Tilkynntum kynferðisbrotum fjölgar gríðarlega

43 kyn­ferð­is­brot voru til­kynnt til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í maí. Um er að ræða 128 pró­senta fjölgun miðað við með­al­tal síð­ustu tólf mán­aða.

Tilkynntum kynferðisbrotum fjölgar gríðarlega
Gífurleg aukn­ing Kyn­ferð­is­brotum sem til­kynnt eru til Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölgar gríð­ar­lega milli mán­aða. Mynd: Shutterstock / Sviðsett mynd

Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu bár­ust 43 til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­brot sem áttu sér stað í maí. Fjölg­unin er veru­lega mikil, bæði milli mán­aða, og miðað við bæði 6 mán­aða með­al­tal og 12 mán­aða með­al­tal.

Í apríl síð­ast­liðnum bár­ust lög­regl­unni 9 til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­brot. Að með­al­tali voru 19 kyn­ferð­is­brot til­kynnt á mán­uði á 6 mán­aða með­al­tali þar á undan og einnig 19 brot að með­al­tali á mán­uði á 12 mán­aða tíma­bili þar á undan. Fjölg­unin frá með­al­tali nemur 128 pró­sentum. Þá voru 67 kyn­ferð­is­brot skráð í maí síð­ast­liðnum, ótengt því hvenær brotin voru framin.

Alls hafa 114 kyn­ferð­is­brot verið til­kynnt það sem af er ári, sam­an­borið við 127 á sama tíma­bili árið 2018. Sé hins vegar horft á með­al­tal til­kynn­inga síð­ustu þrjú ár á undan, árin 2016 til 2018, hafa lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu borist fjögur pró­sent fleiri til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­brot það sem af er ári.

Tilkynnt var um kyn­ferð­is­brot í öllum fjórum lög­gæslu­hverfum lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í maí, en það er breyt­ing frá fyrri mán­uði þar sem ein­göngu voru skráð kyn­ferð­is­brot á lög­gæslu­svæði 1, sem nær yfir Miðborg, Vesturbæ, Sel­tjarn­ar­nes, Háaleiti, Hlíðar og Laug­ar­dal. Þar voru skráð brot einnig lang­flest í maí, eða 31.

Í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kemur fram að þessa miklu fjölgum megi einna helst rekja til aðgerða lög­regl­unnar í vænd­is­málum. Und­an­farnar vikur hafi emb­ættið staðið í sér­stökum aðgerðum tengdum man­sali en vændi sé ein af birt­ing­ar­myndum mansals. Engar frek­ari skýr­ingar eru þó gefnar hvað þetta varðar, né heldur er birt nán­ari töl­fræði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár