Ökuþórinn sem varð skattakóngur

Daníel Sig­urðs­son hefur unnið sleitu­laust að því að byggja upp krana­fyr­ir­tækið sitt ásamt því að keppa í rallíi. Með sölu á fyr­ir­tæki sínu varð hann skatta­kóngur Íslands fyrir árið 2025.

Ökuþórinn sem varð skattakóngur
Daníel Sig­urðs­son Daníel hefur keppt í rallýi í ára­tugi og er þessi mynd tekin fyrir tæpum tveimur ára­tugum síðan. Það var Þor­gerður Gunn­ars­dóttir sem tók mynd­ina. Mynd: blog.is

Daníel Sig­urðs­son stofn­aði DS lausnir árið 2002 og hefur unnið jafnt og þétt að upp­bygg­ingu fyr­ir­tæk­is­ins í um ald­ar­fjórð­ung. Hann seldi 70 pró­sent af fyr­ir­tæk­inu til Fagkaupa á síð­asta ári sem skýrir það að hann er tekju­hæsti Íslend­ing­ur­inn í ár. Hann greiddi um millj­arð í skatt og árs­tekjur hans voru 4,3 millj­arðar króna.

Til sam­an­burðar þá er næsti maður á lista yfir þá tekju­hæstu hinn þekkti við­skipta­maður, Sigurður Gísli Pálmason, fjár­festir og fyrrum eig­andi IKEA á Íslandi. Árs­tekjur hans voru rúmum millj­arði lægri en hjá Daníel, eða um 3,2 millj­arðar.

Keppir í rallíi ásamt systur sinni

DS lausnir býður upp á heild­ar­lausnir í krönum, skot­bómu­lyft­urum, raf­stöðvum og flutn­ings­lausnum. Daníel starfar enn hjá DS lausnum þrátt fyrir að hafa selt stærstan hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu.

Þá er hann mik­ill áhuga­maður um mót­or­sport en hann hefur keppt í rallíi hér á landi auk þess sem hann hefur tekið þátt í bresku móta­röð­inni BTRDA frá árinu 2024 ásamt systur sinni, en þau hafa keppt lengi saman í mót­or­sport­inu. Til gam­ans má geta að systir hans, Ásta, er þrettán árum yngri en Daníel og varð bæði yngsti Íslands­meist­ari í rallíi á Íslandi árið 2006 og jafn­framt fyrsta konan sem hamp­aði þeim titli þegar þau systk­inin unnu keppn­ina. Þá var hún aðstoðaröku­maður Daníels. Sama ár var Daníel útnefndur akst­urs­í­þrótta­maður árs­ins.

Daníel á vakt­inniDaníel starfar enn hjá DS lausnum þó hann hafi selt 70 pró­sent fyr­ir­tæk­is­ins.

„Ég hef ekki keypt mér jakkaföt“

Í við­tali við Morg­un­blaðið á síð­asta ári fór Daníel yfir sögu DS lausna þar sem hann sagð­ist hafa verið settur í þá stöðu að þurfa að kaupa bíl­krana eftir hrun. Það hafi undið upp á sig og árið 2016 voru kran­arnir orðnir sextán tals­ins. Þá sagði hann að það hefði verið fyrir til­viljun að fyr­ir­tæki hans fékk umboð fyrir ítalska bygg­inga­krana­fram­leið­and­ann Cattaneo.

Hann sagði rekst­ur­inn hafa stækkað hratt og umbreytt ýmsu í störfum hans. Hann segir í við­tali við Morg­un­blaðið að hann hafi þó náð að halda í sum prinsippin: „Ég hef ekki keypt mér jakka­föt, ekki fjár­fest í gler­bygg­ingu og ekki farið með við­skipta­vini til útlanda,“ sagði hann við það til­efni.

DS Lausnir stækkað hratt

DS lausnir er stöndugt fyr­ir­tæki og hefur verið um ára­bil. Rekstr­ar­tekjur félags­ins á síð­asta ári námu 2.527 millj­ónum króna og hækk­uðu um rétt tæpar 70 millj­ónir króna á milli ára. Hagnaður félags­ins var 581 milljón króna en var 603 millj­ónir árið 2024. Rekstr­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins hafa vaxið gríð­ar­lega hratt á einum ára­tug og farið úr um 730 millj­ónum árið 2015 upp í um tvo og hálfan millj­arð árið 2025. Vöxt­ur­inn er því um 240 pró­sent á þessu tíma­bili.

Daníel sagði í við­tali við Morg­un­blaðið að hrunið hefði haft mikið um fram­tíð fyr­ir­tæk­is­ins að segja. „Í banka­hrun­inu fóru ansi margir við­skipta­vinir okkar á haus­inn, sem og verk­takar sem höfðu þjón­u­stað okkur með til dæmis bíl­krana­þjón­ustu. Þannig þró­að­ist það af hreinni nauð­syn að við urðum að kaupa einn bíl­krana sem síðar urðu tveir og svo sex – og voru þeir orðnir sextán tals­ins árið 2016,“ útskýrði hann. Árið 2016 var tekin ákvörðun um að nota allt umfram­fjár­magn sem varð til í rekstr­inum til að end­ur­nýja og stækka tækja­flot­ann, með strang­ari örygg­is­kröfur og meng­un­ar­staðla í huga. 

Árs­reikn­ingar félags­ins end­ur­spegla þessa þróun en félagið stökk frá því að vera með 736 millj­ónum í rekstr­ar­tekjur árið 2015 upp í tæpan einn og hálfan millj­arð ári síðar.

Keyptu tvö fyrirtæki sama árið

Fagkaup ehf., kaup­andi DS lausna, er í eigu hjón­anna Boga Þórs Sig­urodds­sonar og Lindu Bjarkar Ólafs­dóttur. Þau sjálf eru sterk­efnuð og ítrekað á listum yfir efn­uð­ustu Íslend­ing­ana.

Upphaf vel­gengni hjón­anna er almennt rakið til þess þegar þau keyptu Johan Rönning árið 2003, en það fyr­ir­tæki er nú eitt af fjöl­mörgum fyr­ir­tækjum innan Fag­kaupssam­stæð­unnar. Johan Rönning er þjón­ustu­fyr­ir­tæki í raf­iðn­aði á Íslandi.

Fagkaup hefur verið stór­tækt síð­ustu ár, til að mynda keypti það á síð­asta ári bæði 70 pró­sent í DS lausnum af Daníel, en einnig allt hlutafé í Jóhann Ólafsson & Co sem sér­hæfir sig í þjón­ustu á sölu á ljósa­perum og lýs­ing­ar­bún­aði. Félagið er skil­greint sem fram­sækið fyr­ir­tæki sem veitir virð­is­auk­andi þjón­ustu á iðn­aðar- og bygg­inga­mark­aði undir vöru­merkj­unum Johan Rönning, Áltak, Sindri, Vatn og veitur, S. Guð­jóns­son, Ísleifur, Varma og véla­verk, KH Vinnuföt, Hagblikk og Fossberg.

Rekstrartekjur 27 milljarðar

Rekstur félags­ins er mjög öfl­ugur sam­kvæmt árs­reikn­ingi fyrir síð­asta ár. Rekstr­ar­tekjur félags­ins voru 27 millj­arðar króna, og hækk­uðu um einn og hálfan millj­arð á milli ára. Eigið fé félags­ins var hátt í átta millj­arðar króna en var sjö millj­arðar árið á undan. Félagið er með um 300 heils­árs­störf innan sam­stæð­unnar.

Fagkaup er alfarið í eigu hjón­anna Boga Þórs og Lindu Bjarkar í gegnum félag þeirra AKSO ehf. For­stjóri Fagkaupa er Haraldur Líndal Pét­urs­son sem er í 224. sæti yfir efn­uð­ustu Íslend­ing­ana. Bogi Þór er í 24. sæti og eig­in­kona hans, Linda, er mun neðar á list­anum en hún fer fyrir fjár­fest­inga­fé­lag­inu Tennin ehf. sem sér­hæfir sig í fjár­mögnun á nýsköp­unar- og sprota­verk­efnum.

Heim­ildin hafði sam­band við Daníel sem baðst undan við­tali.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu