Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?

Munur á umræðu og aðgerðum stjórn­valda gegn spill­ingu í Svíþjóð og á Íslandi er hróp­lega mik­ill. Ákæru­valdið í Svíþjóð hefur á síð­ustu tveimur árum hafið rann­sókn á tveimur ráð­herrum vegna spill­ingar. Þessar rann­sóknir byggj­ast samt á veik­ari for­sendum en mörg mál sem komið hafa upp um íslenska ráð­herra á liðnum árum. Þá eru óform­legar reglur um spill­ingu og þol­in­mæði almenn­ings gagn­vart spill­ingu allt ann­ars konar á Íslandi en í Svíþjóð.

Af hverju er spilling frekar umborin á Íslandi en í Svíþjóð?
Þrír ráð­herrar hættu vegna spill­ingar Þrír af ráð­herrr­unum í rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar þurftu að hætta vegna spill­ingar og hneyksl­is­mála, þau Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, Illugi Gunn­ars­son og Sig­mundur Davíð. Bjarni Bene­dikts­son hélt hins vegar áfram stjórn­mála­þátt­töku þrátt fyrir Panama­skjölin og upp­reist æru-málið.

Fimm sænskir emb­ætt­is­menn hafa verið ákærðir fyrir að þiggja mútur af því þeir fengu ókeypis hátíð­ar­kvöld­verði frá tveimur félögum tón­skálda og texta­höf­unda í Svíþjóð fyrir nokkrum árum. Verðmæti máls­verð­anna er talið hafa verið á milli eitt og þrjú þús­und sænskra króna, frá um 13 þús­und íslenskum krónum og upp í um 40 þús­und. Rann­sóknin á mál­inu hófst fyrir þremur árum og var það deild innan ákæru­valds­ins sænska sem heitir Riksen­heten mot korruption sem byrj­aði þá að rann­saka málið. Aðal­með­ferð í mál­inu hófst í Stokk­hólmi þann 7. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Viðurlög við mútu­brotum í Svíþjóð geta verið allt frá dags­sektum og upp í fang­els­is­dóma. 

Í við­tali við sænska rík­is­út­varpið, dag­inn sem aðal­með­ferðin í mál­inu hófst, sagði sak­sókn­ari við sér­staka spill­ing­ar­deild sænska ákæru­valds­ins, Riksen­heten mot korruption, Alf Johans­son, að um væri að ræða prinsipp­mál sem væri mik­il­vægt þar sem starfs­menn stofn­ana sam­fé­lags­ins mættu ekki taka á móti hlutum frá aðilum sem tengj­ast verk­sviði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórnin

Kristján Þór og Þorsteinn Már „nánir  vinir“ í skilningi stjórnsýslulaga
FréttirRíkisstjórnin

Kristján Þór og Þor­steinn Már „nánir vinir“ í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga

Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafa ekki viljað svara spurn­ingum um eðli vin­áttu sinnar. Samkvæmt hæf­is­reglum stjórn­sýslu­laga getur „náin vin­átta“ haft áhrif á hæfi ráð­herra og ann­arra opin­berra starfs­manna en í slíkri vin­áttu felst meðal ann­ars að menn umgang­ist í frí­tíma sínum.
Er gagnrýnin á pólitíska hræsni Vinstri grænna innihaldslítil?
Ingi Freyr Vilhjálmsson
PistillRíkisstjórnin

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Er gagn­rýnin á póli­tíska hræsni Vinstri grænna inni­halds­lítil?

Þeir sem stíga fram og tala fyrir hræsni­lausum stjórn­málum eru blind­aðir af tál­sýn um útópíska póli­tík sem ekki fyr­ir­finnst í raun­veru­leik­anum. Þetta er einn af þráðunum í bók bresks fræði­manns um hræsni í stjórn­málum. Hér er ákvörðun Vinstri grænna um mögu­legt stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn skoðuð út frá þess­ari bók.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár