Anthropic segir gervigreind færast nær því að smíða eigin arftaka

Gervi­greind­ar­fyr­ir­tækið Anthropic segir Claude nú sinna veru­legum hluta rann­sóknar- og þró­un­ar­starfs fyr­ir­tæk­is­ins. Fyr­ir­tækið varar við því að þegar gervi­greind fari að hraða eigin þróun geti orðið erf­ið­ara fyrir menn að skilja kerfin og hafa stjórn á þeim.

Anthropic segir gervigreind færast nær því að smíða eigin arftaka
Vill hægja ferð­ina Dario Amodei, for­stjóri Anthropic, kall­aði fyrr í þessum mán­uði eftir því að hægja yrði á þróun gervi­greindar. Mynd: Benjamin Fanjoy / GETTY IMAGES NORTH AMERICA / Getty Images via AFP

Gervi­greind­ar­fyr­ir­tækið Anthropic segir að gervi­greind­ar­kerfi séu í auknum mæli fær um að taka þátt í þróun næstu kyn­slóða af sjálfum sér. Þetta bæt­ist við vax­andi áhyggjur af hættum sem fylgt geta hinni öfl­ugu tækni.

Umræða um áhættu tengda gervi­greind hefur orðið hávær­ari und­an­farna mán­uði, meðal ann­ars vegna nokk­urra atvika og alvar­legra við­var­ana frá fólki innan tækni­geirans.

Anthropic segir spjall­mennið Claude nú leiða meira en fjórð­ung rann­sóknar- og þró­un­ar­starfs fyr­ir­tæk­is­ins og vinna með starfs­mönnum að meira en 90 pró­sentum verk­efna.

Fyr­ir­tækið segir upp­lýs­ing­arnar birtar til að almenn­ingur, óháðir aðilar og stjórn­völd fái „betri yfir­sýn yfir hraða þró­unar gervi­greindar“ á sama tíma og rætt sé um hvort hægja eigi á þró­un­inni.

Dario Amodei, for­stjóri Anthropic, kall­aði fyrr í þessum mán­uði eftir því að hægja yrði á þróun gervi­greindar. Hröð fram­þróun tækn­innar hefur meðal ann­ars ýtt undir áhyggjur af atvinnu­missi, ört vax­andi orku­þörf gagna­vera og umhverf­is­á­hrifum þeirra.

…

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Ein sviðsmyndin er að þegar gerfigreindin fer að valda skaða þá fer fólk að slökkva á nettengdum búnaði hjá sér og þá fara gagnaverin á hausin.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár