Gloppa í lögunum minnkar refsingu Lárusar um eitt ár

Lárus Welding hafði fyllt upp í refsirammann í efna­hags­brota­málum og var ekki gerð fang­els­is­refs­ing í einu máli. Svo var hann sýkn­aður í máli sem hann hafði verið dæmdur fyrir og þá er ekki hægt að end­ur­skoða refsi­leysi hans í hinu mál­inu.

Gloppa í lögunum minnkar refsingu Lárusar um eitt ár
Gæti sloppið við refs­ingu Lárus Welding getur mögu­lega sloppið við fang­els­is­refs­ingu þrátt fyrir að hafa verið dæmdur í einu máli þar sem allir aðrir hlutu fang­els­is­dóma. Mynd: Pressphotos / Geirix

Lárus Welding, fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitnis, hefur verið dæmdur til fang­els­is­vistar í sam­tals sex ár fyrir hér­aðs­dómi í þremur málum sem tengj­ast rekstri bank­ans sem hann stýrði í umboði Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar á árunum fyrir hrun. Þetta er hámarks­refs­ingin sem hægt er að dæma mann í fyrir efna­hags­brot sam­kvæmt gild­andi refsiramma í málum sem tengj­ast atburðum eins og íslenska efna­hags­hrun­inu.

Undirmennirnir dæmdir í fangelsi

Lárus var dæmdur til fimm ár fang­els­is­vistar í Stím-mál­inu svo­kall­aða, eins árs fang­els­is­vistar í Aurum-mál­inu en var ekki gerð refs­ing í stóra mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu svo­kall­aða, sem snýst um ára­langa mark­aðs­mis­notkun Glitnis með hluta­bréf í bank­anum sjálfum, af því að hann var þá þegar búinn að fylla upp í refsirammann í slíkum efna­hags­brota­málum.

„Ákærða, Lárusi Welding, er ekki gerð refsing“

Eins og það var orðað þegar Lárus var ekki dæmdur til refs­ingar í mark­aðs­mis­notk­un­ar­mál­inu þegar fjórir und­ir­menn hans hjá Glitnis voru dæmdir í óskil­orðs­bundið eða skil­orðs­bundið fang­elsi í mars: …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Dómsmál

Ógnaði heimilisfólki með heimagerðu sverði
FréttirDómsmál

Ógnaði heim­il­is­fólki með heima­gerðu sverði

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi fyrir skömmu mann fyrir lík­ams­árás, hús­brot og akstur undir áhrifum áfengis. Í lýs­ingum vitna er sagt frá því að mað­ur­inn hafi kýlt heim­il­is­mann sem reyndi að koma í veg fyrir að mað­ur­inn kæmi inn um glugga á hús­inu. Þá er einnig sagt frá því að mað­ur­inn hafi á einum tíma­punkti dregið fram heima­gert sverð á sveiflað því í kringum sig fyrir utan húsið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár