Anthropic segir gervigreind færast nær því að smíða eigin arftaka

Gervi­greindar­fyrirtækið Anthropic segir Claude nú sinna verulegum hluta rann­sóknar- og þróunar­starfs fyrir­tækisins. Fyrir­tækið varar við því að þegar gervi­greind fari að hraða eigin þróun geti orðið erfiðara fyrir menn að skilja kerfin og hafa stjórn á þeim.

Vill hægja ferðina
Vill hægja ferð­ina Dario Amodei, for­stjóri Anthropic, kall­aði fyrr í þessum mán­uði eftir því að hægja yrði á þróun gervi­greindar. Mynd: Benjamin Fanjoy / GETTY IMAGES NORTH AMERICA / Getty Images via AFP

Gervi­greindar­fyrirtækið Anthropic segir að gervi­greindar­kerfi séu í auknum mæli fær um að taka þátt í þróun næstu kynslóða af sjálfum sér. Þetta bætist við vaxandi áhyggjur af hættum sem fylgt geta hinni öflugu tækni.

Umræða um áhættu tengda gervi­greind hefur orðið háværari undan­farna mánuði, meðal annars vegna nokkurra atvika og alvarlegra viðvarana frá fólki innan tækni­geirans.

Anthropic segir spjallmennið Claude nú leiða meira en fjórðung rann­sóknar- og þróunar­starfs fyrir­tækisins og vinna með starfs­mönnum að meira en 90 prósentum verkefna.

Fyrir­tækið segir upplýsingarnar birtar til að almenningur, óháðir aðilar og stjórn­völd fái „betri yfirsýn yfir hraða þróunar gervi­greindar“ á sama tíma og rætt sé um hvort hægja eigi á þróuninni.

Dario Amodei, forstjóri Anthropic, kallaði fyrr í þessum mánuði eftir því að hægja yrði á þróun gervi­greindar. Hröð framþróun tækninnar hefur meðal annars ýtt undir áhyggjur af atvinnu­missi, ört vaxandi orkuþörf gagnavera og umhverfis­áhrifum þeirra.

…

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Ein sviðsmyndin er að þegar gerfigreindin fer að valda skaða þá fer fólk að slökkva á nettengdum búnaði hjá sér og þá fara gagnaverin á hausin.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár