Tregða hjá ákæruvaldinu til að rannsaka spillingu ráðherra

GRECO telur að óljós mörk milli hlut­verks almenna ákæru­valds­ins og hins sér­staka ákæru­valds Alþingis gagn­vart ráð­herrum geti haft letj­andi áhrif á sak­sókn­ara­emb­ættin að því er varðar rann­sóknir á spill­ingu æðstu vald­hafa.

Tregða hjá ákæruvaldinu til að rannsaka spillingu ráðherra
Spilling felldi ráð­herra Rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar hrökkl­að­ist frá völdum vegna spill­ingar. Hanna Birna Krist­jáns­dóttir sagði af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra eftir lög­brot aðstoð­ar­manns hennar og Illugi Gunn­ars­son var stað­inn að því að njóta per­sónu­legrar fyr­ir­greiðslu frá fyr­ir­tæki og eig­anda þess og að nota ráð­herra­emb­ætti sitt til að hygla sama fyr­ir­tæk­inu. Mynd: Stjórnarráðið

GRECO, sam­tök ríkja gegn spill­ingu, telja að óljós mörk milli ábyrgð­ar­sviða almenna ákæru­valds­ins og hins sér­staka ákæru­valds Alþingis gagn­vart ráð­herrum geti haft letj­andi áhrif á sak­sókn­ara­emb­ættin að því er varðar rann­sóknir á spill­ingu æðstu vald­hafa. 

Þetta kemur fram í skýrslu um fimmtu úttekt sam­tak­anna á Íslandi sem var gerð opin­ber í morgun. Við­mæl­endur rann­sókn­arteymis GRECO á Íslandi, meðal ann­ars full­trúar rík­is­stofn­ana, telja margt benda til þess að stofn­anir ákæru­valds­ins skorti vilja og sjálf­stæði til að eiga frum­kvæði að rann­sóknum á lög­brotum æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds. Hand­hafar sak­sókn­ar­valds veigri sér jafn­vel við að setja af stað rann­sóknir sem kunni að ógna starfs­frama þeirra.

„Sak­sókn­arar stað­festu að fyrir utan eitt mál, gegn ráðu­neyt­is­stjóra fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins sem fékk að end­ingu tveggja ára fang­els­is­dóm fyrir inn­herja­svik, hefðu þeir aldrei rann­sakað æðstu emb­ætt­is­menn rík­is­ins, svo sem ráð­herra rík­is­stjórnar,“ segir í skýrsl­unni. „Bent var á að slík mál endi frekar með afsögn við­kom­andi ráð­herra eftir að þrýst­ing­ur­inn er orð­inn óbæri­legur. Í umræðum var stundum vísað til þeirrar upp­lif­unar almenn­ings að ráð­herrar nytu refsi­leysis þótt ástandið virt­ist vera að batna – fyrir fáeinum árum hefði ráð­herra ekki einu sinni sagt af sér.“ 

Úttekt GRECO tók ann­ars vegar til æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds og hins vegar til lög­gæslu. Til æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds telj­ast ráð­herrar, ráðu­neyt­is­stjórar og aðstoð­ar­menn ráð­herra vegna eðlis starfs þeirra og nálægðar við starfs­svið ráð­herra. 

Stundin fjall­aði nýlega um afger­andi mun á aðgerðum eft­ir­lits­að­ila á Íslandi og í Svíðþjóð gegn spill­ingu. Á und­an­förnum tveimur árum hefur ákæru­valdið í Svíþjóð hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar þótt þar hafi komið fram tak­mark­aðri vís­bend­ingar en í sam­bæri­legum vand­ræða­málum íslenskra ráð­herra.

Ólíkt því sem tíðkast í Svíþjóð eru spill­ingar- og aðstöðru­brasks­mál á Íslandi aldrei rann­sökuð sem meint mútu­mál, en engin dæmi þekkj­ast frá þess­ari öld um að stjórn­mála- eða emb­ætt­is­maður á Íslandi hafi verið ákærður fyrir mútu­þægni. Til sam­an­burðar voru til dæmis fimm sænskir emb­ætt­is­menn ákærðir í fyrra fyrir að þiggja mútur af því þeir fengu ókeypis hátíð­ar­kvöld­verði frá tveimur félögum tón­skálda og texta­höf­unda í Svíþjóð nokkrum árum áður. 

Í við­tali við Stundina í fyrra sagði Helgi Magnús Gunn­ars­son vara­rík­is­sak­sókn­ari að erfitt væri fyrir ákæru­valdið að stunda mikla frum­kvæð­is­vinnu eins og rann­sóknir á spill­ing­ar­málum út frá upp­lýs­ingum sem kæmu fram í fjöl­miðlum. Ákæru­valdið hefði margt á sinni könnu. „Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur fullt af verk­efnum sem óþarfi er að ég telji upp hér og hann mun ekki fók­usera sér­stak­lega á spill­ingu. En spill­ing­ar­mál er einn af þeim mála­flokkum sem emb­ættið mun þurfa að sinna,“ sagði Helgi sem taldi „frá­leitt“ að stofna sér­staka spill­ing­ar­deild innan ákæru­valds­ins á Íslandi þar sem slík deild myndi ekki bera sig rekstr­ar­lega: „Það er alveg frá­leitt að stofna sér­staka deild, í þeim skiln­ingi að um eig­in­legt emb­ætti væri að ræða, til að sinna spill­ingar­rann­sóknum á Íslandi. Þrátt fyrir allt eru mjög fá mál sem upp koma, enda Íslend­ingar fáir. Slík deild yrði aldrei rekstr­ar­lega hag­kvæm þar sem þar mundu ekki starfa nema 2–5 starfs­menn og málin fá.“

Þá sagði Valtýr Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, að rann­sóknir á spill­ingu væru við­kvæmar. „Þetta myndi alls ekki ger­ast í svona póli­tískum málum. Það held ég að væri mjög við­kvæmt. Ef menn rjúka svona af stað og svo kemur rétt­mæt skýr­ing eftir kannski tvo daga. Það væri kannski helst ef ein­hver hefur bein­línis komið ákveðnu kæru­efni á fram­færi til dæmis með tölvu­pósti eða kæru.“

Í skýrslu GRECO er bent á að túlka megi 11. gr. laga ráð­herra­á­byrgð með þeim hætti að fyrir Lands­dómi sé fyrst og fremst fjallað um póli­tísk brot sem séu refsi­verð sam­kvæmt ráð­herra­á­byrgð­ar­lögum, en brot á almennum hegn­ing­ar­lögum geti verið til­fallandi. Í 3. mgr. 11. gr. lag­anna kemur fram að hafi ráð­herra „jafn­framt brotið gegn hinum almennu hegn­ing­ar­lögum“ skuli hegn­ingin til­tekin í einu lagi í dómi Lands­dóms. „Ef þessi túlkun er rétt, þá eru það sak­sókn­arar sem bera meg­in­á­byrgð á því að hefja rann­sóknir á hátt­semi ráð­herra. Þeir ættu að leika lyk­il­hlut­verk í þeim efnum,“ segir í skýrslu GRECO. 

Níu ábendingar til stjórnvalda varðandi
æðstu handhafa framkvæmdarvalds

Skýrsl­unni fylgja alls 18 ábend­ingar til íslenskra stjórn­valda um úrbætur, þar af níu varð­andi æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds. Ábend­ing­arnar voru þýddar á íslensku og birtar á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í vik­unni, en hér má sjá ábend­ingar GRECO til úrbóta hvað varðar æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds á Íslandi.

1. Unnin verði stefna til að bæta heil­indi og varnir gegn hags­muna­á­rekstrum hjá æðstu hand­höfum fram­kvæmd­ar­valds, þar á meðal með virkri ráð­gjöf, vöktun og eft­ir­fylgni.

2. Siða­reglur fyrir æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds verði sam­ræmdar, unnið verði leið­bein­ing­ar­efni með skýr­ingum og raun­hæfum dæmum og hægt verði að leita ráð­gjafar um þær í trún­aði. Þá verði til staðar eft­ir­lits­að­ili með fram­kvæmd siða­regln­anna og við­ur­laga­kerfi komið á fót.

3. Komið verði á fót skil­virkum ferlum til að efla vit­und æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds um opin­ber heil­indi, þar á meðal með reglu­legri fræðslu.

4. Settar verði reglur um sam­skipti æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds við hags­muna­að­ila og aðra aðila sem leit­ast eftir því að hafa áhrif á und­ir­bún­ing lög­gjafar og önnur störf stjórn­valda.

5. Reglur um auka­störf æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds verði end­ur­skoð­aðar og gerð skýr­ari grein fyrir því hvaða störf eru heimil og hver ekki.

6. Settar verði skýr­ari reglur um gjafir og önnur fríð­indi fyrir æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds, þar sem gert yrði ráð fyrir skýrum far­vegi fyrir til­kynn­ingar, birt­ingu upp­lýs­inga og við­eig­andi ráð­gjöf til að tryggja að tekið sé á öllum teg­undum fríð­inda með við­un­andi hætti.

7. Settar verði reglur um störf æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds eftir að störfum fyrir hið opin­bera lýkur.

8. Hags­muna­skrán­ing­ar­kerfi æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds verði bætt, sér í lagi með því að taka til­lit til verð­mætis eigna þeirra, fjár­hæðar fram­laga til þeirra og skuld­bind­inga. Þá verði athugað hvort efni séu til að víkka skrán­ing­ar­skyld­una og láta hana ná yfir maka og börn á for­ræði við­kom­andi, með til­liti til þess að slíkar upp­lýs­ingar þyrfti ekki endi­lega að birta opin­ber­lega.

9. Trú­verð­ug­leiki hags­muna­skrán­ing­ar­kerfis fyrir æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds verði auk­inn, með því að leit­ast við að tryggja að farið verði eftir reglum með eft­ir­liti, við­eig­andi ráð­gjöf og fræðslu og með því að setja á fót við­ur­laga­kerfi þegar skrán­ing er ófull­nægj­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Spilling

Lækkun Íslands skrifast ekki á Grétar Þór og Þorvald
SkýringSpilling

Lækkun Íslands skrif­ast ekki á Grétar Þór og Þorvald

Ein mæl­ing, sem stafar af mati tveggja íslenskra háskóla­pró­fess­ora á spill­ing­ar­vörnum hér­lendis, hefur dregið Ísland niður list­ann í spill­ing­ar­vísi­tölu Transparency International und­an­farin ár. Ísland féll um nokkur sæti milli ára, en það sem helst breyt­ist er mat sér­fræð­inga alþjóð­legs grein­inga­fyr­ir­tækis, IHS Global Insight, á spill­ing­ar­á­hættu í tengslum við við­skipti hér á landi.
Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Úttekt

Af hverju er spill­ing frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár