Einu sinni skrifaði góður maður stutta sögu um að í samningaviðræðum Íslendinga við Evrópusambandið hefðu eyjarskeggjar farið fram á sérstaka undanþágu varðandi lit stjörnunnar sem þeir töldu að bætast ætti í fána sambandsins við inngöngu í það. Samningsaðilarnir frá meginlandinu sættust á það, með sérstöku skilyrði um að litbrigðið yrði ákveðið í Brussel og var fallist á það. Þar var síðan valinn blár litur á stjörnuna.
Nú hefur forseti Bandaríkjanna klætt eyjuna okkar sínum fánalitum ásamt Grænlandi, Kanada og Mexíkó ásamt fleiri litlum eyríkjum. Hatrömmustu andstæðingar Evrópusambandsins hérlendis og miklir sjálfstæðissinnar telja þetta ekkert sérstakt áhyggjuefni, ef marka má fyrstu viðbrögð. Alveg eins og Íslendingum virtist fyrirmunað að sjá fyrir sér annað en forsetinn frækni hefði ávallt meint nágrannana okkar fáu þegar hann ítrekað nefndi Ísland í bland við Grænland á alþjóðavísu. Þá var það talið mismæli í umræðu hérlendis en úti var því velt upp hvort hann ásældist Ísland …


















































Athugasemdir