Lögreglumenn á netinu utan valdsviðs eftirlitsnefndar

Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu tekur ekki á hátt­semi lög­reglu­manna á net­inu eða í störfum þeirra fyrir Lands­sam­band lög­reglu­manna. Kvörtun vegna meintra njósna og áreitis lög­reglu­manns á net­inu var vísað frá.

Lögreglumenn á netinu utan valdsviðs eftirlitsnefndar
Lög­reglan Hegðun lög­reglu­manna á net­inu eða í félags­störfum heyrir ekki undir eft­ir­lits­nefnd. Mynd: Facebook

Valdsvið nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu nær ekki til hátt­ernis lög­reglu­manna á net­inu eða í störfum þeirra fyrir Lands­sam­band lög­reglu­manna. Þetta kemur fram í ákvörðun nefnd­ar­innar síð­asta haust vegna kvört­unar sem beind­ist gegn tveimur lög­reglu­mönnum, en annar þeirra var Snorri Magn­ús­son, for­maður Lands­sam­bands lög­reglu­manna. Málið fór áfram til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hér­aðs­sak­sókn­ara og tók hvor­ugt emb­ættið afstöðu til þess.

Eins og Stundin greindi nýverið frá óskaði Snorri eftir aðgangi að lok­uðum Facebook-hópi kvenna til að fylgj­ast með umræðum þeirra og gera þær opin­berar. Hópurinn er læstur og svara þarf spurn­ing­unni „Af hverju viltu ger­ast með­limur?“ áður en stjórn­endur hans taka afstöðu til umsókn­ar­innar. Snorri sótti um aðgang 22. júní síð­ast­lið­inn og svar­aði spurn­ing­unni á þessa leið: „Af því að ég hef mik­inn áhuga á að sjá og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár