Banna auglýsingar fyrir vörur sem menga mikið

Aug­lýs­ingar á meng­andi vörum og þjón­ustu verða bann­aðar í bresku borg­inni Bristol á aug­lýs­inga­skiltum í eigu borg­ar­innar. Bannið nær meðal ann­ars til hrað­tísku, jarð­efna­elds­neyt­is­bíla og flug­ferða.

Banna auglýsingar fyrir vörur sem menga mikið
Mengun Bannið er aðeins fyrsta skrefið í frek­ari tak­mörk­unum á aug­lýs­ingum, en Græn­ingjar mynda meiri­hluta í borg­ar­stjórn Bristol ásamt Frjáls­lyndum demókrötum. Mynd: AFP

Borg­ar­yf­ir­völd í bresku borg­inni Bristol hafa bannað aug­lýs­ingar á öllum vörum sem menga mikið og hvetja til óhóf­legrar neyslu, þar á meðal hrað­tísku og far­ar­tækjum sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti. Bannið nær þó aðeins til aug­lýs­inga­skilta og strætó­skýla í eigu borg­ar­innar. Bristol er fyrsta sveit­ar­fé­lagið í Bret­landi sem bannar aug­lýs­ingar af þessu tagi. 

„Guðfeður lofts­lags­glund­roða“
António Guterres, aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna

Bannið nær til fjöl­margra vöru­flokka. Þar á meðal eru hrað­tíska, rafrettur, nikótín­púðar, olíu­vörur og öll far­ar­tæki sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti. Þá nær bannið einnig til ferða­tengdra aug­lýs­inga, eins og flug­ferða og skemmti­sigl­inga.

Græn­ingjar eru með meiri­hluta í borg­inni. Bannið er aðeins fyrsta skrefið í frek­ari tak­mörk­unum á aug­lýs­ingum og fyr­ir­hugað er að leggja síðar fram til­lögur um að bæta fleiri vöru­flokkum við, meðal ann­ars kjöti og mjólk­ur­vörum.

Hvatti til banna

António Guterres, aðal­rit­ari Sam­ein­uðu þjóð­anna, hvatti þjóðir heims árið 2024 til að banna allar aug­lýs­ingar frá olíu-, kola- og gas­fyr­ir­tækjum, á sama hátt og aug­lýs­ingar tóbaks­fyr­ir­tækja hafa verið bann­aðar í mörgum löndum.

Þá hvatti hann einnig fjöl­miðla og fyr­ir­tæki sem eiga og reka sam­fé­lags­miðla til að hætta að taka við fjár­munum vegna aug­lýs­inga frá olíu-, kola- og gas­fyr­ir­tækjum.

Guterres hefur kallað for­svars­menn jarð­efna­elds­neyt­is­iðn­að­ar­ins „guð­feður lofts­lags­glund­roða“ og sakað þá um græn­þvott með dýrum aug­lýs­inga­her­ferðum.

Mengun vegna hraðtísku fer vaxandi

Á hverju ári er hent 92 millj­ónum tonna af fatn­aði. Fyr­ir­tæki á borð við Shein, Temu, H&M og Zara hafa aukið sölu á hrað­tísku­fatn­aði veru­lega. Slíkur fatn­aður er gjarnan fram­leiddur úr ódýrum efnum og end­ist illa.

Evr­ópu­sam­bandið bann­aði nýverið stærstu fata­fyr­ir­tækjum Evrópu að henda, brenna eða eyði­leggja óseldan fatnað, en talið er að hann nemi um 9 pró­sentum af öllum seldum fatn­aði í Evrópu. Fyr­ir­tækin þurfa þess í stað að reyna að selja vör­urnar eða gefa þær til góð­gerð­ar­mála.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár