Segja hæfnismat vegna seðlabankastjóra gallað

Sjö af umsækj­endum um stöðu seðla­banka­stjóra hafa and­mælt mati hæfn­is­nefndar. Ekki hafi verið tekið til­lit til stjórn­un­ar­hæfi­leika og þess stóra verk­efnis að sam­eina Seðla­bank­ann og Fjár­mála­eft­ir­litið.

Segja hæfnismat vegna seðlabankastjóra gallað

Að minnsta kosti sjö af umsækj­endum um stöðu seðla­banka­stjóra hafa and­mælt mati hæfn­is­nefndar á umsækj­end­unum. Telja þeir að nefndin hafi ekki gætt jafn­ræðis umsækj­enda og hafi hunsað þær breyt­ingar sem verða á starf­inu við sam­ein­ingu Seðla­bank­ans og Fjár­mála­eft­ir­lits­ins. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Umsækj­end­urnir telja veru­lega van­kanta á máls­með­ferð nefnd­ar­innar og segja að stjórn­un­ar­hæfi­leikar hafi lítið sem ekk­ert verið ræddir í við­tölum við þorra umsækj­enda. Aðeins fimm umsækj­endur voru boð­aðir í fram­halds­við­tal þar sem stjórn­un­ar­hæfi­leikar voru ræddir og telja umsækj­endur að jafn­ræð­is­regla hafi verið brotin með því að fá ekki tæki­færi til að ræða það atriði. Nefndin hafi því ekki gert heild­stæðan sam­an­burð á umsækj­endum.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra mun velja nýjan seðla­banka­stjóra úr hópi umsækj­enda í júlí. Fjórir voru metnir mjög vel hæfir, þeir Arnór Sig­hvats­son, Ásgeir Jónsson, Gylfi Magn­ús­son og Jón Dan­í­els­son. Þá voru Gunnar Har­alds­son, Gylfi Arn­björns­son, Katrín Ólafs­dóttir, Sturla Pálsson og Sigurður Hann­es­son metin vel hæf. Loks voru Ásgeir Brynjar Torfason, Jón Gunnar Jónsson og Vil­hjálmur Bjarna­son metnir hæfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár