Trump meinar CNN, MS NOW og Politico aðgang að Hvíta húsinu

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti sak­aði CNN, MS NOW og Politico um að flytja „skáld­skap og lygar" en til­greindi ekki hvað hefði orðið til þess að hann gripi til ákvörð­un­ar­innar um að úti­loka þá frá Hvíta hús­inu. Hann sagði fleiri fjöl­miðla eiga eftir að fylgja.

Trump meinar CNN, MS NOW og Politico aðgang að Hvíta húsinu

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti sagð­ist í dag hafa meinað frétta­miðl­unum CNN, MS NOW og Politico aðgang að Hvíta hús­inu og sak­aði þá, án þess að nefna til­tekin dæmi, um að flytja „skáld­skap og lygar“.

Trump bætti við að „aðrir fals­frétta­miðlar kæmu næst“ en til­greindi ekki hvaða miðla hann ætti við.

„Ég er stoltur af því að til­kynna að frá og með þess­ari stundu meina ég fals­frétta­miðl­unum CNN, MS NOW [...] og Politico [...] aðgang að Hvíta hús­inu vegna stöðugs flutn­ings þeirra á FÖLSKUM FRÉTTUM!“ skrif­aði Trump á sam­fé­lags­miðli sínum Truth Social.

Trump sagði ekki hvað hefði orðið til þess að hann gripi til þessa en bætti við að „frétta­miðlar ættu ekki að geta stöðugt skrifað eða sagt frá SKÁLDSKAP og LYGUM þegar þeir fjalla um for­seta Banda­ríkj­anna, rík­is­stjórn Trumps eða Banda­ríkin.“

Það er afar sjald­gæft að for­setar Banda­ríkj­anna úti­loki frétta­miðla með öllu frá Hvíta hús­inu. Trump …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Er hann hræddur við að verða dreginn fram í dagsljósið greyið.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu