Friður er „hættulegt“ orð í rússneskri borg fyrir kosningar

Íbúar Tambov ganga að kjör­borðinu um helgina eftir mann­skæðar dróna­árásir Úkraínu. Fram­bjóðandi Jabloko kallar eftir friði en á litla möguleika gegn Sameinuðu Rússlandi.

Þægilegt
Þægilegt Það stefnir í að flokkur Vla­dimírs Pútíns for­seta, Sameinað Rússland, fái þægi­legan meiri­hluta í þing­kosn­ing­unum um helg­ina. Mynd: AFP

Íbúar rússnesku borgarinnar Tambov ganga að kjör­borðinu í þing­kosningum um helgina, skelfingu lostnir vegna sívaxandi dróna­árása Úkraínu og án þess að gera sér nokkrar grillur um að fram­bjóðandinn sem boðar frið eigi möguleika á sigri.

Við fyrstu sýn virðist allt með kyrrum kjörum í borginni, þar sem um 250 þúsund manns búa, um 500 kílómetra suðaustur af Moskvu. Falleg 19. aldar hús og byggingar frá Sovét­tímanum virðast langt frá hernaðar­sókn Rússa í Úkraínu, þar sem hundruð þúsunda hafa verið drepin.

„Orðið friður er talið móðg­andi, hættu­legt.“
Yana Zenkina
32 ára fram­bjóð­andi Jabloko

Kyrrðin var rofin eina júlínótt þegar úkraínskur dróni skall á vöruhúsi netverslunar­risans Wildberries fyrir utan borgina.

Sjö létust og 25 særðust. Í annarri árás mánuði síðar var vöruhúsið gjör­eyðilagt, en þar höfðu um fimm þúsund manns starfað. „Þetta er skelfilegt, það er ómögulegt að …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HW
    Hardy Wardropper skrifaði
    Af hverju heldur fólk að það sé ennþá 1950? Russland var ekki að hóta Ukraine í 2022, en Ukraine, Evrópusambandið og NATO voru svo sannarlega að hóta Russland.
    Hvað ætti Putin að gera? Segja að öll vestræn lönd megi taka yfir Russland, gjörið svo vel, og gera þar það sem ykkur sýnist?
    Maðurinn er að passa landið sitt betur en flest þeirra leiðtoga Evrópulanda. Sjá Þýskaland, Bretland og Frakkland, t.d. ... Það er nefnilega djobbið hans.
    -6
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Sérfræðingar telja að síðustu kosningar sem raunverulegur möguleiki hafi verið að stoppa Putin af hafi verið fyrir uþb 20 árum.
    Það voru því foreldrar þeirra rússnesku hermanna sem deyja núna sem bera meria eða minna ábyrgð á örlögum þeirra.
    Að kjósa einhvern öfgaflokk bara af því að vera óánægður gæti komið niður á manni sjálfum eða afkomendum seinna meir.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár