Samtök atvinnulífsins: Ísland laust við spillingu eins og þá sem tíðkast erlendis

Heild­ar­sam­tök íslenskra atvinnu­rek­enda mót­mæla því að settar verði reglur til að draga úr flakki milli stjórn­sýslu­starfa og sér­hags­muna­gæslu. „Hér á landi tíðkast það ekki að spill­ing birt­ist í því að sterkir sérhags­muna­að­ilar nái tang­ar­haldi á stjórnvöldum og hafi áhrif á þau með við­brögðum sínum við ein­stökum ákvörðunum, líkt og talað var um í úttekt­ar­skýrslu GRECO.“

Samtök atvinnulífsins: Ísland laust við spillingu eins og þá sem tíðkast erlendis
Stýra sam­tök­unum Eyjólfur Árni Rafnsson er for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins og Halldór Benjamín Þor­bergs­son er fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna. Mynd: Skjáskot af ráðstefnu SA

Samtök atvinnu­lífs­ins telja óþarft að taka upp opin­bera skrán­ingu hags­muna­varða (lobbý­ista) á Íslandi og eru mót­fallin því að settar verði reglur gegn því að ráð­herrar, aðstoð­ar­menn þeirra og emb­ætt­is­menn hefji störf hjá hags­muna­vörðum strax eftir starfs­lok í stjórn­sýslu.

Heiðrún Björk Gísla­dóttirverk­efna­stjóri á sam­keppn­is­hæfn­isviði er höf­undur umsagn­ar­innar.

Að mati sam­tak­anna tíðkast ekki á Íslandi spill­ing af því tagi að „sér­hags­muna­að­ilar nái tang­ar­haldi á stjórn­völdum og hafi áhrif á þau með við­brögðum sínum við ein­stökum ákvörð­unum“. Eru sam­tökin ósam­mála umfjöllun GRECO um spill­ingu og spill­ing­ar­varnir og telja að „aðstaðan hér [sé] um flest frábrugðin því hvernig hún er í marg­falt stærri þjóðfélögum“. 

For­sæt­is­ráðu­neytið kynnti nýlega áform um breyt­ingar á stjórn­ar­ráðslögum sem miða að því að lög­festa varnir gegn hags­muna­á­rekstrum hjá æðstu hand­höfum fram­kvæmd­ar­valds.

Til­gang­ur­inn er meðal ann­ars að bregð­ast við ábend­ingum GRECO (e. Group of States aga­inst Corruption) og fylgja eftir til­lögum starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra um efl­ingu trausts á stjórn­málum. Hópurinn lagði m.a. til að: 

a) Þeim aðilum sem hafa atvinnu af því að tala máli hags­muna­að­ila gagn­vart stjórnmála- og emb­ætt­ismönnum verði gert að skrá sig sem hags­muna­verði (e. lobby­ists).

b) Hafin verði vinna við gerð reglna um sam­skipti við hags­muna­að­ila og fram kemur að slíkar reglur þurfi að tryggja fullt gagn­sæi um sam­skiptin.

c) Settar verði reglur um starfs­val eftir opin­ber störf sem komi í veg fyrir að starfsfólk stjórnsýslu eða kjörnir full­trúar hefji störf hjá einka­að­ilum strax eftir starfs­lok í stjórnsýslu, vegna aðgangs að upplýsingum úr opin­beru starfi. Slíkar reglur varði einkum þann tíma sem nauð­syn­legt sé að líði frá starfs­lokum og þar til starf fyrir einka­að­ila hefj­ist.

Samtök atvinnu­lífs­ins hafa skilað nei­kvæðri umsögn um áformin. Þau telja jákvætt að fólk flakki á milli starfa í stjórn­sýslu og stjórn­málum og starfa við hags­muna­gæslu fyrir einka­fyr­ir­tæki: 

„T.d. hafa ráðuneyt­is­stjórar komið til starfa fyrir samtökin og skrif­stofu­stjórar úr ráðuneytum, fyrr­ver­andi þing­menn og ráðherrar og almennir starfs­menn frá Alþingi, sveit­arfélögum og stofn­unum ríkis­ins. Fjöldi ann­arra starfs­manna hefur komið frá einka­geir­anum. Á sama hátt hafa fyrrum starfs­menn sam­tak­anna ráðist til stjórnsýslunnar og aðrir orðið þing­menn og ráðherrar,“ segir í umsögn­inni. „Jafn­framt hafa fjölmargir sem starfað hafa á vegum ann­arra hags­muna­sam­taka ráðist til starfa hjá hinu opin­bera, bæði í efstu lög stjórnarráðsins og einnig verið kosnir til setu á þingi og átt greiða leið í önnur störf hjá ríkinu. Það er jákvætt að einka­fyr­ir­tæki finni hæfa starfs­menn í þjónustu ríkis og sveit­arfélaga og að yfirsýn og þekk­ing þeirra sem af ein­hverjum ástæðum hætta í stjórnmálum nýtist sem víðast. Takmörkun á starfs­vali getur því ekki orðið til ann­ars en tjóns fyrir samfélagið.“

SA mót­mæla því að sett verði „almenn yfir­grips­mikil ákvæði um tak­mörkun á almennu atvinnu­frelsi starfs­manna stjórn­ar­ráðs­ins eða kjör­inna full­trúa“ en vilja þó að skil­greint verði hvaða upp­lýs­ingum starfs­menn búi yfir og hvaða upp­lýs­ingar þurfi sér­staka vernd. Þá segja sam­tökin að eðl­is­munur sé á sinni eigin hags­muna­gæslu og þeirri hags­muna­gæslu sem tíðkast í „sumum öðrum ríkjum“ að því leyt­inu til að íslensku sam­tökin starfi á breiðum grunni og „þurfi á vallt að taka til­lit til heild­ar­hags­muna alls atvinnu­lífs en ekki ein­stakra aðila“.

Samtökin leggj­ast gegn því að for­sæt­is­ráðu­neytið taki að sér mið­lægt eft­ir­lits­hlut­verk við fram­kvæmd reglna um hags­muna­verði og sam­skipti stjórn­valda við hags­muna­að­ila. „Rannsóknir hafa sýnt að Íslend­ingar búa við flóknasta eft­ir­lits­reglu­verk allra OECD þjóða en slíkt getur beinlínis hamlað hag­vexti,“ segir í umsögn­inni þar sem varað er við „auknu eft­ir­liti og þyngri reglu­byrði sem m.a. bein­ist að íslensku atvinnu­lífi“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnsýsla

Umboðsmaður taldi forræðið liggja hjá stjórnvaldinu en ekki ríkislögmanni
FréttirStjórnsýsla

Umboðs­maður taldi for­ræðið liggja hjá stjórn­vald­inu en ekki rík­is­lög­manni

Ákvörð­un­ar­vald um hvort bóta­skylda sé við­ur­kennd liggur hjá því stjórn­valdi sem bóta­kröfu er beint að og stjórn­völd hafa for­ræði á kröfu­gerð, rök­semdum og ágrein­ings­at­riðum þegar mál fara fyrir dóm­stóla. Þetta er afstaða umboðs­manns Alþingis sam­kvæmt ábend­inga­bréfi sem hann sendi heil­brigð­is­ráð­herra árið 2014, en for­sæt­is­ráðu­neytið gaf út yfir­lýs­ingu á föstu­dag þar sem fram kom að rík­is­lög­maður hefði „almennt for­ræði á kröfu­gerð og fram­setn­ingu hennar“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár