Tæpur helmingur ánægður með ríkisstjórnina

Stuðn­ingur við stjórn­ina jókst um 4,5 pró­sentu­stig seinni hluta maí­mán­aðar. Píratar bæta mark­tækt við sig en ann­ars litlar breyt­ingar á fylgi flokka.

Tæpur helmingur ánægður með ríkisstjórnina
Stuðn­ingur við eykst milli kann­ana Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur jókst um tæp fimm pró­sent á hálfum mán­uði. Mynd: Stjórnarráðið

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina jókst um 4,5 pró­sentu­stig á hálfum mán­uði, frá miðjum maí til loka mán­að­ar­ins og mælist nú 45,5 pró­sent. Breyt­ingar á fylgi allra stjórn­mála­flokka sem spurt var um reynd­ust óveru­legar og innan vik­marka, utan þess að fylgi við Pírata eykst mark­tækt, um 4,2 pró­sentu­stig. Þá dal­aði fylgi Flokks fólks­ins um 2,2 pró­sentu­stig, mæld­ist 4,2 pró­sent, og er það einnig mark­tæk breyt­ing.

Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR á fylgi flokka sem gerð var dag­ana 23. til 29. maí síð­ast­lið­inn. Síðasta könnun sem fyr­ir­tækið gerð var birt 16. maí. Mælist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með stuðn­ing 21,5 pró­senta í könn­un­inni og er það 0,2 pró­sentu­stigum hærra en í síð­ustu könnun. Flokk­ur­inn mælist með mest fylgi flokka á lands­vísu.

Vinstri græn mæl­ast næst­stærst með 14,1 pró­sent fylgi, hækka um 1,9 pró­sent milli kann­ana. Píratar eru því sem næst jafnir Vinstri grænum, njóta stuðn­ings 14 pró­senta þeirra sem tóku þátt og bæta sem fyrr segir við sig 4,2 pró­sentu­stigum. Sam­fylk­ingin dalar lít­il­lega, þó ekki mark­tækt frekar en flestir aðrir flokkar. Flokk­ur­inn nýtur nú stuðn­ings 12,5 pró­senta aðspurðra sem er 1,4 pró­sentu­stigum lægra en 16. maí síð­ast­lið­inn.

Mið­flokk­ur­inn lækkar um 1 pró­sentu­stig milli kann­ana, mælist nú með 10,8 pró­sent. Framsókn lækkar einnig, mælist með stuðn­ing 9,7 pró­senta aðspurðra en mæld­ist síð­ast með 11,6 pró­sent. Viðreisn stendur í stað, mælist með 8,3 pró­sent miðað við 8,4 pró­sent síð­ast. Sem fyrr segir dalar Flokkur fólks­ins milli mæl­inga og nýtur nú stuðn­ings 4,2 pró­senta. Sós­í­alista­flokkur Íslands stendur því sem næst í stað milli kann­ana, mælist nú með 3,4 pró­sent stuðn­ing en var síð­ast mðe 3,2 pró­sent. Aðrir flokkar mæl­ast með 1,6 pró­senta stuðn­ing.

Alls svör­uðu 932 könn­un­inni og 79,3 pró­sent þeirra gáfu upp afstöðu til flokka. Óákveðnir voru 6,2 pró­sent, 6,8 pró­sent kváð­ust myndu skila auðu, 1,7 pró­sent sögð­ust ekki myndu kjósa og 5,6 pró­sent gáfu ekki upp afstöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár