Frakkar vilja Björgólf í 5 ára fangelsi

Sak­sókn­arar segja Björgólf Guð­munds­son og Lands­bank­ann í Lúx­em­borg hafa rekið Ponzi-svindl gagn­vart eldri borg­urum fyrir hrun. Farið er fram á hámarks­refs­ingu gagn­vart Björgólfi fyrir áfrýj­un­ar­dóm­stóli í París, sam­kvæmt gögnum máls­ins sem Stundin hefur undir höndum.

Frakkar vilja Björgólf í 5 ára fangelsi
Farið fram á fang­els­is­dóm Sak­sókn­arar í Frakk­landi hafa farið fram á að Björgólfur Guð­munds­son verði dæmdur í fang­elsi, sökum þess að hann hafi staðið að lán­veit­ingum til eldri borg­ara í gegnum Lands­bank­ann fyrir hrun, sem í raun hafi verið svindl. Mynd: Geirix / Pressphotos.biz

Sak­sókn­arar í Frakk­landi hafa farið fram á hámarks­refs­ingu yfir Björgólfi Guð­munds­syni, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manni Lands­bank­ans, fyrir áfrýj­un­ar­dóm­stólnum í París. Málið varðar lán­veit­ingar Lands­bank­ans í Lúx­em­borg til eldri borg­ara rétt fyrir hrun, sem kallað er Ponzi-svindl í gögnum ákæru­valds­ins, sem Stundin hefur undir höndum.

Lands­bank­inn í Lúx­em­borg veitti lán til líf­eyr­is­þega skömmu fyrir hrun, svokölluð „equity rel­e­ase“ lán, en lán­þegar telja lán­veit­ing­arnar hafa verið eina stóra svika­myllu. Lánin voru veitt gegn veðum í fast­eignum þeirra, en þeir fengu aðeins hluta láns­fjár greiddan út. Restin var sett í fjár­fest­ingar hjá Lands­bank­anum í Lúx­em­borg sem áttu að skila að minnsta kosti nægri ávöxtun til að greiða vaxta­kostn­að­inn af lán­inu. Sak­sókn­arar telja að eign­irnar hafi verið metnar of hátt, lán­veit­ing­arnar verið umfram raun­veru­legt virði þeirra, fjár­mun­irnir hafi verið not­aðir í annað en lofað var og stjórn­endur bank­ans hafi gefið rangar upp­lýs­ingar um stöðu hans fyrir hrun.

Björgólfur Guð­munds­son er sagður höf­uð­paur­inn í mál­inu, en hann var for­maður banka­ráðs og stærsti eig­andi Lands­bank­ans fyrir hrun. Ásamt syni sínum, Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni, átti hann form­lega um 40% í bank­anum, en í reynd 50% vegna eign­ar­halds bank­ans á eigin bréfum í gegnum aflands­fé­lög. Sak­sókn­arar fara fram á fimm ára fang­els­is­dóm, hámarks­refs­ingu sam­kvæmt frönskum lögum, og 375.000 evra sekt, eða and­virði 52 millj­óna króna.

„Eignir lán­tak­enda voru sann­ar­lega gleyptar af stjórn Lands­bank­ans, sem gefur fyr­ir­komu­lag­inu ásýnd sem minnir á Ponzi-svindl,“ segir í skjölum ákæru­valds­ins. „Í þessu máli starf­aði bank­inn eins og léns­kerfi, pen­ingar fjár­festa voru not­aðir til þess að ýta undir falskt gjald­þol bank­ans, sem gat þar með haldið áfram að veita lán, helst í þágu Björg­ólfs Guð­munds­sonar og fjöl­skyldu hans.“

„Eignir lán­tak­enda voru sann­ar­lega gleyptar af stjórn Lands­bank­ans, sem gefur fyr­ir­komu­lag­inu ásýnd sem minnir á Ponzi-svindl“

Í skjöl­unum er Björgólfi líkt við Bernie Madoff, frægan banda­rískan fjár­festi, sem hlaut hámarks­dóm vest­an­hafs árið 2009 fyrir Ponzi-svindl. Bent er á að hann hafi verið helsti lán­tak­and­inn hjá eigin banka og hafi vitað allt um stöðu lána­safns bank­ans. Hann hafi vitað af „equity rel­e­ase“ lán­unum og valið menn í stöður. Hann hafi verið sá sem helst hefði getað hagn­ast og hann þurfi því að sak­fella. Björgólfur var lýstur gjald­þrota árið 2009.

Bernie Madoff

Þá er farið fram á að Gunnar Thorodd­sen, fyrr­ver­andi yfir­maður Lands­bank­ans í Lúx­em­borg, hljóti þriggja ára skil­orðs­bund­inn dóm og 50.000 evra sekt, and­virði sjö millj­óna króna. Auk þeirra er farið fram á skil­orðs­bundið fang­elsi gagn­vart fjórum öðrum starfs­mönnum; Olle Lindfors, Torben Jensen, Morten Nielsen og Vincent Failly.

Allir sem ákærðir voru í mál­inu voru sýkn­aðir haustið 2017, en málið er nú hjá áfrýj­un­ar­dóm­stólnum. Fallið var frá ákæru gagn­vart þremur öðrum sem upp­haf­lega voru taldir aðilar að mál­inu. Sak­sókn­arar lögðu fram skýrslu sína á föstu­dag þar sem aðil­arnir eru sagðir hafa blekkt um hund­rað manns, en á þriðja tug lán­tak­enda hafi lát­ist frá því málið kom upp. Eva Joly rann­sókn­ar­dóm­ari er einn lög­manna þeirra í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármálahrunið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár