Lenti alvarlegu í bílslysi með dóttur sinni og liggur á gjörgæslu - „Hún er nefnilega algjör nagli“

Jónu Elísa­betu Ottesen er haldið sof­andi í önd­un­ar­vél eftir bílslys. Fjöl­skyldan safnar fyrir end­ur­hæf­ingu sem bíður hennar eftir mænu­skaða. Dóttir hennar, Ugla, slapp með minni­háttar skrámur.

Lenti alvarlegu í bílslysi með dóttur sinni og liggur á gjörgæslu - „Hún er nefnilega algjör nagli“

Fjöl­skylda Jónu Elísa­betu Ottesen safnar fyrir end­ur­hæf­ingu hennar vegna mænu­skaða sem hún hlaut í bílslysi með dóttur sinni. Henni er nú haldið sof­andi í önd­un­ar­vél á meðan bólgur hjaðna, en „krafta­verki lík­ast“ þykir að fimm ára gömul dóttir hennar slapp vel.

Mæðgurnar voru á leið frá því að halda upp á 40 ára afmæli Stein­gríms Inga Stef­áns­sonar, unnusta Jónu og föður Uglu. „Jóna liggur nú á gjör­gæsl­unni, þar sem hún fær bestu mögu­legu aðhlynn­ingu sem hægt er að fá,“ skrifar Ása Ottesen, systir Jónu, á Facebook. „Fyrst eftir slysið var hún með fullri með­vit­und og gerði sér grein fyrir aðstæðum. Í gær var tekin ákvörðun um að setja hana í önd­un­ar­vél og halda henni sof­andi, á meðan bólgur hjaðna. Ugla slapp með minni­háttar skrámur, sem er krafta­verki lík­ast.“

Vegna mænu­skaða sem Jóna varð fyrir bíður hennar end­ur­hæf­ing. „Við erum öll stað­ráðin í að tækla það með jákvæðum bar­áttu­hug í anda Jónu,“ skrifar Ása. „Hún er nefni­lega algjör nagli, ef þið vissuð það ekki nú þegar.“

Mæðgurnar á ferða­lagiUgla slapp með minni­háttar skrámur eftir bílslysið.

Fjöl­skyldan hefur ákveðið að opna styrkt­ar­reikn­ing fyrir Jónu. „Allt sem fer inn á þann reikn­ing fer bein­ustu leið í að styrkja Jónu og byggja hana upp á ný, þegar sá tími kemur,“ skrifar Ása. „Eftir slysið höfum við fjöl­skyldan fengið óend­an­lega mikið af skila­boðum, sím­tölum og bar­áttu­kveðjum úr öllum áttum, enda þykir öllum vænt um Jónu sem henni hafa kynnst. Við getum ekki lýst því hvað það hjálpar okkur mikið og hvetur okkur áfram.“

Númer reikn­ings­ins er 528-14-401998 og kennitala 701111-1410.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár