir utan borgina.

Sjö létust og 25 særðust. Í annarri árás mánuði síðar var vöruhúsið gjöreyðilagt, en þar höfðu um fimm þúsund manns starfað. „Þetta er skelfilegt, það er ómögulegt að lýsa með orðum hversu hræðilegt þetta er,“ sagði Diana, 18 ára námsmaður í borginni. …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HW
    Hardy Wardropper skrifaði
    Af hverju heldur fólk að það sé ennþá 1950? Russland var ekki að hóta Ukraine í 2022, en Ukraine, Evrópusambandið og NATO voru svo sannarlega að hóta Russland.
    Hvað ætti Putin að gera? Segja að öll vestræn lönd megi taka yfir Russland, gjörið svo vel, og gera þar það sem ykkur sýnist?
    Maðurinn er að passa landið sitt betur en flest þeirra leiðtoga Evrópulanda. Sjá Þýskaland, Bretland og Frakkland, t.d. ... Það er nefnilega djobbið hans.
    -6
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Sérfræðingar telja að síðustu kosningar sem raunverulegur möguleiki hafi verið að stoppa Putin af hafi verið fyrir uþb 20 árum.
    Það voru því foreldrar þeirra rússnesku hermanna sem deyja núna sem bera meria eða minna ábyrgð á örlögum þeirra.
    Að kjósa einhvern öfgaflokk bara af því að vera óánægður gæti komið niður á manni sjálfum eða afkomendum seinna meir.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Reykjavík yfir landsmeðaltali í PISA en Reykjanesbær undir á öllum sviðum
4
InnlentNiðurstöður PISA

Reykja­vík yf­ir lands­með­al­tali í PISA en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um svið­um

Mennta­mála­ráðu­neyt­ið hef­ur birt nið­ur­brot á nið­ur­stöð­um PISA eft­ir sveit­ar­fé­lög­um. Mun­ur á frammi­stöðu nem­enda í stærstu sveit­ar­fé­lög­um lands­ins minnk­ar þeg­ar tek­ið er til­lit til bak­grunns þeirra. Reykja­vík helst þó yf­ir lands­með­al­tali í vís­ind­um, stærð­fræðilæsi og lesskiln­ingi en Reykja­nes­bær und­ir á öll­um þrem­ur svið­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
2
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár