Varoufakis: Íslendingar heppnir að standa utan Evrópusambandsins

Yanis Varoufakis kynnt­ist skugga­hliðum Evr­ópu­sam­starfs­ins sem fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands en nú berst hann fyrir rót­tækum breyt­ingum á umgjörð ESB. Stundin spurði Varoufakis um fram­tíð umbóta­stjórn­mála í Evrópu, upp­gang nútíma­fas­isma og efna­hags­vand­ann á evru­svæð­inu. Hann telur að Evrópa hefði farið betur út úr alþjóð­legu fjár­málakrepp­unni ef for­dæmi Íslands hefði verið fylgt í auknum mæli og byrðum velt yfir á kröfu­hafa fremur en skatt­greið­endur.

Varoufakis: Íslendingar heppnir að standa utan Evrópusambandsins
Upp­stokkun á ESB eina lausnin Eina leiðin til að stöðva upp­gang nýfas­ism­ans í Evrópu er að gera rót­tækar breyt­ingar á stofna­naum­gjörð Evr­ópu­sam­bands­ins og evru­sam­starfs­ins. Þetta er mat Yanis Varoufakis sem fékkst til að svara spurn­ingum Stund­ar­innar um fram­tíð vinstri­st­jórn­mála og evru­svæð­is­ins. Mynd: Shutterstock

„Ann­að­hvort lýð­ræð­i­svæðum við Evr­ópu­sam­bandið eða það lið­ast í sundur,“ segir Yanis Varoufakis, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, stofn­andi sam­evr­ópsku stjórn­mála­hreyf­ing­ar­innar DiEM25 og fram­bjóð­andi til Evr­ópu­þings­ins, í við­tali við Stundina. Það er lífs­spurs­mál, segir hann, að evr­ópskir vinstri­menn og umbóta­sinnar nái vopnum sínum á ný og brjóti upp­gang öfga­hægri­flokka á bak aftur.  

„Þetta er stóra áskor­unin. Ógnin kemur ann­ars vegar hægra megin frá, frá rasíska hægr­inu, og hins vegar frá hinni svoköll­uðu miðju, kerf­inu (e. the Esta­bl­is­h­ment) sem klæðir sig í bún­ing frjáls­lyndis en tekur sér æ meira vald til að þvinga fram stefnu sem elur á ójöfn­uði og óánægju og spilar þannig upp í hend­urnar á hægriras­istum.“ 

Við ofurefli að etja

Hag­fræði­pró­fess­or­inn varð á auga­bragði einn umtal­að­asti og umdeild­asti stjórn­mála­maður heims í jan­úar 2015. Eftir að rót­tæki vinstri­flokk­ur­inn Syriza vann kosn­inga­sigur í Grikk­landi kom það í hlut Yanis Varoufakis að semja við Evr­ópu­sam­bandið og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn um lána­skil­mála og efna­hags­lega fram­tíð Grikkja. 

Hagkerfi lands­ins var rjúk­andi rúst. Helm­ingur ungs fólks var án atvinnu, félags­leg vanda­mál grass­er­uðu sem aldrei fyrr og æ fleiri liðu sáran skort. Aðhalds­að­gerð­irnar sem fylgdu björg­un­ar­að­gerðum Evr­ópu­sam­bands­ins og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins höfðu dýpkað krepp­una og lands­fram­leiðsla dreg­ist saman um 25 pró­sent frá 2008 – álíka mikið og í Banda­ríkj­unum á tímum krepp­unnar miklu.

En það var bar­áttu­hugur í almenn­ingi. Kjós­endur höfðu fengið sig fullsadda á und­ir­gefni gömlu valda­flokk­anna við fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins, Seðla­banka Evrópu og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn („þrí­eykið“ svo­kall­aða (e. Troika)) og þann 25. jan­úar 2015 veittu þeir Syriza, undir for­ystu hins unga Alexis Tsipras, óskorað lýð­ræð­is­legt umboð til að skipta um kúrs og hverfa frá svelti­stefn­unni. 

Varoufakis gerði árang­urs­lausar til­raunir til að vinna Evru­hóp­inn – hóp sem sam­anstendur af fjár­mála­ráð­herrum evru­ríkj­anna og full­trúum þrí­eyk­is­ins – á sitt band með því að útskýra, á manna­máli og með vísan til við­tek­inna sjón­ar­miða á sviði þjóð­hag­fræði, að kröfur þrí­eyk­is­ins gætu ekki með nokkru móti gengið upp; afkomu­á­ætl­anir fyrir rík­is­sjóð Grikk­lands væru ger­sam­lega ósam­rým­an­legar því yfir­lýsta mark­miði að Grikkir kæmu hjólum atvinnu­lífs­ins á hreyf­ingu og næðu fram var­an­legum efna­hags­bata til að geta staðið í skilum við kröfu­hafa.

Þegar allt lék í lyndiAlexis Tsipras og Yanis Varoufakis unnu saman í rík­is­stjórn eftir kosn­inga­sigur Syriza. Þegar kom end­an­lega í ljós að kröfur Evru­hóps­ins gagn­vart Grikk­landi voru óhagg­an­legar, Grikk­land þyrfti ann­að­hvort að fram­fylgja svelti­stefnu eða yfir­gefa evru­sam­starfið, sinn­að­ist þeim og Varoufakis sagði af sér.

Þótt Varoufakis sé rót­tækur vinstri­maður var mál­flutn­ingur hans ekk­ert sér­stak­lega rót­tækur. Meg­in­straums­hag­fræð­ingar hvaðanæva úr heim­inum tóku undir með honum, hvöttu til skulda­af­skrifta og að Grikkir fengju svig­rúm til að lífga hag­kerfið við. 

„Það er ekki hægt að kreista og kreista ríki sem eru í miðri kreppu,“ sagði Barack Obama Banda­ríkja­for­seti, aðspurður um vanda Grikk­lands og evru­svæð­is­ins, í við­tali við CNN 5. febr­úar 2015. „Á ein­hverjum tíma­punkti verður að koma til ein­hver hag­vaxt­ar­stra­tegía svo unnt sé að ná niður halla og greiða skuldir.“ Rök­semdir sem þessar máttu sín lít­ils og á end­anum var það póli­tíkin og réttur hins sterka sem réð úrslitum. 

Vissu að aðgerðirnar sköðuðu Grikkland

Samn­ings­staða Grikkja var von­laus og banka­kerfi lands­ins upp á náð og mis­kunn Seðla­banka Evrópu komið. Þótt grískur almenn­ingur hafn­aði kröfum þrí­eyk­is­ins með 60 pró­sentum atkvæða í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu þann 5. júlí 2015 fann Alexis Tsipras sig knú­inn til að lúffa fyrir kröfu­höf­unum og sam­þykkja enn einn lána­pakk­ann, með hertum skil­yrðum, um áfram­hald­andi nið­ur­skurð­ar­stefnu. Hinn kost­ur­inn, að ganga úr evru­sam­starf­inu, var ein­fald­lega tal­inn of áhættu­samur, jafn­vel ávísun á algjöra upp­lausn grísks sam­fé­lags. Yanis Varoufakis sætti sig ekki við þessar mála­lyktir, taldi þær upp­gjöf og svik við kjós­endur og sagði af sér að kröfu Tsipras eftir sex mán­aða ráð­herra­dóm.

Varoufakis hefur ekki setið auðum höndum eftir að hann lét af emb­ætti. Fyrir tveimur árum stofn­aði hann sam­evr­ópsku stjórn­mála­hreyf­ing­una DIEM25 sem berst fyrir rót­tækum breyt­ingum á stofna­naum­gjörð og efna­hags­stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins. Í fyrra gaf hann út bók­ina Adults in the Room þar sem hann lýsir viður­eign sinni við valda­kjarna Evr­ópu­sam­bands­ins. Bókin veitir hroll­vekj­andi inn­sýn í fram­göngu kröfu­hafa gagn­vart Grikk­landi, en frá­sagn­irnar byggja meðal ann­ars á hljóð­upp­tökum af fundum og sam­skiptum Varoufakis við full­trúa þrí­eyk­is­ins. 

Hauk­ur­inn í Evru­hópnumFjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, Wolfgang Schäuble, tal­aði fyrir harka­legri svelti­stefnu og vildi beita stofn­unum ESB gegn vel­ferð­ar­kerfum aðild­ar­ríkj­anna.

Varoufakis lýsir því hvernig Wolfgang Schäuble, fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, við­ur­kenndi í einka­sam­tali að ef hann væri sjálfur í sporum Varoufakis myndi hann ekki gang­ast undir lána­skil­mála þrí­eyk­is­ins, enda ættu aðgerð­irnar eftir að valda grísku þjóð­inni miska. Þá mun Christine Lagarde, fram­kvæmda­stjóri Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins, hafa sagt Varoufakis að efna­hags­for­skriftin sem þrí­eykið fór fram á að Grikkir fylgdu myndi aldrei ganga upp. Hins vegar hefðu ráða­menn lagt of mikið í söl­urnar til að hægt væri að hverfa frá fyrri stefnu.

Ráðandi öfl innan ESB höfðu póli­tíska hags­muni af því að sýna hörku. Þannig mátti kenna öðrum skuld­settum evru­ríkjum lexíu, sýna að óhlýðni gagn­vart kröfu­höfum yrði ekki liðin og að það væri til­gangs­laust fyrir Evr­ópu­þjóðir að kjósa apa­k­etti á borð við Syriza til valda. Eins og banda­ríski hag­fræð­ing­ur­inn Paul Krugman komst að orði í blogg­færslu nokkrum dögum eftir afsögn Varoufakis: „Und­an­farnar vikur hafa leitt í ljós að það að til­heyra evru­sam­starf­inu þýðir að ef þú lætur ekki að stjórn geta kröfu­hafar lagt hag­kerfið þitt í rúst.“ 

Vandræðagemsar, ójafnvægi og hönnunargallar

Þegar skulda­kreppan tröll­reið evru­svæð­inu var sú orð­ræða ráð­andi að Grikkir, Spán­verjar, Portú­galir og Írar hefðu ein­fald­lega eytt um efni fram og þannig stefnt fjár­mála­stöð­ug­leika álf­unnar í voða og komið nær ger­vallri Evrópu í klandur. Með þessu var athygl­inni beint frá þeirri stað­reynd að rætur evru­krepp­unnar lágu að veru­legu leyti í hönn­un­ar­göllum evru­kerf­is­ins sjálfs. 

Allt frá því að grunn­ur­inn var lagður að evru­sam­starf­inu hafði hver hag­fræð­ing­ur­inn á fætur öðrum bent á að það kynni að vera óráð að tjóðra mörg mis­mun­andi hag­kerfi niður við einn og sama gjald­mið­il­inn. Þýski hag­fræð­ing­ur­inn Rüdiger Dornbusch benti á að með inn­leið­ingu evr­unnar væru ríki svipt mögu­leik­anum á að nota geng­is­breyt­ingar sem hag­stjórn­ar­tæki og vinnu­mark­aðnum eft­ir­látið það hlut­verk að gera ríki sam­keppn­is­hæf með til­heyr­andi atvinnu- og fram­leiðslu­missi. Martin Feld­stein og Milton Friedman voru sama sinnis og bentu á að það að láta mörg ólík þjóð­fé­lög und­ir­gang­ast sam­eig­in­lega pen­inga­mála­stefnu og svipta þau sjálf­stæðri stefnu á sviði geng­is­mála gæti kallað á sárs­auka­fulla aðlögun launa og verð­lags, skapað sundr­ungu og kynt undir póli­tískri spennu.

Að sama skapi var umgjörð Seðla­banka Evrópu gagn­rýnd; Robert Solow og Franco Modigl­i­ani bentu á að ofurá­herslan á verð­stöð­ug­leika gæti haldið aftur af hag­vexti og ýtt undir atvinnu­leysi á evru­svæð­inu. Umgjörð evru­sam­starfs­ins vakti líka áleitnar spurn­ingar um fjár­mála­stöð­ug­leika: Seðla­bankar ríkj­anna gegndu ekki lengur hlut­verki lán­veit­anda ríkj­anna til þrauta­vara en um leið var lagt bann við því að hinn sam­evr­ópski seðla­banki lán­aði fé beint til rík­is­sjóða aðild­ar­ríkja ESB. 

Blásið í bólur

Með upp­töku evr­unnar um alda­mótin og auk­inni sam­leitni vaxta á mynt­svæð­inu lækk­uðu raun­vextir gríð­ar­lega í suð­ur­hluta Evrópu. Löndin fengu aðgang að stærri og dýpri fjár­mála­mörk­uðum, áhættu­þóknun tengd geng­is­sveiflum hvarf og lánsfé streymdi til Spánar, Ítalíu, Írlands, Portú­gals og Grikk­lands. Þetta stórjók einka­neyslu og inn­flutn­ing og kynti undir hús­næðis- og eigna­verðs­bólum. Um leið hélst verð­lag og launa­kostn­aður hár og sam­keppn­is­staða útflutn­ings- og sam­keppn­is­greina versn­aði.

Kerfið skap­aði ójafn­vægiVaroufakis hefur tek­ist betur en mörgum að útskýra hönn­un­ar­galla evru­kerf­is­ins á manna­máli.

„Þegar eitt ríki er iðn­vædd­ara en annað og fram­leiðir meira af verð­mætum útflutn­ings­vörum skap­ast ójafn­vægi í milli­ríkja­við­skiptum. Fljót­andi gengi getur haldið ójafn­væg­inu í skefjum. En þegar gengið er njörvað niður til að draga úr óvissu fyr­ir­tækja, hvað þá þegar sam­eig­in­legur gjald­mið­ill er tek­inn upp, þá ger­ist það að bankar fara að kynda undir ójafn­væg­inu, magna upp bæði við­skipta­hall­ann og við­skipta­af­gang­inn,“ útskýrði Varoufakis í ræðu árið 2015

.„Láns­fjár­streymið til landa eins og Grikk­lands var í raun hin hliðin á pen­ingi við­skipta­af­gangs Þýska­lands. Skuldir Grikkja og Íra við þýsk fjár­mála­fyr­ir­tæki við­héldu útflutn­ingi Þjóð­verja til Grikk­lands og Írlands. Þetta er eins og að kaupa bíl af bif­reiða­sala sem lánar þér líka fyrir bílnum svo þú hafir efni á að kaupa hann.“

Hér er mynd­band frá VOX-frétta­veit­unni þar sem evru­kreppan er útskýrð ágæt­lega.

Þýskum bönkum bjargað í nafni samstöðu með Grikklandi

Þetta var víta­hringur og hlaut að enda með ósköpum. Þegar alþjóð­lega fjár­málakreppan skall á skrúf­að­ist fyrir láns­fjár­streymið til Suður-Evrópu. Ójafn­vægið sem hafði byggst upp í milli­ríkja­við­skiptum á evru­svæð­inu umbreytt­ist í alls­herjar evru­krísu þar sem víxl­verkun hækk­andi vaxta og fallandi láns­hæf­is­mats magn­aði upp skulda­vand­ann í hverju rík­inu á fætur öðru.

Grikk­land var gott sem gjald­þrota árið 2010. Í stað þess að gang­ast við því – við­ur­kenna að vand­inn væri óvið­ráð­an­legur, end­ur­skipu­leggja og afskrifa skuldir og leita raun­hæfra leiða til að reisa hag­kerfið upp úr öskustónni – var ráð­ist í björg­un­ar­að­gerðir sem fólust í því að ríki Evr­ópu­sam­bands­ins, Seðla­banki Evrópu og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn reiddu fram 146 millj­arða evra. 

Þjóð­fé­lag skorið niðurÆ fleiri reiða sig á mat­ar­gjafir og ölm­usu í Grikk­landi eftir svelti­stefnu und­an­far­inna ára. Heim­il­is­leysi, fátækt og félags­leg vanda­mál hafa rokið upp úr öllu valdi. 

Lánsféð rann nær rak­leitt til kröfu­hafa Grikkja, einkum þýskra og franskra banka. Í októ­ber 2011 skuld­aði rík­is­sjóður Grikk­lands þýskum bönkum 91,4 millj­arða evra. Fimm mán­uðum seinna, eftir björg­un­ar­að­gerð­irnar, hafði rík­is­sjóður Grikk­lands greitt niður 99 pró­sent af skuld­unum, og áður en árið 2012 var á enda var gríska ríkið skuld­laust við franska banka.

Án björg­un­ar­að­gerð­anna gagn­vart Grikk­landi hefðu rík­is­stjórnir Þýska­lands og Frakk­lands lík­lega þurft að veita þar­lendum banka­stofn­unum enn ein neyð­ar­lánin. „Þetta var feg­urðin á bak við grísku björg­un­ar­að­gerð­irnar, að minnsta kosti fyrir Frakk­land og Þýska­land. Við björgun franskra og þýskra banka var byrð­inni velt yfir á skatt­greið­endur í ríkjum sem eru jafn­vel fátæk­ari en Grikk­land, t.d. Portúgal og Slóvakíu,“ segir Varoufakis í bók sinni Adults in the Room. 

Evrópuþjóðum att hver gegn annarri

Varoufakis tal­aði gegn björg­un­ar­að­gerð­unum af mik­illi hörku áður en hann varð fjár­mála­ráð­herra. Hann benti á að með því að hrúga nýjum skuldum ofan á hinar ósjálf­bæru rík­is­skuldir Grikkja með skil­yrði um harða aðhalds­stefnu myndi kreppan dýpka. Með því að flytja skuldir úr bókum einka­banka yfir á evr­ópska skatt­greið­endur væri ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins att hvert gegn öðru án þess að vandi skuld­settu ríkj­anna væri leystur eða brag­ar­bót gerð á hönn­un­ar­göllum evru­kerf­is­ins.

Björgun Grikk­lands breytti eðli skuld­anna; áður voru þær við banka­stofn­anir, einka­að­ila sem var fyrst og fremst umhugað um að fá eins mikið af pen­ingum sínum til baka og hægt væri, en nú skuld­aði Grikk­land rík­is­sjóðum og yfir­þjóð­legum stofn­unum sem áskildu sér rétt til að segja Grikkjum fyrir verkum og fóru fram á nið­ur­skurð, skatta­hækk­anir, bruna­út­sölu rík­is­eigna, skerð­ingu líf­eyris og auk­inn sveigj­an­leika á vinnu­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Evrópumál

Mest lesið undanfarið ár