Slapp á hlaupum undan manni í Öskjuhlíð

Ásta Krist­jáns­dóttir var elt af karl­manni þegar hún var úti að hlaupa í Öskju­hlíð. Hún náði að flýja mann­inn inn á bíla­stæði við Háskól­ann í Reykja­vík en þangað hætti mað­ur­inn sér ekki.

Slapp á hlaupum undan manni í Öskjuhlíð
Elt af karl­manni Ásta forð­aði sér undan mann­inum á harða­spretti. Mynd: Ásta Kristjánsdóttir

Ásta Krist­jáns­dóttir ljós­mynd­ari varð fyrir þeirri óhugn­an­legu reynslu í gær­kvöldi að karl­maður sem hún mætti á hlaupum í Öskju­hlíð sneri við og hóf að elta hana með ógn­andi hætti. Ásta gat forðað sér á hlaupum gegnum alla Öskju­hlíð­ina og niður á bílaplan við Háskóla Reykja­víkur en þar vog­aði mað­ur­inn sér ekki að elta hana lengur.

Ásta greindi frá þessu í færslu á Facebook í gær­kvöldi. Þar lýsir hún því að hún hafi verið á sinni hefð­bundnu hlaupa­leiða frá Hlíðum, gegnum Öskju­hlíð og á leið niður í Naut­hóls­vík, þegar að ósköp venju­legur maður hafi komið hlaup­andi á móti henni í rign­ing­unni. Þegar Ásta mætti honum átt­aði hún sig á að eitt­hvað var ekki eins og það átti að vera.

„Ég vissi strax hvað var að fara ger­ast, eins og dýr sem veit að annað dýr er að fara ráð­ast á sig“

„Um leið og ég mæti augn­ráð­inu frá honum kom skrýtin til­finn­ing yfir mig. Ég hægi á mér ósjálfrátt og lít við (sem ég geri yfir­leitt ekki). Sé þá að mað­ur­inn er búinn að snúa við og stendur kyrr og horfir á mig og glottir. Ég vissi strax hvað var að fara ger­ast, eins og dýr sem veit að annað dýr er að fara ráð­ast á sig. Ég hleyp af stað eins og eld­flaug og hann á eftir.“

Maðurinn elti Ástu á harða­hlaupum í gegnum skóg­inn í Öskju­hlíð­inni en hafði sem betur fer ekki erindi sem erf­iði. „Ég hljóp hratt, hraðar en hann. Bara þannig að það sé á hreinu þá var þessi maður ekki að fara spurja mig hvað klukkan væri eða segja mér að ég hefði misst eitt­hvað. Ég kem út úr skóg­inum niður á bíla­stæði Háskól­ans í Reykja­vik og sé að mað­ur­inn hættir sér ekki þangað á eftir mér.“

Ofbeldi gegn konum heimsfaraldur

Ásta lýsir því að hún hafi verið full af adrena­líni eftir hlaupin og hvernig reiðin hafi gosið upp í henni. Hún hafi á þess­ari stundu áttað sig á því að yrði ráð­ist á hana myndi hún ekki frjósa heldur berj­ast af alefli, hana hefði helst langað til að hlaupa inn í skóg­inn og berja mann­inn.

„Allar kon­urnar sem hafa verið beittar ofbeldi (ég hef sloppið hingað til en nokkrum sinnum verið elt) komu upp í hug­ann minn, bæði nánir aðstand­endur, vin­konur og allar hinar sem ég hef heyrt og lesið um. ÉG FANN STYRKINN MAGNAST INNRA MEÐ MÉR OG FANN AÐ ÞÆR VORU ALLAR MEÐ MÉR. Þessi maður eða annar mun ekki skemma þessa fal­legu leið fyrir mér. Með bíllykil í einni og hús­lykil í hinni hljóp ég aftur af stað sömu leið til­baka,“ skrifar Ásta.

António Guterres, aðal­fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, lýsti því í nóv­em­ber á síð­asta ári að ofbeldi gegn konum væri heims­far­aldur sem stæði í vegi jafn­réttis, friðar og þró­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár